Fréttablaðið - 26.11.2020, Qupperneq 30
Hvað einkennir heimsborgina
London þegar kemur að tísku?
Hún hefur á sér heimsborgara-
legan stíl, rétt eins og borgin er sjálf,
en það fer algjörlega eftir því hvar
maður er staddur innan hennar, allt
frá „street style“ yfir í „city chic“.
Eru enskar konur meðvitaðar um
tískuna og vel til hafðar yfirleitt?
Já, þær hugsa vel um sig og vilja
vera smart til fara.
Hvað gætu enskar konur lært af
þeim íslensku í tengslum við tísku?
Að þora. Það þurfa ekki allir að
vera alveg eins.
Hvaða bresku konur dáirðu mest
í tískulegu samhengi?
Mér finnst Vivienne Westwood
mjög skemmtileg. Hún býr í sama
hverfi og ég, er alltaf svo töff og ég
sé hana oft hjólandi. Kate Moss var
líka alltaf mjög kúl en sést sjaldnar
eftir að hún hætti að vera mikið
úti á lífinu. Alexa Chung er súper
flott í tauinu, Díana prinsessa var
æði, ég dýrka Stellu McCartney og
Marianne Faithful er flott í sam-
henginu rokk og ról.
Hverju klæðast Lundúnadömur?
Trendið hjá enskum konum
er gallabuxur, parkaúlpa og
flottir strigaskór eða stígvél. Það
fer reyndar eftir því hvar maður
er staddur í borginni. Þar sem ég
bý mæta mæður með börn sín
í skólann í leikfimifötunum og
hlaupa þaðan beint í leikfimi og
vinnuna á eftir. Ætli flestir séu ekki
í þess konar klæðnaði núna út af
heimsfaraldrinum, í það minnsta
neðri parturinn. Ég hef allavega séð
fólk úr fínni hverfum borgarinnar
og sem er vanalega mjög flott til
fara vera bara á nærbuxunum við
fína skyrtu á zoom-fundum.
Hver er þinn eftirlætis hönnuður í
Lundúnum?
Mér finnst Henry Holland æðis-
legur. Mikið um liti og munstur og
hann er bara súper svalur.
Leitastu við að kaupa þér breskan
tískuvarning?
Nei, ég er frekar evrópsk í
fatainnkaupum, heillast af hinni
frönsku Isabel Marant, dönskum
fatamerkjum, Anine Bing og
Stinu Goyard, og svo „high street“
merkjunum Zara og H&M. Jú, ekki
má gleyma tískuhúsinu Rixo. Þar
eru tvær enskar stelpur með eigin
hönnun og ég hef keypt mikið af
þeim. Rixo er frábær stoppistöð
ef maður er á leið í partí. Annað
breskt fyrirtæki er Perfect Moment,
með einn alflottasta skíðafatnað
sem ég hef séð, en hann er fokdýr
þannig að maður kaupir hann ekki
á hverjum degi.
Eru Lundúnabúar á eftir eða
undan Íslendingum þegar kemur að
tísku?
Það er erfitt að segja. Lundúna-
búar eiga kannski auðveldara með
að nálgast tískuvarning fyrr og
fá hann á betra verði. Mér finnst
Íslendingar annars mjög fljótir að
taka upp trend og þegar ég kem
heim finnst mér fólk almennt flott
til fara. En það er alveg á hreinu að
Íslendingar eru langt á undan sinni
samtíð með tvennt: Það er klassíska
lopapeysan sem er algjörlega að slá
í gegn í Lundúnum nú og sokkar í
sandölum! Ég er aðeins að reyna
að koma því lúkki á hérna megin
við hafið en fæ enn sem komið er
bara skrýtið augnaráð. Held að mitt
hverfi sé ekki tilbúið fyrir sokka og
inniskó.
Hvað hafa enskar konur kennt
þér í sambandi við tísku og útlit?
Það er að halda sér mjög vel til,
fara reglulega í neglur, litun og
plokkun, og brasilískt vax, nei, ég
grínast nú með það síðastnefnda.
Ætli það sé ekki enn og aftur að
tískuvarningur hér úti er ekki eins
dýr og heima. Fólk getur frekar
leyft sér að tolla í tískunni.
Hvaða búðir eru í uppáhaldi hjá
þér í tískuborginni London?
