Rit Búvísindadeildar - 10.06.1997, Blaðsíða 27
UMRÆÐUR OG ÁLYKTANIR
Afbrigði af jarðarberjum, sem reynd voru á Hvanneyri
Það er vafalaust mikilvægt að velja gc5ð afbrigði af jarðarberjum, hvort sem
ætlunin er að rækta ber til heimilis eða gera berjarækt að atvinnu. Við ræktun úti í
görðum, með eða án gróðurhlífa, er sennilegt að stofnar af norrænum uppruna séu
hentugir. Það er m.a. hin langa sumamótt á íslandi sem gæti truflað lífsferil
suðrænni plantna.
Abundance er afbrigði, sem gefur af sér góð ber, en uppskera á Hvanneyri
var ekki eins mikil og af nýni afbrigðum, þess vegna var hætt að rækta afbrigðið
árið 1980. Ramstad J. (1975) segir Abundance hafi þolað illa norska vetur.
Alaska Pioner og Alaska Tolka voru gróðursett 1981. Þetta eru afbrigði
sem nokkuð hafa verið notuð í Alaska (Dinkel D.H. o.fl., 1980). Berin voru lítil.
Alaska Tolka dó út veturinn 1982-1983, eftir eitt uppskeruár. Árið 1985 var
plöntunum af Alaska Pioner fargað vegna lélegrar uppskeru.
Bogota er ræktað í heitu gróðurhúsi, en uppskeran var lítil miðað við
Elsanta og Elvira. Berin eru talin bragðgóð.
Elsanta virðist vera það afbrigði, sem hentaði best í upphitað gróðurhús á
Hvanneyri. Kvamme T. og Bjelland B. (1992 B) telja að ber Elsanta séu ekki eins
bragðgóð og ber afbrigða sem mest eru notuð í Noregi (m.a. Glima, Jonsok,
Senga Sengana og Zephyr) og plöntumar séu næmar fyrir sjúkdómum. Þetta er
gagnstætt reynslunni á Hvanneyri. Þar þóttu berin bragðgóð, hæfilega stór og
falleg. Þau þola tiltölulega vel geymslu og flutninga. Geers, F. (1996) segir að
plöntur af Elsanta eyðileggist, ef frostið fer niður í -5°C, sem þýðir að það verður
að ganga mjög vel frá þeim ef geyma á plöntumar úti yfir veturinn. Það er því
ekki furðulegt að tilraunir í Noregi og Svíþjóð hafa sýnt að plöntumar þola illa
norrænan vetur. Þetta afbrigði er mikið ræktað í gróðurhúsum í nálægum löndum
og ýmislegt bendir til að afbrigðið henti vel í gróðurhús á íslandi.
Elvira hefur aðallega verið ræktað í heitu gróðurhúsi á Hvanneyri og hefur
gefið góða uppskem. Berin eru hæfilega stór og falleg, en á Hvanneyri þóttu þau
of súr. Berin af Elvira virtust vera viðkvæm fyrir grámyglu. í Þýskalandi er Elvira
mikið notuð við ræktun í heitum gróðurhúsum. Einnig er farið að nota afbrigðið
Gerida í heitum húsum, en það er afkvæmi Elsanta og Elvira.
Glima er nú aðallega ræktuð í heimilisgörðum í Noregi. Nes A. (1984) segir
að berin komi aðeins fyrr en bera af Zephyr, sem hann telur einnig mjög fljót-
vaxið afbrigði. Á Hvanneyri komu ber á Glima ætíð fyrr en á önnur afbrigði, þar
með talið Zephyr. Berin era ljúffeng, en þykja heldur smá fyrir sölumarkað.
Þegar aðstæður vora erfiðar á Hvanneyri, gaf Glima meiri uppskeru en önnur
afbrigði. Á þeim stöðum landsins, þar sem aðstæður fyrir jarðarberjarækt era
erfiðar, er líklegt að Glima sé besti kosturinn. Það er einnig hentugt afbrigði fyrir
óvant ræktunarfólk.
Jonsok er norskt afbrigði. Þegar Jonsok og Glima voru ræktuð í plastbúram
á Hvanneyri þroskuðust ber á Jonsok um viku seinna. Þessi munur var hins vegar
lítill þegar afbrigðin voru ræktuð í óupphituðu plastgróðurhúsi og enginn ef þau
22