Fréttablaðið - 26.11.2020, Page 56
TAKK
LAMBAKJÖT
FYRIR SAMFYLGDINA Í 1146 ÁR
NÁTTÚRULEGA LJÚFFENGT
ÍSLENSKT LAMBAKJÖT – ENGU LÍKT
Íslenskt lambakjöt er engu líkt. Þar spilar saman aldalöng ræktunaraðferð íslenskra
bænda og óspillt íslensk náttúra þar sem hreint vatn, iðjagrænt gras, lyng, ber og
villtar kryddjurtir eins og rauðsmári, blóðberg, stör, víðir, gullintoppa og hvönn eru
á matseðlinum. Útkoman er lungamjúkt kjöt með fínni áferð sem er náttúrulega
ríkt af Omega-3 og járni, sjálfkryddað af íslenskri náttúru.
Njótum þess besta sem við eigum, og borðum íslenskt – náttúrulega.
Kjötið
1 lambahryggur
(búinn að hanga í minnst 5
daga)
salt og pipar
olía og smjör
þurrkuð aðalbláber
þurrkað bláberjalyng
þurrkað blóðberg
villt einiber
Mælt er með því að geyma
lambahrygginn á grind í kæli í 1
viku áður en hann er eldaður.
Úrbeinið hrygginn og snyrtið
tuna. Kryddið með salti og pipar
og steikið á funheitri pönnu með
smá olíu og smjöri í eina til tvær
mínútur á hvorri hlið. Setjið
hryggvöðvann á ofnplötu og
kryddið með jöfnum hlutföllum
af þurrkuðum aðalbláberjum,
bláberjalyngi, blóðbergi og
einiberjum. Eldið kjötið í ofni við
160°C í 4–6 mínútur. Takið úr
ofninum og látið kjötið hvíla
undir álpappír í 15 mínútur.
Lambahryggvöðvinn á að vera
58°C í kjarnahita sem er medium
rare þegar hann er tilbúinn.
Seljurót
2 stk. seljurót
100 g smjör (sem er búið að
brúna)
10 g salt
sítrónusafi
60 ml eplaedik
10 g salt
200 ml vatn
15 g sykur
60 ml heslihnetuolía
1 búnt steinselja
Vefjið seljurótinni í álpappír
ásamt salti og bakið í ofni við
200°C í tvær klukkustundir. Takið
úr ofninum og afhýðið. Setjið eina
seljurót í blandara og maukið.
Bætið helmingnum af brúnaða
smjörinu út í og kryddið til með
salti og smá sítrónusafa. Ríð
hina seljurótina í grófa bita,
kryddið með salti og steikið á
pönnu í afganginum af smjörinu.
Gerið vinaigrettu úr eplaediki,
salti, sykri, vatni og
heslihnetuolíunni. Veltið
seljurótinni upp úr vinaigrettunni
þegar hún kemur af pönnunni og
stráið fínt saxaðri steinselju yr.
Sýrð rifsber
200 g fersk eða frosin rifsber
50 ml vatn
50 ml hvítvíns- eða borðedik
50 sykur
Setjið vatn, edik og sykur saman
í pott, sjóðið uppá og hellið síðan
leginum yr rifsberin og geymið
í glerkrukku.
Grænkál
Fjarlægið stilkinn úr grænkálinu
og rið niður í hælegar stærðir.
Snöggsteikið grænkálið í nokkrar
sekúndur í smjöri á pönnu. Takið
af hitanum og kryddið með salti
og sítrónusafa.
PÖNNUSTEIKTUR LAMBAHRYGGVÖÐVI MEÐ SELJURÓT, GRÆNKÁLI OG KRÆKIBERJASÓSU
Krækiberjasósa
1 l lambasoð
1 l kaldpressaður krækiberjasafi
(frá Íslenskri hollustu)
50 ml kirsuberjaedik
10 g smjör
smá salt
Sjóðið krækiberjasafann niður um
¾. Sjóðið lambasoðið niður um
helming. Bætið soðinu saman við
krækiberjasafann. Sjóðið edikið
niður um helming og blandið
saman við sósuna. Þykkið og
smakkið til með salti. Bætið smjöri
í sósuna rétt áður en hún er
borin fram.
Kynnið ykkur uppskriftir og meðlæti á íslensktlambakjöt.is
Uppskrift af forsíðumynd.
Njóttu þakkargjörðar með þínum
nánustu með íslensku lambakjöti.