Fréttablaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 18
Tjaldstæði á eyrum Núp- staðaskógs eru engu lík og sum búin einka- sturtu. MYND/ÓMB Ganga meðfram neðanverðri Núpsá er frábær upplifun, enda liggur þéttur skógurinn með- fram krókóttri ánni. MYND/TG Núpsstaðaskógur er með fegurstu stöðum á Íslandi en hann felur sig í krika milli Skeiðarárjökuls og fjalls skammt frá Lómagnúpi, sem heitir Björninn. Þarna vex sérlega fallegur birkiskógur sem teygir sig í suðri frá hlíðum Eystrafjalls norður meðfram stórbrotnu árgili Núpsár og langleiðina að heiðum sunnan Grænalóns. Þarna var skógur nýttur á fyrri tíð og villifé beitt allan ársins hring á 19. öld. Nú gengur ekkert fé í Núpsstaðaskógi, sem þykir lítt snortinn fyrir íslenskan skóg því aðfluttum trjám hefur ekki verið plantað í hann. Í þessum töfra- skógi og á sléttum eyrum sunnan hans við ársorfin gil, er sérlega fallegur gróður þar sem meðal annars bregður fyrir eyrarrós og gullmuru. Þarna eru ein- hver fallegustu, náttúrulegu tjaldstæði landsins og skarta sum þeirra snotrum fossum sem nota má til sturtubaða. Þótt gaman sé að gista í tjaldi í Núpsstaðaskógi þá má einnig heimsækja hann í langri dagsferð, enda í dag hægt að komast þangað án þess að fara yfir straumharðar jökulár. Í staðinn er þræddur jeppa- slóði af þjóðveginum inn í Skógana, sem opnaðist eftir að Súla breytti farvegi sínum í Gígjukvísl í stað Núpsár. Því þarf ekki að fara yfir sameinaða Núpsá og Súlu, en sú straumharða jökulá kallaðist Núps- vötn. Frá bílastæði á eyrunum er gengið í birki- vöxnum hlíðum meðfram krókóttri Núpsá. Smám saman blasa við klettótt Fremra og Innra Meingil og enn innar Klifið, 10 m þverhnípt bergstál. Þar verður að fikra sig upp grófa stálkeðju sem fest hefur verið í bergið til að auðvelda uppgöngu. Þegar upp er komið blasir við stórkostlegt útsýni yfir Núpsstaðaskóg og eyrarnar sunnan hans. Skammt frá er Tvílitahylur, þar sem blátær Hvítá og jökullituð Núpsá steypast ofan í sameiginlegan hyl, og haldast litir vatnsins merkilega aðskildir. Kjarnmikill skógur myndar umgjörðina um þessa tilkomumiklu fossa og upp af þeim blasa við hrikaleg Núpsárgljúfur. Sprækt göngufólk ætti að halda áfram göngunni meðfram gljúfrinu, upp í gegnum Skessutorfugljúfur, að heiðunum sunnan Grænalóns. Þar býðst stórkost- legt útsýni yfir Skeiðarárjökul að Skaftafellsfjöllum, Hrútfjallstindum og Öræfajökli. Á leiðinni heim má halda niður í Súlnadal og upp úr honum á Súlutinda, en af syðsta tindinum er einstakt útsýni yfir Skeiðarárjökul og Skeiðarár- sand. Af Súlutindum er síðan haldið niður Sniðabrekkur að tjaldstæðinu þar sem svalandi fossasturta bíður. Tvílitahylur í töfraskógi Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir og náttúruunnandi og Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari Í Tvílitahyl steypast blátær Hvítá og jökul- lituð Núpsá ofan af bröttum klettum í miðjum Núps- staðaskógi. MYND/ÓMB 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.