Rit Búvísindadeildar - 10.06.1997, Side 13
Þegar jarðarberin voru ræktuð undir plasti, voru plönturnar að öðru jöfnu
ekki látnar setja ber, fyrsta gróðursetningarárið. Blómin voni slitin af þeim, til
þess að plöntumar gætu lagt meir í rótarvöxt, í stað þess að mynda ber. í heita
gróðurhúsinu mynduðu plöntumar hins vegar ber gróðursetningarárið.
Tegundir og afbrigði af jarðarberjum
Það er til fjöldi afbrigða af garðjarðarberjum, sem hæfa mismunandi
ræktunaraðstæðum. Eftirtalin afbrigði vora reynd á Hvanneyri árin 1977-1995:
Abundance var lengi það afbrigði, sem mest var notað á íslandi og
nálægum löndum. Það er enn ræktað á stöku stað. Afbrigðið kom að Hvanneyri,
fyrir atbeina Óla Vals Hanssonar, árið 1977. Ræktun þess lagðist niður árið 1980.
Alaska Pioner og Alaska Tolka komu að Hvanneyri árið 1981. Þessi
afbrigði hafa eitthvað verið notuð í Alaska (Dinkel D.H. o.fl., 1980). Plöntumar
af Alaska Tolka dóu veturinn 1982-1983. Hætt var að rækta Alaska Pioner árið
1985.
Bogota kom að Hvanneyri árið 1991, í gegnum Sölufélag garðyrkjumanna,
frá stofnræktarstöðinni Darby Bros, Thetford í Norfolk, Englandi.
Elsanta var fengin að Hvanneyri árið 1991, í gegnum Sölufélag garðyrkju-
manna, frá Planteopformeringsstationen í Lunderskov í Danmörku. Nú er Elsanta
líklega útbreiddasta afbrigðið í Mið-Evrópu og Danmörku.
Elvira var fengið að Hvanneyri árið 1991, í gegnum Sölufélag garðyrkju-
manna frá Planteopformeringsstationen í Lunderskov í Danmörku
Glima er norskt afbrigði frá tilraunastöðinni Njös. Það kom fyrst að
Hvanneyri árið 1977, fyrir atbeina Óla Vals Hanssonar.
Jonsok er norskt afbrigði, sem þroskar ber lítið eitt seinna en Glima. Jonsok
kom fyrst að Hvanneyri árið 1977, fyrir atbeina Óla Vals Hanssonar
Rapella var fengið að Hvanneyri árið 1991, í gegnum Sölufélag garðyrkju-
manna, frá stofnræktarstöðinni Darby Bros, Thetford í Norfolk, Englandi. Hætt
var að rækta afbrigðið á Hvanneyri 1995.
Senga Sengana kom fram í kynbótum í Þýskalandi árið 1958 (Ramstad J.,
1975). Það kom fyrst að Hvanneyri árið 1977, fyrir atbeina Óla Vals Hanssonar.
Afbrigðið er mikið notað um alla Mið- og Norður Evrópu, þó að það sé nú að
víkja fyrir Elsanta.
Sevetta var reynd á Hvanneyri 1983-1984. Uppskeran reyndist vera mjög
lítil, en berin vora stór. Plöntumar dóu veturinn 1984-1985.
Zephyr kom á markað í Danmörku árið 1965. Það kom að Hvanneyxi árið
1981.
Jarðarber til ræktunar í úthaga. Sigurður Greipsson, Landgræðslu
ríkisins. fékk send fræ af átta mismunandi gerðum af jarðarberjum frá Finnlandi,
sem sáð var á Hvanneyri árið 1994. Um fleira en eina tegund var að ræða. Fræið
var af plöntum, sem ættaðar voru frá Alaska, en vora búnar að vera í tvær
kynslóðir í Finnlandi.
8