Fréttablaðið - 26.11.2020, Side 34
Þetta er leikmaður
sem var í sérstöku
uppáhaldi hjá mér og að
mínu mati er hann besti
knattspyrnu-
maður sög-
unnar.
Arnór
Guðjohnsen
2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R24 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
FÓTBOLTI Knattspyrnuheimurinn
var sleginn þegar fregnir bárust af
því að argentínska knattspyrnugoð-
sögnin Diego Armando Maradona
hefði andast í gær, sextugur að aldri.
Maradona var í sérstöku uppáhaldi
hjá Arnóri Guðjohnsen, fyrrverandi
landsliðsmanni í knattspyrnu, en
leiðir þeirra lágu saman nokkrum
sinnum á æviskeiði Maradona.
„Það er mikið áfall að heyra þessi
tíðindi og afar sorglegt. Þetta er
leikmaður sem var í sérstöku uppá-
haldi hjá mér og að mínu mati er
hann besti knattspyrnumaður
sögunnar.
Hann var náttúruundur í knatt-
spyrnunni og það var unun bæði að
sjá hann spila og njóta þess heiðurs
að vera inni á sama velli og hann.
Maradona var listilega góður með
boltann, en auk þess að geta skapað
færi fyrir sjálfan sig gerði hann sam-
herja sína betri, sem er frábær eigin-
leiki að búa yfir.
Fyrsta skipti sem ég varð vitni að
knattspyrnusnilli hans var þegar
ég var viðstaddur leik Argentínu
við Holland í Bern í Sviss. Hann
var þá ungur leikmaður sem var að
brjótast fram á sjónarsviðið. Þarna
var hann tæplega tvítugur og það
var augljóst að þarna var goðsögn
að fæðast,“ segir Arnór í samtali við
Fréttablaðið um Maradona.
„Þegar ég var nýkominn til And-
erlecht í Belgíu árið 1983 spiluðum
við boðsleik við Barcelona þegar
ný stúka var vígð á vellinum okkar.
Maradona spilaði þá með Barcelona
í þeim leik og það sást bersýnilega
þegar maður var á sama velli og
hann hversu einstakur leikmaður
hann var.
Ég sá hann svo sex árum síðar
þegar ég mætti á leik Napoli og
Bayern München í undanúrslitum í
Evrópukeppni félagsliða. Þá tók ég
einna helst eftir því hvernig hann
hitaði upp. Hann rölti inn á völlinn
skömmu fyrir leik, hélt boltanum á
lofti og tók eitt víti.
Þegar út í leikinn var komið var
hann svo langbestur á vellinum og
fíf laði leikmenn Bayern München
algerlega upp úr skónum. Samvinna
hans og Careca í sóknarlínunni var
algerlega frábær og hann mataði
hann með geggjuðum sendingum
eftir einleiki sína. Það eru forrétt-
indi að hafa náð að spila á móti
honum og sjá hann leika listir sínar
með berum augum,“ segir hann.
„Ég hitti hann svo fyrir leik
Íslands og Argentínu á heimsmeist-
aramótinu í Rússlandi árið 2018. Þá
spjallaði ég við hann í boðssal fyrir
leikinn og það fór bara vel á með
okkur. Hann var kurteis og þægileg-
ur í samskiptum sínum við mig en
við rifjuðum upp þegar það stóð til
að Maradona tæki við liði einhvers
staðar á Arabíuskaganum og það
voru þreifingar um að Eiður Smári
myndi ljúka ferlinum þar undir
hans stjórn. Það var gaman að hitta
hann þarna í Moskvu,“ segir Arnór
um kynni sín af honum utan vallar.
Bjarni Felixson, fyrrverandi
íþróttafréttamaður hjá RÚV, lýsti
fjölmörgum leikjum sem Maradona
spilaði á ferli sínum. Bjarni á hlýjar
minningar af knattspyrnuferli arg-
entínska knattspyrnusnillingsins.
