Rit Búvísindadeildar - 20.04.1998, Side 12
Notkun búíjáráburðar
Arið 1991 var tilraun 437-77, Áburður og árferðismunur, slegin í síðasta sinn
eftir upphaflegri skipan. Uppsöfnuð eftirhrif sauðataðs á tilraunatímanum vöktu
athygli og því var tilraunin einnig slegin 1992, en þá fengu allir reitir sama
skammt tilbúins áburðar, 400 kg Græðir 8 (72 kg N, 15,6 kg P, 46,8 kg K, 8 kg S
og 32 kg Ca/ha). Eftirhrif reyndust mjög mikil og því var ákveðið að taka
tilraunina upp afitur. Sumarið 1993 var hún því meðhöndluð samkvæmt upphaf-
legri skipan. "Árferðisreitir" fengu þó 100 kg N/ha, sama og b og liður f tilbúinn
áburð sem samsvarar því, þ.e. 40 kg N, en í 15 tonnum af sauðataði er reiknað
með um 60 kg af nýtanlegu N. Liðir a-d og g fá 30 kg P/ha.
3. tafla. Áburður og árferðismunur (nr. 437-77). Uppskera í hkg þe/ha.
Liður Áburður, kg/ha Meðalt. 77-91 l.sl. 2.sl Alls
a 60 N 60 K 51,5 28,8 19,3 47,3
b 100 N 80 K 58,3 32,0 18,8 50,8
c 140 N 100 K 59,7 36,5 19,4 55,9
d 180 N 120 K 65,2 38,3 21,7 59,9
e 15 tonn sauðatað 57,8 42,2 20,2 62,5
f 15 tonn sauðatað + 40 N 64,1 48,4 19,9 68,3
g 100 N 80 K 53,4 31,9 18,8 50,7
Staðalskekkja 1,92 1,05 1,97
Endurtekningar 4. Slegimi l.sl. 15. júlí, 2.sl. 22. ágúst
Enn eykst uppskera sauðataðsliða og uppskera liða e og f er 15 og 17 hkg meiri
en tilsvarandi liða (a og b) en svörun N og K í liðum a-d er tiltölulega lítil sem
bendir til mikillar fijósemi landsins almennt. Eins og fyrri ár voru sauðataðsreitir
ljósari yfirlits en aðrir reitir í 1. slætti. Próteinprósenta liða e og f var rúmlega
13%, en liða a og b 17-18%. Að öðru leyti var efnamagn liða svipað, nema
magnesíummagn uppskeru af sauðataðsliðum var áberandi hærri en annarra.
í 4. töflu er sýnd samanlögð uppskera einstakra liða af N, P og K.
4. tafla. Áburður og árferðismunur (tilraun 437-77). Uppskera áburðarefna í kg/ha.
Liður Áburður, kg/ha N P K
a 60 N 60 K 129 16 70
b 100 N 80 K 151 17 79
c 140 N 100 K 170 20 109
d 180 N 120 K 178 21 127
e 15 tonn sauðatað 152 21 127
f 15 tonn sauðatað + 40 N 171 23 131
g 100 N 80 K 141 17 83
5