Fréttablaðið - 26.11.2020, Qupperneq 10
Gerðu þína eiginþakkargjörð
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Sjá allt fyrir
þakkargjörðar
veisluna á
kronan.is/
takk
GARÐABÆR Gerðardómur hefur
úrskurðað að sveitarfélagið Garða-
bær skuli greiða meirihluta af rúm-
lega 200 milljóna króna viðbótar-
kostnaði vegna byggingar fjölnota
íþróttahúss í Vetrarmýri í Garðabæ.
Íslenskir aðalverktakar unnu
allsherjarútboð um verkið á sínum
tíma með tilboði upp á 4,2 milljarða
króna. Þegar jarðvegsvinna á verk-
stað hófst kom í ljós að fyrri áætl-
anir dugðu ekki og því blasti við að
ráðast þyrfti í sértækar aðgerðir til
styrkingar á mýrarjarðveginum.
Verðmiðinn á þeim viðbótar-
framkvæmdum var í kringum 350
milljónir króna. Hófust þegar deilur
milli sveitarfélagsins og verktakans
um hvor bæri ábyrgð á mistökunum
og ætti að bera kostnaðinn. Rök
Garðabæjar voru á þá leið að um alls-
herjarútboð væri að ræða og því ætti
kostnaðurinn að rúmast innan skil-
mála verksamnings. ÍAV hélt aftur
á móti fram að jarðvegsrannsóknir
sem fylgdu útboðsgögnunum hefðu
verið ófullnægjandi.
Fréttablaðið greindi frá deilunum
í janúar á þessu ári og að hlé hefði
verið gert á framkvæmdunum. Í við-
tali á þeim tímapunkti taldi Gunnar
Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar,
afar ólíklegt að viðbótarkostnaður
myndi lenda á bæjarsjóði og að verk-
ið myndi aðeins tefjast í 1-2 mánuði.
Svo fór að verkið tafðist um tæpa
átta mánuði og leystist ekki fyrr en
deiluaðilar ákváðu að hvor um sig
myndi taka á sig 60 milljónir af við-
bótarkostnaðinum og að afganginn,
áðurnefndar 200 milljónir, myndi
gerðardómur úrskurða um.
Niðurstaða gerðardóms var sú að
fallast að mestu leyti á rök ÍAV í mál-
inu og var úrskurðað að 80 prósent
af viðbótarkostnaðinum myndi falla
á Garðabæ, eða um 166 milljónir
króna. Sá hluti sem fellur á ÍAV er
meðal annars vegna tafa og sinnu-
leysis, en verkið hófst ekki fyrr en
sjö mánuðum eftir að útboði lauk.
Sara Dögg Svanhildardóttir, odd-
viti Garðabæjarlistans, segir að
minnihlutinn hafi frá upphafi haft
efasemdir um að Garðabær væri í
fullum rétti í málinu og undirbún-
ingi verksins hafi verið ábótavant
af hálfu bæjarins. „Rannsókn sem
hafin var á jarðvegi undir bygg-
inguna var hafin fyrir margt löngu,
en aldrei kláruð. Það er verulega
ámælisvert,“ segir Sara Dögg.
Hún segir að framkvæmdin sé
enn eitt dæmið um galla á opin-
berum innkaupum sveitarfélaga,
ekki bara Garðabæjar heldur allra
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
„Ég kalla eftir endurskoðun á þessu
fyrirkomulagi. Það er óásættanlegt
að eyða skattfé í ítrekuð málaferli.
Næg eru verkefnin sem skortir fjár-
magn,“ segir Sara. bjorn@frettabladid.is
Viðbótarkostnaður vegna
Vetrarmýrar fellur á Garðabæ
Verið er að reisa fjölnota íþróttahús sem mun standa í Vetrarmýri í Garðabæ. Eftir að framkvæmdir við
húsið hófust komust Íslenskir aðalverktakar að því að kostnaður við jarðvegsvinnu yrði meiri en áætlað
var í útboði. Gerðardómur hefur komist að því að Garðabær skuli greiða meirihluta þess kostnaðar.
Framkvæmdir standa yfir við íþróttahús sem rís í Vetrarmýri í Garðabænum. Kostnaður við verkið varð meiri en áætlað var. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Gunnar
Einarsson,
bæjarstjóri
Garðabæjar
SAMFÉLAG Mörg dæmi eru um að
einstaklingar hafi fundið fyrir ein-
kennum kvíða í aðdraganda Svarts
föstudags, eða Black Friday, eins
stærsta verslunardags ársins. Fjöl-
margar verslanir hafa auglýst tilboð
nú í vikunni og á morgun. Nokkrar
umræður hafa skapast á samfélags-
miðlum þar sem fólk óttast að missa
af veglegum tilboðum, fær eins
konar tilboðskvíða. Óttar Guð-
mundsson geðlæknir segir slíkan
kvíða vel þekktan.
„Fólki finnst eins og allir aðrir séu
að gera góð kaup og óttast að missa
af einhverjum tilboðum. Þetta
ástand fylgir oft útsölum. Þetta er
hluti af áráttu þráhyggjuástandi þar
sem ákveðin hugsun verður ráðandi
í huga einstaklingsins,“ segir Óttar.
„Í þessu tilviki er það hugsunin:
Ég er að missa af einhverju. Við-
komandi fer þá að eltast við þrá-
hyggjuna og leita uppi öll tilboð
og jafnvel kaupa einhverja hreina
dellu. Aðalmálið er að hann telur
sig vera að græða.
Eftirleikurinn er síðan venjulega
timburmenn þegar það kemur að
skuldadögum.“ – ab
Kvíði sem fylgir
oft útsölum
Óttar Guðmundsson, geðlæknir.
Fólki finnst eins og
allir séu að gera góð
kaup og óttast að missa af
einhverjum tilboðum.
2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð