Rit Búvísindadeildar - 20.04.1998, Blaðsíða 56
Hlutfall myglulausra bagga var hærra þar sem hjúpur um þá var 8-faldur
(0,10>p>0,05). Þótt nokkur munur yrði á meðaltölum reiknaðs efnataps er hann
ekki marktækur sakir breytileikans sem var innan liða. Viðfangsefnið verður
rannsakað frekar.
4. Vinna og vélanotkun við heyöflun
Unnið var að uppgjöri gagna sem bændur skráðu um heyskap sinn sumarið 1996
(sjá Tilr. sk. 1996, bls. 36-37). Daði Már Kristófersson búfræðikandídat hefúr
annast uppgjörið. Verða nokkrar niðurstöður þess kynntar á Ráðunautafúndi
1998.
B. Tilraunir og athuganir 1997
Sumarið 1997 voru gerðar eftirfarandi tilraunir með verkun og geymslu heys og
annars fóðurs. Eðli mála samkvæmt liggja aðeins fáar niðurstöður þeirra fyrir enn
sem komið er.
1. Verkun háar í rúlluböggum - unnið með sunnlenskum bændum
Verkefnið er framhald tilrauna sem gerðar hafa verið á Hvanneyri um nokkurt
skeið (sjá Tilr. sk. 1996, bls. 33-34). Fyrir milligöngu Runólfs Sigursveinssonar
ráðunauts hjá Bs.Sl. á Selfossi var haft samband við liðlega tvo tugi bænda á
Suðurlandi sem skrá upplýsingar um nýtingu háar hver á sínu búi og senda
nauðsynleg sýni til efhagreininga. Mörg háarsýni hafa þegar borist og allmikið af
upplýsingum. Verði skil svo sem nú horfir er gert ráð fyrir að bráðabirgðauppgjör
verkefnisins liggi fyrir í apríl 1998.
2. Áburðarhættir og verkun heys (tað og tilbúinn áburður)
Verkað var hey af tveimur spildum sem vallarfoxgrasi var sáð í vorið 1995.
Spildumar em eins að öðm leyti en því að önnur fékk tilbúinn áburð en hin
búfjáráburð. Reiknað áburðarmagn í N, P og K vorið 1997 var það sama á báðar
spildur. Rannsóknin beinist að þessum þáttum og er gerð að hluta í samvinnu við
fóðurfræðideild Rala:
- uppskemmagni
- þurrkunarhraða heysins
- votverkun heysins í rúllum og á rannsóknastofú
- lystugleika heysins
- fóðurgildis heysins, þ.m.t. leysanleika próteins.
Enn liggja fáar niðurstöður fyrir en 3. tafla sýnir meðaltöl um heyið við hirðingu.
49