Í dálæti eru Selfridges, Libertys
og Harrods, ekki bara vegna tísku-
varningsins heldur líka bygg-
inganna og upplifunarinnar. Það
er ákveðin stemning að labba inn
í þessar búðir. Svo eru mjög flottar
litlar tískubúðir í London, svo-
kallaðar „boutiques“, þar á meðal
Relik sem selur „vintage“ fatnað og
fylgihluti, The West Village í Nott-
hing Hill-hverfinu þar sem ég vann
endur fyrir löngu, og Pom sem er
gullfalleg, lítil tískubúð í Wands-
worth.
Fylgistu með enskum áhrifa-
völdum þegar kemur trendi?
Já, ég er svo heppin að ein vin-
kvenna minna, Emma Gordon á
MrsstylistLDN er alltaf til staðar
þegar ég þarf innblástur. Bella
Freud er líka svöl, ég elska stíl Lauru
Bailey og Pandora Sykes er guð-
dómlega flott.
Hefurðu tileinkað þér sitthvað
enskt í eigin útliti og stíl?
Já, ég fer reglulega í neglur, sem
eru reyndar ekki sjón að sjá í dag,
því það er allt lokað út af veirunni.
Ég nota ekki andlitsfarða dagsdag-
lega heldur gott andlitskrem með
sólarvörn, maskara og augnblýant.
Ég veit ekki hvort það sé endilega
enskt en mér finnst skemmtilegast
að mixa saman „high end“ og „high
street“. Að vera í einhverju gæjalegu
frá Zöru, í Gucci-strigaskóm eða
Isabel Marant-stígvélum og með
„vintage“ nælu. Ég ætlaði svo að
tileinka mér silkislæðu um höfuðið,
eins og sjálf Bretadrottning er
þekkt fyrir, en það er nýjasta tískan
hér út af Crown-sjónvarpsseríunni.
Það mun þó ekki gerast og fer mér
alveg agalega illa.
Hvernig verður jólakjóllinn í ár?
Það verður sennilega ekki jóla-
kjóll heldur jakkaföt og eitthvað
með glysdoppum, jafnvel málm-
áferð.
Kemurðu til Íslands um jólin?
Nei, því miður. Jólin verða bara
kósí heima í London í ár. Við erum
yfirleitt öll saman, börnin hans
Jamies koma yfir og mamma
þeirra. Hefðin er yfirleitt sú að
annað hvort erum við hér heima
eða förum út að borða jólamatinn.
Hér eru jólapakkarnir opnaðir
að morgni jóladags en ég fæ sem
betur fer að halda í fáeinar gamlar
hefðir heiman frá Íslandi. Alltaf
þegar klukkan slær sex á aðfanga-
dagskvöld og kirkjuklukkurnar
hringja fer ég að gráta, en svo gleðst
ég aftur þegar ég set aspassúpuna á
borðið og fæ mér malt og appelsín.
Krakkarnir fá líka alltaf að opna
einn pakka frá Íslandi á aðfanga-
dagskvöld.
Hvað er annars að frétta af þér úr
Lundúnaborg?
Allt gott. Ég er á fullu að setja
saman plötu sem ég ætla að gefa
út á nýárinu. Ég er rosalega ánægð
með hana eins og komið er. Þetta
eru ný og gömul lög sem ekki hafa
heyrst áður. Vonandi næ ég bara
að losna við hæsið úr hálsinum svo
ég nái að syngja öll lögin áður en
desember er úti.
En það er alveg á
hreinu að Íslend-
ingar eru langt á undan
sinni samtíð með tvennt
þegar kemur að tísku:
Það er lopapeysan sem
er nú algjörlega að slá í
gegn í London og sokkar
í sandölum!
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
London ekki tilbúin í
sokka við sandala
Heimsdaman Heiðrún Anna Björnsdóttir segist ekki
komast upp með að fylgja nýjasta tískuæðinu í London,
sem er slæða að hætti Elísabetar Englandsdrottningar.
Heiðrúnu finnst gaman að tvinna
saman high street og high end stíl.
Heiðrún Anna leggur nú lokahönd á nýja plötu. MYNDIR/VENETIA CURTIS
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir
Ruth Bergsdóttir markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 694 4103/ ruth@frettabladid.is
BÓKAJÓL
Veglegt sérblað Fréttablaðsins um bækur
kemur út 11. desember nk.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R