Rit Búvísindadeildar - 20.04.1998, Blaðsíða 39
Notkun fjárins
Fjárbúið var notað til hefðbundinna verkefna árið 1997, þ.e. til rannsókna,
kennslu, námskeiðahalds og til sýninga og kynningar, bæði hvað varðar heim-
sóknir skólabama og bænda og i tengslum við landbúnaðarsýningu o. fl. Sé
skoðað hvemig notkun fjárins var háttað kemur í ljós að alls vom um 105 lömb
og ásetningsgimbrar notaðar í 4 tilraunir, og inn 115 ær í tvær tilraunir og aðrar
125 ær notaðar í samanburðarhópa og tilraunir og athuganir.
Þetta svarar til þess að 350 kindur hafi verið í beinum tilraunum auk þess sem
125 kindur vom í athugunum sem ganga ár eftir ár. Em þá ekki með taldar ýmsar
athuganir sem í gangi era, s.s. athuganir á erfðum á litum sauðfjár, þó verður að
játa að tiltölulega lítið var um tilraunir veturinn 1996-1997.
Rannsóknir á sauðamjólk og nýtingu hennar til manneldis héldu áfram en þær
hófust fyrir alvöm sumarið 1996. Áður höfðu verið gerðar frumathuganir,
samanber tilraunaskýrslu 1995 (Sveinn Hallgrímsson 1996). Nokkrar niðurstöður
tilraunanna 1996 vom birtar á ráðunautafundi 1997 (Sveinn Hallgrímsson 1997)
Megin tilgangur tilraunarinnar 1997 var eftirfarandi:
1. Að gera athuganir á og fylgjast með framutölu mjólkurinnar, en hún
reyndist sveiflast óeðlilega mikið samkvæmt niðurstöðum tilraunarinnar
1996
2. Að halda áfram athugunum á efnainnihaldi mjólkurinnar. Vigtað var
vikulega úr hverri á og sýni send til efhagreiningar.
3. Fylgst var nákvæmlega með heilsufari gripanna, en það reyndist mjög
gott.
4. Æmar vom teknar í tilraunina þegar lömbin vor sláturhæf. Vegna
skorts á ám 1997 var erfíðara að finna sláturhæf lömb nógu snemma
1997 en 1996.
5. Efnagreiningar vom gerðar daglega á safnsýnum úr mjólkinni hjá
Rannsóknastofu Mjólkuriðnaðarins. Einu sinni vom sýni send til
Danmerkur til efhagreiningar og til samanburðar við tölur frá
Rannsóknastofu Mjólkuriðnaðarins.
Auk þessa vora skráðar upplýsingar um spenalag og júgurgerð, mjaltatími vai'
mældur tvívegis hjá flestum ám, skráðar vom athugasemdir um skapferli og fleiri
atriði er varða samskipti ærinnar og mjaltamanns. Aðal mjaltamaður sumarið
1997 var Elísabet Axelsdóttir.
Hér verða birtar fmmtölur úr tilraununum 1996 og 1997 (töflur 1, 2, 3 og 4).
32