Fréttablaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 50
ÉG VAR OG ER SVO ÓTRÚLEGA VISS UM AÐ ÞETTA SÉ NÁKVÆMLEGA ÞAÐ SEM ÉG Á AÐ GERA Í LÍFINU AKKÚRAT ÞESSA STUNDINA, ÞANNIG AÐ ÞAÐ ER ÁKVEÐINN LÉTTIR AÐ SLEPPA TAKI AF SKÖPUNARVERKINU. SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@ frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT METSÖLULISTI EYMUNDSSON 18.11.20 - 24.11.20 1 2 5 6 7 8 109 43 Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi Bjarni Fritzson Bráðin Yrsa Sigurðardóttir Vetrarmein Ragnar Jónasson Þagnarmúr Arnaldur Indriðason Dýralíf Auður Ava Ólafsdóttir Gata mæðranna Kristín Marja Baldursdóttir Snerting Ólafur Jóhann Ólafsson Fjarvera þín er myrkur Jón Kalman Stefánsson Jól í Sumareldhúsi Flóru Jenny Colgan Fávitar Sólborg Guðbrandsdóttir Nú á dögunum kom ú r f y r st a plat a ísfirsku söngkon-unnar Salóme Katr-ínar Magnúsdóttur, Water. „Þetta er sem sagt EP-plata. Það þýðir að hún er lengri en smáskífa, styttri en breiðskífa. Hún saman- stendur af fimm lögum sem ég samdi, reyndar eru þetta fyrstu lögin sem ég hef samið,“ segir Sal- óme. Upptökur hófust sumarið 2019 og þeim lauk í vor. Það kemur fjöl- margt fólk að gerð plötunnar og segist Salóme vera því óendanlega þakklát fyrir það allt. „Ég hafði lokið f lestum upp- tökum áður en COVID skarst í leik- inn og því hafði veiran fræga aðeins áhrif á útgáfuna sjálfa, frekar en innihaldið. Upprunalega hafði ég ráðgert að platan kæmi út vorið 2020, með tilheyrandi útgáfutón- leikum og fjöri til þess að fagna henni. Þess í stað kom hún hljóð- lega á netið síðasta föstudag, 20. nóvember. Eftir á að hyggja held ég að í raun hafi það verið fullkominn tími. Ég vil nefnilega trúa því að allt sem gerist, eigi að gerast,“ segir hún. Umkringd hæfileikafólki Salóme segist fyrst og fremst fá inn- blástur frá eigin tilfinningum, fólk- inu í kringum um sig og umhverfi sínu. „Svo hlusta ég líka á ótrúlega mikið af tónlist og dreg mikinn kjark og innblástur þaðan. Til að nefna plötur sem hafa haft hvað mest áhrif á mig og mína sköpun eru til að mynda plöturnar Party og Designer eftir Aldous Harding, Milk Eyed Mender eftir Joanna Newsom, allt safnið hennar Kate Bush sem og allt safn kanadísku tónlistar- konunnar Feist, Soviet Kitsch og Begin to Hope eftir Reginu Spektor. Svo dái ég líka fullt af fólki sem er að gera tónlist í kringum mig um þess- ar mundir. Það er magnað að vera umkringd mörgu hæfileikafólki og það veitir mér kannski mestan inn- blástur af öllu þegar ég virkilega hugsa mig um,“ segir Salóme. Hún segir drauminn um að semja og gefa út eigin tónlist lengi hafa blundað í sér. „Ég vissi alltaf að einhverju marki að það væri þangað sem leið mín lægi. Ég er bara á svolítið hægu tempói og hef alltaf verið. Fyrsta lagið sem ég samdi heitir Else- where. Það læddist út úr kollinum á mér einn haustdag árið 2017. Þá var eins og stífla brysti og Water er afraksturinn.“ Tilfinningar og vatnið Salóme viðurkennir að það hafi vissulega verið örlítið stressandi að gefa loksins út sín eigin verk. „En ég hafði fengið langan tíma til þess að venjast tilhugsuninni. Ég var og er svo ótrúlega viss um að þetta sé nákvæmlega það sem ég á að gera í lífinu akkúrat þessa stundina, þannig að það er ákveð- inn léttir að sleppa taki af sköp- unarverkinu. Nú get ég byrjað að skapa meira,“ segir hún. Hún segir lögin á plötunni ná að fanga f lest allt sem hún hefur verið að upplifa og hugsa síðustu árin. „Platan er eins konar tímalína á einhvern óútskýranlegan hátt. Hún byrjar á laginu The End og endar á laginu Water sem er nýjasta lagið á plötunni og nær að binda saman allt það sem hin lögin fjalla um. Þetta er plata um tilfinningar og vatn er eins og tilfinningar að svo mörgu leyti. Vatn er alls staðar. Vatn er lífsnauðsynlegt og á sama tíma lífshættulegt. Það mótast af umhverfi sínu og umhverfið mót- ast af því. Sjórinn verður úfinn og sjórinn verður spegilsléttur.“ Stefnir á fleiri plötur Water mun koma út á vínyl á næstu vikum og þá stefnir Salóme á að efna til veislu. „Tíminn einn mun leiða í ljós hvernig því verður háttað. Ég fékk magnað listafólk til liðs við mig við að skapa umgjörðina um vínylinn en ljósmyndarinn Kata Jóhann- ess tók kápumyndina, listakonan Gabríela Friðriks gerði verk sem munu skreyta umslagið og víny- linn sjálfan og grafíski hönnuður- inn Anton Kaldal sá svo um að setja þetta allt saman og gera plötuna að vönduðum og eigulegum grip,“ segir hún. Salóme stefnir á að gefa út tónlistarmyndband við titillag plötunnar á næstunni með Kötu Jóhanness og listakonunni Moniku Kiburytė. „Svo langar mig auðvitað til þess að skipuleggja alls konar tónleika- ferðir og viðburði sem geta hjálpað fólki að heyra þessa plötu. Því ég vil að fólk heyri þessa plötu, ég held það gæti fílað hana. Og svo ætla ég að gera f leiri plötur. Fullt af þeim.“ Water er hægt að nálgast á öllum helstu streymisveitum. Vínylútgáf- an verður svo fáanleg í öllum helstu plötuverslunum innan skamms. steingerdur@frettabladid.is Léttir að sleppa taki af sköpunarverkinu Salóme Katrín viðurkennir að það hafi verið stressandi að gefa út sína fyrstu plötu, Water. Hún segir lögin mynda óútskýranlega tímalínu af því sem hún hefur upplifað og hugsað um síðustu árin. Upptökum á Water var lokið áður en heimsfaraldurinn skall á en hann tafði þó útgáfuna. MYND/KATA JÓHANNESS 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R40 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.