Fréttablaðið - 26.11.2020, Síða 28
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Brúðarkjóll Díönu var engin smásmíði á sínum tíma og framleiðendur The Crown
vilja láta hlutina ganga eðlilega
fyrir sig. Þannig tók 600 klukku-
stundir að sauma eftirlíkingu af
kjólnum. Þrjár manneskjur þurfti
til að sauma kjólinn sem var fjóra
mánuði í vinnslu. Þrátt fyrir allan
þennan tíma sem tók að gera
kjólinn er hann aðeins sýndur í
nokkrar sekúndur í þættinum.
Brúðkaup Díönu og Karls Breta-
prins kemur fyrir í fjórðu þáttaröð
The Crown.
Brúðarkjóll Díönu var umdeild-
ur á sínum tíma. Sumir kölluðu
hann ofskreytta rjómatertu. Kjóll-
inn var úr fínasta silki, skreyttur
dýrindis blúndum, perlum og
pallíettum. Hann kostaði á sínum
tíma á aðra milljón króna, sem á
núvirði hefur meira en tvöfaldast.
Díana og Karl giftu sig í Dómkirkju
heilags Páls í London 29. júlí 1981.
Enginn brúðarkjóll þykir merki-
legri en sá er Díana klæddist á
brúðkaupsdaginn.
Leikkonan Emma Corrin fer
með hlutverk Díönu og hún
klædd ist kjólnum góða sem hann-
aður var af Amy Roberts, búninga-
hönnuði þáttanna, í þættinum. Til
að hægt væri að gera kjólinn sem
líkastan þeim sem Díana klæddist
fékk Amy góð ráð frá uppruna-
legum hönnuðum, þeim David
og Elizabeth Emanuel. Blúndur
voru keyptar hjá sama framleið-
anda. Díana prinsessa valdi sjálf
hönnuðina fyrir sinn brúðarkjól.
Emma Corrin þurfti að máta
Netflix-kjólinn fimm sinnum áður
en hann var kláraður. Slörið er
lengra en hjá Díönu, eða alls níu
metrar. Um 95 metrar af efni fóru
í kjólinn og 100 metrar af blúndu.
Synir Díönu, prinsarnir Harry
og Vilhjálmur, erfðu kjól móður
sinnar sem er vel geymdur.
Þess má geta að búningarnir í
þáttunum eru allir mjög vel gerðir
og hönnuðurinn kynnti sér stíl og
persónuleika þeirra persóna sem
koma fram í þeim. Amy Roberts
segist hafa haft sérstaklega gaman
af því að hanna föt fyrir Margaret
Thatcher, en hún var ávallt mjög
smekklega klædd og hugsaði
mikið um útlitið. Eftir því var
tekið að Thatcher var oft bláklædd
en sá litur þykir vera merki um
völd. Hún gekk gjarnan í skyrtum
með slaufu og hárið var alltaf
fullkomlega uppsett. Áhorfendur
ættu að gefa búningum þáttanna
sérstakan gaum.
600 tímar fóru í að
sauma brúðarkjólinn
Þættirnir The Crown á Netflix eiga sér marga aðdáendur.
Ekkert er til sparað við gerð þáttanna. Nú er það brúðar-
kjóll Díönu sem vekur einna mesta athygli áhorfenda.
Brúðarkjóllinn sem Emma Corrin klæðist í þáttunum er engin smásmíði.
Slörið er meira að segja lengra en á kjól Díönu prinsessu. MYND/NETFLIX
Sigríður fylgist vel með nýjum straumum og stefnum í hár-tískunni en hún á hárgreiðslu-
stofuna Zenz í Reykjavík. Hún segir
að mikil breidd sé í háralitum þessa
dagana. „Það er mjög vinsælt að
leika sér með skæra liti, til dæmis
bláan, grænan, bleikan og vínrauð-
an, og mér finnst fólk almennt vera
til í að prófa eitthvað alveg nýtt.
Við köllum þessa liti Crazy Colors,
enda eru þeir mjög áberandi. Sumir
vilja lita allt hárið en aðrir láta
nægja að lita toppinn eða nokkra
lokka við andlitið,“ segir Sigríður og
bætir við að núna sé meira í tísku
en áður að vera með stutt hár, sér-
staklega hjá yngri konum. „Þær eru
að fara úr þessu síða, ljósa hári yfir
í styttra hár og jafnvel tjásuklipp-
ingar. Svo er að verða mjög vinsælt
að vera með sítt að aftan og stuttan
topp. Í raun er mikil hreyfing á
hártískunni núna og margir sækja
innblástur til níunda áratugarins.
Mikið er um að fólk vilji ramma inn
andlitið og þá koma styttri toppar
og styttur sterkar inn.“
Kaldir og hlýir tónar í bland
Vinsælt er að vera með skyggingu í
hárrótinni en það gefur háralitnum
vissa dýpt. „Við fáum líka marga til
okkar sem vilja fá kalda tóna í hárið
en svo eru líka ófáir sem eru hrifnir
af djúpum litum, til dæmis kopar-
brúnum. Síðan fer aldrei úr tísku að
vera með náttúrulegt og glansandi
hár, sem geislar af heilbrigði,“ segir
Sigríður, sem lumar á leyniráði til
að svo megi verða.
„Ég mæli með að fólk noti
eplaedik í hárið á sér heima. Þessar
miklu veðrabreytingar sem fylgja
vetrartímanum geta þurrkað hárið
og margir fá kláða í hársvörðinn.
Þá er gott að segja 1/3 edik á móti
2/3 af vatni og hella yfir hárið, láta
það bíða í 2-3 mínútur, skola svo úr
og setja næringu í það. Þetta er líka
mjög gott fyrir alla sem eru með
einhver vandamál í hársverðinum.
Svo er betra að nota sléttujárn og
hárblásara sparlega. Það fer ekki
vel með hárið að slétta það og blása
daglega, það verður þurrt og jafnvel
líflaust. Hárið þarfnast raka, rétt
eins og húðin, og því er gott að nota
djúpnæringu reglulega,“ segir Sig-
ríður. „Hjá Zenz fást umhverfis- og
eiturefnalausar hárvörur, sem eru
hvorki með silkoni né parabenum,
en stofan er hluti af Zenz-keðjunni
sem frá Danmörku,“ upplýsir hún.
Áhrif frá níunda áratugnum
Sigríður segir greinilegt að TikTok
og Pinterest hafi áhrif á hártískuna.
„Ég fæ oft ungt fólk með myndir
og jafnvel myndbönd af þessum
miðlum til að sýna hvernig klipp-
ingu og lit það vill fá. Það er stutt
síðan viðskiptavinur kom með
mynd af Meg Ryan, frá því á níunda
áratugnum, og annar með mynd
af Winonu Ryder frá því hún lék í
Beetlejuice og vildi eins klippingu.
Það er gaman að því hvernig tískan
fer í hringi,“ segir Sigríður.
Sítt að aftan aftur í tísku
Sigríður Ragna Kristjánsdóttir hárgreiðslumeistari segir hártískuna í vetur einkennast af djúpum,
hlýjum litum í bland við kaldari tóna. Unga kynslóðin er óhrædd við að leika sér með skæra liti .
Sigríður lumar á leynitrixi svo hárið
verði fallegt og glansandi.
Mjög vinsælt er að vera með sítt að
aftan og stuttan topp ásamt mis-
munandi litatónum. MYNDIR/AÐSENDAR
Skærir litir eru mjög áberandi
þessa dagana og margir koma með
myndir af TikTok og Instagram til að
fá draumalitinn og -klippinguna.
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R