Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1971, Page 28

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1971, Page 28
26 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR þar sem aðstæður voru taldar einkennandi fyrir hina ógrónu mela einstakra svæða. Að- stæður reyndust hins vegar allmisjafnar í hinum ýmsu athugunarstöðum. Þeir reit- ir, sem valdir voru á láglendi, í Gunnars- holti, Rang., og Keflavík, Skagaf., gáfu ekki nógu góðan árangur í samanburði við árangur af flestum hálendisreitunum. Af há- lendisreitunum hafði Hvítárnes þá sérstöðu, að svæðið í kring er að eyðast af uppblæstri, og varð þvi stöðugt áfok í sáðlandið innan tilraunagirðingarinnar. (Mynd 10). Árið 1970 varð meðalþykkt hins aðfokna jarðvegs orðin 55 cm. Á átta árum hefur því aðfokið að jafnaði aukið sjö crn árlega við jarðvegsþykktina. Með friðun og áburðargjöf varðist gróð- urinn þó furðuvel þessu áfoki og íslenzku tegundirnar kaffærðust ekki í foksandin- um. Hins vegar var þykknunin orðin svo mikil, að hóll hafði mynclazt og áveðurs var uppblástur jafnvel að hefjast úr gróður- torfunni. f sex ár var áburði dreift á reitina, og þéttist gróðurinn yfirleitt við það. Þótt áburðargjöf lyki, hefur gróðurinn ekki rýrn- að, en svörðurinn jafnvel halclið áfram að þéttast þau þrjú ár, sem síðan eru liðin. Að vísu tókst ekki að koma belgjurtum til að vaxa að neinu ráði, hvorki smára né lúp- ínu, og kölkun bar lítinn árangur, en land- ið virðist þó að öllu jöfnu geta haldizt gróið í nokkur ár án sjáanlegrar rýrnunar, eftir að áburðargjöf lýkur, sé það friðað fyrir ágangi búpenings.

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.