„Ég fylgdist með honum á heims-
meistaramótunum sem við vorum
að sýna frá og hann var stórkostleg-
ur fótboltamaður. Hann gat unnið
leiki upp á eigin spýtur eins og hann
sýndi hvað eftir annað. Við sýndum
líka leiki hjá Napoli þar sem hann
gerði frábæra hluti. Hann er einn
af bestu knattspyrnumönnum
allra tíma,“ sagði Bjarni Felixson,
fyrrum landsliðsmaður í fótbolta og
síðar íþróttafréttamaður til margra
ára, aðspurður út í feril Maradona.
hjorvaro@frettabladid.is
SPORT
KÖRFUBOLTI Löng vegferð karla-
landsliðsins í körfubolta í undan-
keppninni fyrir HM 2023 hefst
á ný í kvöld, þegar Ísland mætir
Lúxemborg í Slóvakíu. Þetta er fyrri
leikur íslenska liðsins af tveimur í
þessu landsleikjaverkefni og fara
þeir fram í „búbblu” í höfuðborg
Slóvakíu. Seinna í dag mætast Sló-
vakía og Kósovó í sama riðli en
tvö lið fara áfram á næsta stig for-
keppninnar fyrir undankeppnina
fyrir HM 2023.
Þetta verður 38. viðureign Íslands
og Lúxemborg og hafa Íslendingar
fagnað sigri í 32 leikjum af 37 til
þessa. Liðin mættust fyrst árið
1975 en hafa reglulega mæst á Smá-
þjóðaleikunum undanfarin ár.
Liðin mættust síðast árið 2019 þegar
Lúxemborg vann tíu stiga sigur.
Martin Hermannsson er ekki
með íslenska liðinu vegna verk-
efna með Valencia í EuroLeague.
Þá greindist Haukur Helgi Páls-
son, leikmaður Andorra á Spáni,
með kórónaveiruna í Slóvakíu og
verður hann þar af leiðandi fjarri
góðu gamni í þessum leik. – kpt
Forkeppni HM
heldur áfram
Hörður Axel leikur í dag sinn 85.
leik fyrir Ísland. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
FÓTBOLTI Íslenska kvennalandsliðið
í knattspyrnu mætir Slóvakíu í afar
mikilvægum leik ytra í dag, þar sem
sigur heldur draumnum á lífi um
beint sæti á Evrópumótinu í knatt-
spyrnu sem fer fram árið 2022. Um
leið tryggir sigur stelpunum okkar
minnst annað sætið í riðlinum og
um leið sæti í umspili sex liða um
þrjú sæti á EM, sem fer fram í Eng-
landi sumarið 2022. Jafntefli myndi
svo gott sem tryggja annað sætið
um leið fyrir lokaumferðina þegar
Slóvakar heimsækja Svía en þjálfari
íslenska liðsins, Jón Þór Hauksson,
hafði orð á því á dögunum að mark-
miðið fyrir undankeppnina hefði
verið að komast beint inn í loka-
keppnina, með því að fá að minnsta
kosti stig gegn Svíum og vinna rest.
Þetta verður fjórða viðureign
liðanna, fimm árum eftir þá fyrstu
og hafa íslensku stelpurnar alltaf
fagnað sigri til þessa. Síðast mættust
liðin á Laugardalsvelli síðastliðið
haust þar sem Ísland vann 1-0 sigur
með marki frá Elínu Mettu Jensen
um miðbik seinni hálfleiks. Í leikn-
um gekk leikskipulag Slóvaka um
að spila fast fyrir og verja stigið inn
í seinni hálfleik, þar til Elín Metta
braut ísinn. Það reyndist eina mark
leiksins þó að Slóvakar hafi fengið
færi til að stela stigi undir lokin.
Slóvakía eygir enn veika von um
að komast í umspilið með sigri á
Íslandi og með því að ná betri úrslit-
um en Íslendingar í lokaumferðinni
þegar stelpurnar okkar heimsækja
Ungverja, en Ísland gerir út um
vonir Slóvaka með sigri. Fanndís
Friðriksdóttir sem byrjaði leikinn
gegn Slóvökum á Laugardalsvelli
segir að það verði áhugavert að
sjá leikskipulag Slóvaka í kvöld og
hvort að Slóvakar hafi trú á því að
þær geti komist í umspilið með sigri
á Íslandi og Svíþjóð.
