Fréttablaðið - 11.12.2020, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 11.12.2020, Blaðsíða 2
Leitað að jólunum Það var mikil jólastemning í Þjóðleikhúsinu í gær þegar dyr leikhússins voru opnaðar á ný fyrir spenntum börnum sem fengu að sjá sýninguna Leitin að jólunum eftir Þorvald Þorsteinsson. Sýningin hefur verið stór þáttur í jólaundirbúningi barna á Íslandi í áraraðir en hún var fyrst sýnd árið 2005. Í ár hefur sýningin verið sérstaklega aðlöguð grunnskólabörnum vegna kórónuveirufaraldursins. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGRTRYGGUR ARI SAMFÉLAG Í tæp sextíu ár hefur Skotinn Richard Fowlie hugsað reglulega til vinar síns frá Íslandi sem hann kynntist á námsárum sínum í Edinborg. Vinirnir héldu sambandi með bréfaskriftum í nokkur ár eftir að námi lauk en upp úr þeim slitnaði. Richard segist allt- af hafa saknað vinar síns og á dög- unum sendi hann bréf til ritstjórnar Fréttablaðsins þar sem hann óskaði eftir hjálp í hinstu tilraun sinni til að hafa uppi á vini sínum. Richard er búsettur í bænum Banchory nærri Aberdeen í Skot- landi. Hann er 76 ára gamall og fór á eftirlaun fyrir rúmum áratug eftir farsælan starfsferil hjá póstinum. Þegar blaðamaður Fréttablaðsins náði loks sambandi við hann í gegnum síma urðu fagnaðarfundir enda er Richard sannfærður um ágæti Íslendinga. Richard notar hvorki tölvupóst né samfélagsmiðla eða internetið yfir höfuð og treystir því á símtöl og bréfaskriftir. Það hefur f lækt leitina verulega að bréfaskriftir vinanna eru glöt- uð og að nafn vinarsins hefur því aðeins skolast til á þessum árunum. „Það er eitthvað í líkingu við Engel Johannsson. Íslensk nöfn eru frekar erfið,“ segir Richard og hlær. Þeir kynntust í Edinborg á árun- um 1960-1962. „Engel hafði farið út til að læra ensku og við bjuggum á sama stað sem hét Manor Club. Okkur varð strax vel til vina og sú vinátta hélst þessi ár sem hann bjó í Skotlandi,“ segir Richard. Hann segist muna eftir því að vinur hans hafi átt heima í Reykja- vík og að faðir hans rekið verslun í höfuðborginni. Hann hafi alla tíð hugsað hlýtt til vinar síns og séð mjög eftir því að upp úr bréfaskriftunum hafi slitn- að. „Ég hef gert nokkrar tilraunir til þess að hafa uppi á honum. Heim- sótt sendiráðið hér ytra til þess að reyna að finna heimilisfang eða símanúmer,“ segir Richard. Fyrir þremur árum fór hann meðal ann- ars í sína fyrstu ferð til Íslands og reyndi þá að hafa uppi á Engel. „Ég fékk starfsfólk hótelsins til þess að hjálpa mér að leita en þar sem nafnið er ekki alveg rétt þá gekk það ekki,“ segir Richard. Hann hafi engu að síður notið dvalarinnar og minnist sérstaklega hve Reynisfjara var tilkomumikill staður. Hann segist hafa verið hand- viss um að hann myndi aldrei hafa uppi á vini sínum allt þar til hann rakst á mynd af honum í gamalli hirslu. „Þá ákvað ég að senda bréf á íslenska fjölmiðla svo að sem flestir gætu séð myndina. Ég veit auðvitað ekki hvort hann er lífs eða liðinn en mig langar mikið að heyra hvernig honum reiddi af,“ segir Richard. bjornth@frettabladid.is Síðasta vonin um að finna íslenska vininn Skotinn Richard Fowlie hefur í tæp 60 ár hugsað reglulega til íslensks vinar síns, „Engel Johansson“, sem hann kynntist í Edinborg. Hann biðlar nú til Íslendinga í þeirri von að finna vin sinn, sem hann hefur alltaf saknað. Vinirnir kynntust í námi Edinborg árið 1960-1962. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA-EFE Íslendingurinn „Engel Johannsson“. COVID-19 Fólk mun ekki geta pant- að sér tíma í bólusetningu þegar að því kemur en allir munu fá boð í bólusetningu þegar kemur að þeim. Þá er fólk hvatt til að hringja ekki í heilsugæslustöðvar vegna bólu- setningar þar sem enginn verður út undan. Heilsugæslan segir ótímabært að tala um hvenær bólusetning hefst hér á landi en þrátt fyrir að ekki sé ljóst hvenær dreifing bóluefna vegna COVID-19 hefst séu vonir bundnar við að hún geti hafist á fyrri hluta næsta árs. Heilsugæslu- stöðvar landsins sjá um bólusetn- inguna en sóttvarnalæknir ber ábyrgð á skipulagningu og sam- ræmingu. – fbl Fá boð í bólusetningu S J Á V A R Ú T V E G U R Út h lut aðu r byggðakvóti verður minnkaður úr 5.374 þorskígildistonnum í 4.810 fyrir fiskveiðiárið 2020 til 2021. Samkvæmt reglum er skerðingin ekki hlutfallsleg milli byggðarlaga heldur kemur hún fram hjá þeim sem hafa 400 íbúa eða fleiri. Til dæmis er kvótinn skertur um 71 prósent á Ólafsvík, 64 á Stokks- eyri, 62 í Garði og tæp 60 á Ólafsfirði. Nokkur óánægja hefur verið með úthlutun byggðakvóta að undan- förnu. Sveitarstjórnir Norðurþings og Fjallabyggðar eru meðal þeirra sem hafa farið fram á að úthlutun- arreglum verði breytt, en þar hefur byggðakvótinn verið skertur mjög á undanförnum árum. – khg Fjölmennari byggðir missa byggðakvóta Byggðakvóti verður skertur um 71 prósent á Ólafsvík. MENNING Tökur á þáttunum House of the Dragon, eftir George R.R. Martin, hefjast í myndveri í Watford eftir áramót. Ekki er vitað hvenær tökur annars staðar hefjast. Þætt- irnir gerast í sama heimi og hinir vinsælu Game of Thrones en gerast þrjú hundruð árum fyrr. Martin hefur gefið það til kynna að einhverjir af sömu tökustöð- unum verði notaðir fyrir hina nýju seríu. En það voru til dæmis Króatía, Norður-Írland, Malta og Ísland. Ísland er hins vegar eini staðurinn sem merktur er sem tökustaður á gagnagrunninum IMDb. Eins og fyrr er það HBO-stöðin sem gefur út seríuna, sem mun innihalda tíu þætti og koma út árið 2022. Atriði í Game of Thrones voru meðal annars tekin upp í Dimmu- borgum, á Hverfelli, Þingvöllum, Goðafossi og Grundarfirði. Þá hafa þó nokkrir Íslendingar leikið í þátt- unum. Auk þess að fá beinar tekjur af tökunum hafa íslensk ferðaþjón- ustufyrirtæki gert út á þættina og boðið upp á ferðir á tökustaði. – khg Tökur hefjast eftir áramót George R. R. Martin er afar hrifinn af Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Ísland er merkt sem tökustaður á IMDB. 1 1 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.