Fréttablaðið - 26.11.2020, Side 18
Tjaldstæði á
eyrum Núp-
staðaskógs eru
engu lík og sum
búin einka-
sturtu.
MYND/ÓMB
Ganga meðfram
neðanverðri
Núpsá er frábær
upplifun, enda
liggur þéttur
skógurinn með-
fram krókóttri
ánni. MYND/TG
Núpsstaðaskógur er með fegurstu stöðum á Íslandi en hann felur sig í krika milli Skeiðarárjökuls og fjalls skammt frá Lómagnúpi, sem heitir Björninn. Þarna vex sérlega fallegur birkiskógur sem teygir
sig í suðri frá hlíðum Eystrafjalls norður meðfram
stórbrotnu árgili Núpsár og langleiðina að heiðum
sunnan Grænalóns. Þarna var skógur nýttur á fyrri
tíð og villifé beitt allan ársins hring á 19. öld. Nú
gengur ekkert fé í Núpsstaðaskógi, sem þykir lítt
snortinn fyrir íslenskan skóg því aðfluttum trjám
hefur ekki verið plantað í hann. Í þessum töfra-
skógi og á sléttum eyrum sunnan hans við ársorfin
gil, er sérlega fallegur gróður þar sem meðal annars
bregður fyrir eyrarrós og gullmuru. Þarna eru ein-
hver fallegustu, náttúrulegu tjaldstæði landsins og
skarta sum þeirra snotrum fossum sem nota má til
sturtubaða.
Þótt gaman sé að gista í tjaldi í Núpsstaðaskógi þá
má einnig heimsækja hann í langri dagsferð, enda
í dag hægt að komast þangað án þess að fara yfir
straumharðar jökulár. Í staðinn er þræddur jeppa-
slóði af þjóðveginum inn í Skógana, sem opnaðist
eftir að Súla breytti farvegi sínum í Gígjukvísl í stað
Núpsár. Því þarf ekki að fara yfir sameinaða Núpsá
og Súlu, en sú straumharða jökulá kallaðist Núps-
vötn. Frá bílastæði á eyrunum er gengið í birki-
vöxnum hlíðum meðfram krókóttri Núpsá. Smám
saman blasa við klettótt Fremra og Innra Meingil og
enn innar Klifið, 10 m þverhnípt bergstál. Þar verður
að fikra sig upp grófa stálkeðju sem fest hefur verið í
bergið til að auðvelda uppgöngu. Þegar upp er komið
blasir við stórkostlegt útsýni yfir Núpsstaðaskóg og
eyrarnar sunnan hans. Skammt frá er Tvílitahylur,
þar sem blátær Hvítá og jökullituð Núpsá steypast
ofan í sameiginlegan hyl, og haldast litir vatnsins
merkilega aðskildir. Kjarnmikill skógur myndar
umgjörðina um þessa tilkomumiklu fossa og upp
af þeim blasa við hrikaleg Núpsárgljúfur. Sprækt
göngufólk ætti að halda áfram göngunni meðfram
gljúfrinu, upp í gegnum Skessutorfugljúfur, að
heiðunum sunnan Grænalóns. Þar býðst stórkost-
legt útsýni yfir Skeiðarárjökul að Skaftafellsfjöllum,
Hrútfjallstindum og Öræfajökli. Á leiðinni heim
má halda niður í Súlnadal og upp úr honum á
Súlutinda, en af syðsta tindinum er einstakt
útsýni yfir Skeiðarárjökul og Skeiðarár-
sand. Af Súlutindum er síðan haldið
niður Sniðabrekkur að tjaldstæðinu þar
sem svalandi fossasturta bíður.
Tvílitahylur
í töfraskógi
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Í Tvílitahyl
steypast blátær
Hvítá og jökul-
lituð Núpsá
ofan af bröttum
klettum í
miðjum Núps-
staðaskógi.
MYND/ÓMB
2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð