Fréttablaðið - 26.11.2020, Page 36
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts
Valgarðs Baldvinssonar
fyrrverandi bæjarritara á Akureyri.
Útförin hefur farið fram.
Sigrún Björgvinsdóttir
Eydís Valgarðsdóttir
Baldvin Valgarðsson
og fjölskyldur.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
bróðir, mágur og afi,
Viðar Norðfjörð
Guðbjartsson
lést á líknardeildinni í Kópavogi
22. nóvember. Útför tilkynnt síðar.
Fanný Norðfjörð Viðarsdóttir Konráð Ragnar Sveinsson
Adam Norðfjörð Viðarsson Ásdís Ragna Óskarsdóttir
Simon Norðfjörð Viðarsson Margrét Dís Yeoman
Þorleifur Guðbjartsson
Bjarni Geir Guðbjartsson Kristín Ósk Gestsdóttir
Elín Guðbjartsdóttir Marten Ingi Lövdahl
Guðbjartur Guðbjartsson Kazi Pátá
Signý Guðbjartsdóttir Sigurður Örn Reynisson
Elísabet Röfn Konráðsdóttir
Okkar heitt elskaði og besti vinur,
Gunnar Örn Heimisson
Maríuson
Kaupmannahöfn,
er látinn.
Minningarathöfn verður auglýst síðar.
Sigríður María Gunnarsdóttir Weiss
María Magnúsdóttir
Heimir Jón Gunnarsson Sari Paavola
Tinna Heimisdóttir Þorvaldur Guðjónsson
Þorvaldur Jón Tinnu Þorvaldsson
Matthías Örn Tinnu Þorvaldsson
Sigríður Samúelsdóttir
Ástkær frænka okkar,
Þorgerður Sigurðardóttir
(Dadda)
Skúlagötu 20, Reykjavík,
áður Hverfisgötu 71,
lést á Droplaugarstöðum sunnudaginn
1. nóvember 2020. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey. Aðstandendur vilja færa starfsfólki
Droplaugarstaða þakkir fyrir góða umönnun.
Sigurður Jóhannsson
Halldór Ágúst Jóhannsson
Sigurjón Hannesson Ragnhildur Beatrice
Erlingsdóttir
Grímheiður Freyja Jóhannsdóttir Arnar Friðriksson
Grímur Hannesson Guðrún Norðdahl
Sigurður Hannesson Lóa María Magnúsdóttir
Ragnhildur Dagmær Hannesdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Þór Jóhannsson
fyrrverandi framkvæmdastjóri,
sem lést 2. nóvember, verður
jarðsettur frá Lindakirkju
föstudaginn 27. nóvember kl. 13.
Vegna samkomutakmarkana geta einungis nánustu
aðstandendur verið viðstaddir en streymt verður frá
athöfninni á vefslóðinni
beint.is/streymi/jonthor271120.
Starfsfólki hjúkrunarheimilisins Sóltúns eru færðar
sérstakar þakkir fyrir hlýja umönnun. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á Líknarsjóð Oddfellowreglunnar
eða Björgunarsveitina Sveinunga á Borgarfirði eystra.
Þorleifur Þór Jónsson Þórdís H. Pálsdóttir
Stefanía Gyða Jónsdóttir
Jóhann Þór Jónsson Þórunn Marinósdóttir
Bergrún Svava Jónsdóttir Ragnar Baldursson
barnabörn og barnabarnabarn.
Þau búa í svonefndu Ingi-marshúsi á hinu fornfræga setri Egilsstöðum á Völlum, Herdís Magna, Sigbjörn Þór, maður hennar, sem er alltaf kallaður Diddi, og strákarnir
þeirra tveir, Birnir Hrafn fimm ára og
Pálmar Flóki tveggja ára. Einnig deila
þau þaki með tíkinni sinni Maríu og
aldraðri læðu sem Herdís Magna segir
þau hafa ættleitt úr Vesturbænum í
Reykjavík á námsárum þeirra Didda
í borginni. „Hún er alltaf bara kölluð
Kisi,“ segir hún brosandi.
Bóndinn blundaði í henni
Bústofninn er stór. Mjólkurkýrnar 73
talsins en þegar allt er talið eru um 300
nautgripir á bænum. Auk þess nokkrir
hestar, kindur, hænur og endur. Herdís
segir þau vera fjögur til sjö sem vinni
á búinu. „Fjöldinn fer eftir árstíma og
verkefnum, það bætist í hópinn á sumr-
in þegar kaffihúsið Fjóshornið er opið og
háannatími er í heyskap og fóðuröflun.“
Hún er af fimmtu kynslóð sinnar
ættar sem býr á Egilsstöðum. Skyldi hún
alltaf hafa ætlað að verða bóndi? „Nei,
ég uppgötvaði það bara snemma á þrí-
tugsaldri en held að það hafi þó alltaf
blundað undir niðri. Það mótar mann
að alast upp á svona fallegum stað í
mikilli tengingu við skepnur og landið
og ég vil meina að sveitin hafi togað mig
aftur heim.“
Starf bóndans er fjölbreytt, að sögn
Herdísar Mögnu. „Það er alls engin 8-16
vinna. Flestir dagar byrja á morgunfjósi
og enda á kvöldfjósi. Þar á milli fara
verkin eftir árstíðum, þau geta verið
almennt viðhald á húsum og vélum,
umhirða skepnanna, skipulags- og skrif-
stofuvinna, heyskapur eða jarðrækt.
Við lítum eftir skepnunum áður en við
förum að sofa og förum út á nóttunni
ef með þarf, til dæmis að aðstoða kýr í
burði.“
Kemst minna í útiverk
Nýlega var Herdís Magna kosin for-
maður Landssambands kúabænda,
fyrst kvenna, og hlaut yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða. Hún heitir heldur
ekkert venjulegu nafni – en kveðst ekki
hafa hugleitt hvort það hafi hjálpað
henni. „Ég vona að ég hafi verið kjörin
vegna starfa minna fremur en nafns eða
kyns.“
Hún segir krefjandi verkefni fram
undan hjá LK, meðal þeirra sé að
tryggja að upprunamerkingar matvæla
séu skýrar, þannig að fólk geti valið
íslenskar vörur af öryggi, hvort sem er
í verslunum eða á veitingastöðum. En
gaman segir hún að kynnast öllu því
frábæra fólki sem starfi við kúabúskap.
„Alla jafna hafa talsvert margir bændur
og aðrir sem tengjast greininni sam-
band við mig daglega. Dagskráin sem
ég lýsti áðan hefur því raskast dálítið
hjá mér eftir að ég varð formaður LK,
ég kemst minna í útiverk en áður. Reyni
samt að komast í fjós á morgnana en
tek svo fundi og sinni öðrum verkefn-
um fyrir sambandið þar til við náum í
strákana á leikskólann. Annað okkar
hjóna fer í kvöldfjós. Ég á gott bakland í
fjölskyldunni minni sem gerir mér þetta
auðveldara.“ gun@frettabladid.is
Það mótar mann að alast
upp á svona fallegum stað
Herdís Magna Gunnarsdóttir, bóndi á Egilsstöðum, er fyrsta konan til að gegna embætti
formanns Landssambands kúabænda. Hún sigraði kosningu um það fyrr í þessum mán-
uði á aðalfundi LK með miklum yfirburðum og nýtur bæði þess starfs og búskaparins.
Herdís Magna kann vel við sig hjá kúnum en kveðst líka njóta þess að fara í göngur
með Didda og strákunum. Svo eru húsaframkvæmdir, innanhússhönnun og matseld
á vinsældalistanum, hún veit fátt betra en að bjóða góðum vinum í mat. MYND/AÐSEND
Fjöldinn fer eftir árstíma og
verkefnum, það bætist í hópinn
á sumrin þegar kaffihúsið Fjós-
hornið er opið og háannatími er
í heyskap og fóðuröflun.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigurást Sigurjónsdóttir
Álfheimum 68,
lést 21. nóvember 2020.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sigurjón Hannesson Ragnhildur B. Erlingsdóttir
Grímur Hannesson Guðrún Norðdahl
Sigurður Hannesson Lóa María Magnúsdóttir
Ragnhildur D. Hannesdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R26 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT