Fréttablaðið - 11.12.2020, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 11.12.2020, Blaðsíða 52
BÆKUR Hetja Björk Jakobsdóttir Útgefandi: JPV Fjöldi síðna: 218 Þegar ég var lítil hét ein allramesta uppáhaldsbókin mín Trygg ertu Toppa og fjallaði um strák og hest- inn hans. Þetta var þýdd bók sem gerðist í einhverju af fjallafylkjum Bandaríkjanna og lýsti veruleika bæði stráksins og hestsins og var svo spennandi og skemmtileg að ég marglas bókina og heimtaði hest í fermingargjöf. Þessi bók kom mér margoft í hug þegar ég las sög una af hryssunni Hetju og mann systur hennar Björgu. Sagan hefst á því að Hetju, sem er greind og uppá- t æk jasöm, hef ur tekist að komast út úr girðingunni sinni og inn í ókunnugan hesta- hóp sem er svo smalað inn í f lutn- ingavagn og ekið á annað landshorn. Björg kemst f ljótlega að því að hryssan er týnd og hefst nú leit þeirra hvorrar að annarri sem verður í meira lagi við- burðar ík, bæði f y r ir hryssu og stelpu. Sagan er sögð frá sjón- arhóli þeirra beggja og spannar vítt svið, þessar tvær söguverur eru um margt ólíkar, enda ekki af sömu tegund en þó eiga þær margt sameiginlegt. Hryssan á ekki orð til að lýsa sumu af því sem hún upplifir og vantar til dæmis alveg orð fyrir ísbjörn, og Björg á líka oft erfitt með að tjá sig þar sem hún er á einhverfurófi og upplifir ýmislegt bæði sterkar og á ólíkan hátt og aðrir. Fleiri sjónar- horn eru kynnt þegar líða tekur á söguna, til dæmis fær hundurinn Píla einn kafla þar sem hún reynir að skilja til hvers er ætlast af henni á örlagastundu. Hetja er greinilega skrifuð af mikilli þekkingu á hestum og hesta- mennsku en líka af frásagnarfærni og sögugleði. Lýsingarnar á því sem fyrir augu Hetju ber eru lifandi og vel aðgreindar frá upplifun Bjargar og bæði sá tími sem Hetja átti með fjallastóðinu og harðastökk hennar yfir Kjöl er til dæmis afskaplega skemmtilegt af lestrar. Samskipti eru einnig miðlægt efni í bókinni, bæði samskipti og samskiptareglur hesta sín á milli og svo samskiptin milli hesta og manna frá sjónarhóli beggja og í því samhengi aftur upp- lifun Bjargar af samskiptum við fólk og muninum á því að eiga við dýr og manneskjur. Hetja er þó fyrst og fremst spenn- andi og líf leg bók fyrir alla krakka þó hún gæti mögulega komið inn skæðri hestabakteríu hjá einhverj- um lesendum. Brynhildur Björnsdóttir NIÐURSTAÐA: Skemmtileg og spennandi bók um vináttu hryssu og stelpu og ævintýri þeirra. ÞETTA ER ÞROSKA- SAGA UM UNGA STELPU SEM ER KVÍÐIN OG ÓÖRUGG EN FINNUR EIGIN STYRK OG MÁTT. Kristín Björg Sigur-v insdót t ir er t i l-nefnd til Íslensku b ó k m e n n t a v e r ð -launanna fyrir ung-mennabókina Dóttir hafsins, sem er fyrsta bók hennar. „Sagan segir frá Elísu sem er 16 ára unglingur og býr á Vest- fjörðum. Eina nóttina heyrir hún undarlega tónlist berast frá hafinu. Tónlistin leiðir hana niður í fjöru þar sem hún dregst inn í hörku- spennandi atburðarás neðan- sjávar. Á hafsbotni er töfrandi borg þar sem heil þjóð, marfólkið, lifir og þrífst. Hræðileg sæskrímsli herja á borgina og ógna tilvist mar- fólksins sem þarf á aðstoð að halda. Elísa kemst að því að hún er hluti af ævafornum spádómi sem snýst um hina dularfullu dóttur hafsins sem er útvalin til að hjálpa marfólkinu. Þetta er þroskasaga um unga stelpu sem er kvíðin og óörugg en finnur eigin styrk og mátt,“ segir Kristín Björg. Handrit frá unglingsárum Hún segir að helsta áhugamál sitt á unglingsárum hafi verið að skrifa. „Ég var feimin sem barn og vildi helst láta sem minnst fyrir mér fara. Þess vegna þótti mér svo gaman að lesa og skrifa af því að í skáldskapnum gat maður verið hver sem er og ferðast hvert sem er. Ég skrifaði fyrstu drög að þess- ari bók þegar ég var 13 ára og til 17 ára aldurs skrifaði ég þrjár bækur: Dóttur hafsins, framhaldssögu af henni og sögu á ensku, en á þessum árum fannst mér enska vera afskap- lega flott mál.“ Kristín Björg segist hafa skrifað töluvert á menntaskólaárunum en hlé varð á skriftunum þegar hún fór í lögfræðinám og hún starfaði síðan sem lögfræðingur. „Einn daginn rakst ég á þetta gamla handrit í tölv- unni og las það aftur yfir. Í minn- ingunni var það óklárað en þarna blasti við fullklárað handrit. Ég fór hægt og rólega að endurskrifa það og fannst það óskaplega skemmti- legt. Ég fann að ég hafði enn brenn- andi áhuga á því að skrifa og eftir talsverðar vangaveltur og mikinn stuðning frá manninum mínum tók ég mér hlé frá lögfræðistörfum og fékk mér hlutastarf í bókabúð með skriftunum, enda mikill bóka- unnandi.“ Mikill heiður Dóttir hafsins er fyrsta bókin í þrí- leik, en eins og áður sagði skrifaði Kristín Björg bók númer tvö á ungl- ingsárunum. Hún vinnur nú að því að endurskrifa þá gerð. „Lokasagan í þríleiknum var aldrei skrifuð en ég var með hugmyndir að henni í koll- inum, þannig að ég veit hvað mun gerast,“ segir hún. Spurð um tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna segir hún: „Ég bjóst alls ekki við því. Þetta er óskaplega mikill heiður og ég er í skýjunum. Ég gæti ekki verið glað- ari.“ Saga um hina dularfullu dóttur hafsins Kristín Björg Sigurvinsdóttir er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir fyrstu bók sína, Dóttir hafsins. Hún skrifaði fyrstu drög að sögunni 13 ára gömul. Einn daginn rakst ég á þetta gamla handrit í tölvunni og las það aftur yfir, segir Kristín Björg Sigurvinsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Leyniþráður stelpu og hryssu Ólafur Jóhann Ólafsson og Arnaldur Indriðason skipta á milli sín toppsætunum á tveimur metsölulistum. Á metsölu- lista Eymundsson dagana 2.-8. des- ember er Snerting eftir Ólaf Jóhann í fyrsta sæti á Metsölulista Eymunds- son, Vetrarmein eftir Ragnar Jónas- son er í öðru sæti og Þagnarmúr eftir Arnald Indriðason er í þriðja sæti. Í fjórða sæti er Bráðin eftir Yrsu Sig- urðardóttur og Spænska veikin eftir Gunnar Þór Bjarnason í því fimmta. Á bóksölulistanum sem Félag íslenskra bókaútgefenda tekur saman er Þagnarmúr Arnaldar í fyrsta sæti, Snerting eftir Ólaf Jóhann í öðru sæti og Bráðin eftir Yrsu í því þriðja. Sá listi nær yfir dag- ana 30. nóvember til 6. desember. Tveir á toppnum Ólafur Jóhann Ólafsson rithöf- undur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Upplestur á Aðventu Gunn-ars Gunnarssonar fer jafnan fram í Gunnarshúsum á Dyngjuvegi 8 og Skriðuklaustri á þessum tíma árs. Í ljósi aðstæðna sjá Gunnarsstofnun og Rithöfunda- samband Íslands sér ekki fært að bjóða fólki til sín í ár en færa lands- mönnum í staðinn upplesturinn heim í stofu gegnum netið. Lesari að þessu sinni er Ólafur Darri Ólafsson leikari sem í haust hreif landsmenn með sér í hlutverki annars Bene- dikts í þáttaröðinni um Ráðherr- ann. Í þáttunum var óspart vísað í sögu Gunnars og er Ólafur Darri því ekki óvanur að fylgja Leó og Eitli til fjalla. Lesturinn fer í loftið kl. 13.30 sunnudaginn 13. desember og verð- ur hlekkur á hann aðgengilegur á Facebook-síðum Skriðuklausturs og Rithöfundasambands Íslands. Ólafur Darri les Aðventu Gunnars Ólafur Darri les klassíska sögu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 1 1 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R24 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.