Rit Búvísindadeildar - 10.06.1997, Blaðsíða 7
YFIRLIT
Við Bœndaskólann á Hvanneyri hafa verið gerðar athuganir á ræktun
jarðarberja síðan 1978 og hindberja síðan 1990. Það er mikilvægt, að velja góð
afbrigði afjarðarberjum hvort sem ætlunin er að rækta jarðarber til heimilis eða
að gera berjarækt að atvinnu. Eftirtalin afbrigði gáfu góða raun á Hvanneyri:
Glima jarðarber eru Ijújfeng og fljótsprottin, en þykja heldur smá fyrir
sölumarkað. Við erfiðar aðstæður, t.d. þegar berin voru rœktuð í
plastbúrum eða undir trefjadúk, gaf afbrigðið tiltölulega bestu uppskeruna.
Glima hentar vel til rœktunar í heimilisgörðum.
Jonsok gafmesta uppskeru í óupphituðu plastgróðurhúsi afþeim afbrigðum sem
reynd voru. Á Hvanneyri var ekki talinn munur á gæðum berja af
afbrigðunum Glima og Jonsok og berin eru álíka stór. Þegar Glima og
Jonsok voru ræktuð undir plastbúrum komu ber á Jonsok um viku seinna en
á Glimu. Þessi munur var hins vegar mjög lítill, þegar afbrigðin voru
ræktuð í óupphituðum plastgróðurhúsum.
Senga Sengana gafmikla uppskeru í góðum árum, en litla í erfiðu árferði. Berin
þóttu góð. EfGlima og Senga Sengana voru ræktuð undir plastbúrum komu
nýtanleg ber á Senga Sengana að jafnaði tæpum tveimur vikum seinna en á
Glima, en þegar ræktunin fór fram í óupphituðum gróðurhúsum var Senga
Sengana um átta dögum seinni.
Elsanta dafnaði vel í upphituðu gróðurhúsi. Berin erufalleg ogflokkast vel.
Uppskera af jarðarberjum var meiri ef þau voru ræktuð í óupphituðu
plastgróðurhúsi en undir plastbúrum. Það var meiri uppskera af plöntum, sem
ræktaðar voru í kössum, sem raðað var upp í tröppukerfi, en þeim sem rœktuð
voru í beðum á gólfi í óupphituðu plastgróðurhúsi. Mest varð uppskeran í
upphituðu gróðurhúsi.
Þær jarðarberjaplöntur urðu öflugri, sem aldar voru upp undir gróðurhlífum, en
þær vor aldar upp án hlífa.
Þegar jarðarber eru ræktuð undir gróðurhlífum, virðist fjöldi berja á plöntufara
eftir árferði, einkum eftir hitastigi aðfara hausts uppskeruárs. Á Hvanneyri
virtist fjöldi berja á plöntu, vera mestur á öðru og þriðja uppskeruári en
minnkaði á því fjórða. Það var varla unnt að merkja smækkun á berjum með
vaxandi aldri plöntunnar allt aðjjórða uppskeruári.
2