„Ég á von á því að þetta verði erf-
iður leikur. Það er alltaf erfitt að
spila leiki sem maður á að vinna
sem verjast aftarlega og það skiptir
öllu að ná að brjóta ísinn snemma.
Þær reyndu svolítið að pakka í vörn
og verja stigið á Laugardalsvelli og
fyrir fram á maður von á því að þær
leiti í sama skipulag til að byrja
með í dag.
Maður veit ekki hversu bjart-
sýnar þær eru fyrir þetta verkefni.
Þær eiga enn möguleika á því að
ná öðru sæti, ef þær ná úrslitum í
næstu tveimur leikjum. Fyrir fram
er það ólíklegt og maður veit ekki
hversu mikla trú þær hafa á því,“
segir Fanndís og tekur undir að
það gæti hentað íslenska liðinu vel
ef Slóvakar ætli að sækja.
„Ef þær koma inn í leikinn með
það sem markmið að sækja á
íslenska liðið gæti það nýst okkur
vel. Ef framlínan okkar, sem hefur
mikinn hraða, hittir á góðan dag
gæti plássið nýst okkur. Þegar lið
sitja svona nærðu ekki að nýta
hraðann jafn vel, þá þarf að nota
klókindi og við erum með nóg af
klókum leikmönnum í liðinu.“
Íslenska liðið er í harðri baráttu
við eitt af stigahæstu liðunum í
öðru sætinu í undankeppninni og
það kemur til greina að markatalan
telji.
„Ef það tekst að brjóta ísinn
snemma og koma inn marki eiga
varnarsinnuð lið það til að brotna.
Því lengur sem þær halda hreinu,
því meiri kraft fá þær. Ef stelpurnar
ná marki snemma gæti þetta endað
á stærri sigri, en ef það er bið eftir
fyrsta markinu gæti þetta orðið
spennandi allt til loka. Það yrði frá-
bært að ná að skora nokkur mörk
því markatalan gæti skipt máli
þegar riðlakeppninni lýkur.“
Fanndís, sem er ein af leikja-
hæstu leikmönnum kvennalands-
liðsins frá upphafi, er fjarverandi í
dag enda á hún von á fyrsta barni
sínu á nýju ári. Hún hefur verið við-
loðandi nokkra leikmenn úr lands-
liðinu og segir þær allar einblína á
sama markmið.
„Ég hef umgengist landsliðskon-
urnar í Valsliðinu undanfarnar
vikur og þær eru allar sammála
um að krafan sé að komast á EM í
fjórða skiptið. Úr sófanum set ég
sömu kröfu, að við komumst á EM.
Ég ætla að vera með í því,“ segir
Fanndís hlæjandi og bætir við:
„Það er mjög skrýtið að vera á
hliðarlínunni núna, en ég minnti
þær á að njóta þess að spila þessa
leiki. Ég held að íslenska þjóðin
hefði mjög gott af því að við kæm-
umst á EM,“ segir Fanndís létt að
lokum. – kpt
Slóvakar eru líklegir til að freista þess að verja stigið
Ísland sækir Slóvakíu heim í dag í undankeppni EM. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ísland mætir Lúxemborg
í undankeppni HM 2023 í
dag. Martin Hermannsson
og Haukur Helgi Pálsson
leika ekki með íslenska
liðinu í þessum leik.
Einn sá allra besti fallinn frá
Diego Armando Maradona andaðist í gær sextugur að aldri. Maradona er besti leikmaður sögunnar að
mati Arnórs Guðjohnsen og Bjarni Felixson á margar góðar minningar af þessari knattspyrnugoðsögn.
Diego Armando Maradona var listamaður með boltann og litríkur karakter utan vallar. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA