Rit Búvísindadeildar - 10.06.1997, Blaðsíða 11
TILRAUNAAÐSTÆÐUR
Flestar athuganimar á jarðarberjum vom gerðar innan skjólbeitis frá 1957 og
1958, ýmist á bersvæði úti í garði, í gróðurhúsum úr plasti eða undir öðmm
gróðurhlífum. Skjólbeltið er 4-5 m hátt og skýlir garðinum vel, t.d. fyrir norð-
austanátt, sem er þrálát á Hvanneyri. En skjólbeltið myndar einnig kuldapoll á
köldum og kyrrum nóttum. Þrátt fyrir það er líklegt að skjólbeltið haFi aukið vöxt
jarðarberjanna. Snjórinn, sem safnaðist innan skjólbeltisins á vetuma hefur
líklega hjálpað til að hlífa plöntunum.
í garðinum er jarðvegurinn 1-1,5 m djúpur. Rúmþyngd hans er 0,2-0,3
g/cm^ og glæðitapið 55-65%. Nokkrar sveiflur hafa verið á sýrustigi, eða frá pH
4,9-5,7 mælt í CaCl2, enda var tilraunagarðurinn kalkaður, þegar hann súmaði.
Árið 1977 var garðurinn undirbúinn með því að bera í hann 150 tonn/ha af
sauðataði, 3 tonn/ha kalk og um 100 tonn/ha af sandi.
Veðurathuganimar, sem getið er um á töflum 1 og 2, vom gerðar á
Hvanneyri í samvinnu við Veðurstofu íslands. Biitar em niðurstöður þeirra yfir
sprettutíma jarðarberjanna. Tölumar em fengnar úr tilraunaskýrslum Bænda-
skólans á Hvanneyri. Gerðar vom mælingar á hitastigi undir gróðurhlífum,
plastgróðurhúsum, plastbúrum og trefjadúk. Niðurstöður þeirra mælinga hafa
áður verið birtar (Magnús Óskarsson, 1995).
1. tafla. Meðalhiti (°C) á Hvanneyri árin 1977-1995.
Table 1. Mean temperature (°C) at Hvanneyri in May - September 1977-1995.
Ár Maí Júní Júlí Ágúst September
1977 6,7 8,0 11,0 10,5 7,0
1978 5,8 7,9 10,4 11,2 6,4
1979 1,1 8,1 9,2 9,1 4,4
1980 6,7 8,9 11,0 10,1 7,2
1981 5,4 8,4 9,9 10,5 5,9
1982 4,2 9,6 10,7 8,8 4,5
1983 5,0 8,0 8,9 8,5 5,3
1984 5,7 9,5 11,3 9,8 6,8
1985 6,9 9,5 9,7 9,5 5,0
1986 4,6 8,7 10,0 9,3 6,4
1987 6,4 9,6 11,3 10,7 6,9
1988 6,6 8,5 10,3 10,5 5,9
1989 4,4 8,8 10,0 9,8 6,7
1990 6,9 9,5 11,9 10,6 6,0
1991 7,2 8,9 12,9 10,9 6,4
1992 5,7 8,1 9,9 9,7 6,2
1993 4,8 8,9 9,0 9,1 8,5
1994 6,6 7,7 12,1 10,0 5,9
1995 5,0 7,2 10,5 10,5 8,0
6
L