Fréttablaðið - 11.12.2020, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 11.12.2020, Blaðsíða 48
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Okkar ástkæri Van Thu Nguyen lést þann 9. desember. Útförin fer fram frá Digraneskirkju, mánudaginn 14. desember kl. 13. Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Thi Thu Trang Ðang Thao Thu Thi Nguyen Lára Hien Nguyen Diana Rós Hanh Jónatansdóttir Kevin Huy Tan Dam Ástkær faðir okkar, bróðir, tengdafaðir og mágur, Einar Hallsson hestabóndi, Hólum í Flóa, lést af slysförum fimmtudaginn 3. desember. Útför hans fer fram frá Stokkseyrarkirkju þriðjudaginn 15. desember kl. 13. Í ljósi aðstæðna er athöfnin aðeins fyrir nánustu aðstandendur, hægt verður að fylgjast með athöfninni á vefslóðinni promynd.is/einar Blóm og kransar eru afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast Einars er bent á Alzheimersamtökin. Sophia Oddný Sigurður Elmar, Elín Hulda og börn Guðmundur, Hrefna og börn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Júlía Kristín Adolfsdóttir Furubyggð 16, Mosfellsbæ, lést á líknardeild Landspítalans laugardaginn 5. desember. Útförin fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn 15. desember kl. 14. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir en streymt verður frá athöfninni á vefsíðu Selfosskirkju. Kolbeinn Guðmannsson Sigurbjörn Ragnarsson Hlín Gunnarsdóttir Gunnsteinn Adolf Ragnarsson barnabörn og barnabarnabörn. Okkar innilegustu þakkir fyrir allar þær kveðjur og samúðaróskir sem okkur hafa borist vegna fráfalls föður okkar, afa og langafa, Jóns Þórs Jóhannssonar fv. framkvæmdastjóra, sem andaðist þann 2. nóvember. Minning hans mun lifa. Þorleifur Þór Jónsson Þórdís H. Pálsdóttir Stefanía Gyða Jónsdóttir Jóhann Þór Jónsson Þórunn Marinósdóttir Bergrún Svava Jónsdóttir Ragnar Baldursson barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Birte Dürke Hansen sem lést í faðmi fjölskyldunnar, þriðjudaginn 17. nóvember, á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu, laugardaginn 12. desember, kl. 11. Vegna aðstæðna verður einungis nánasta fjölskylda viðstödd athöfnina. Aðstandendur vilja þakka starfsfólki hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar fyrir einstaka umhyggju og alúð. Ragnar D. Hansen Richard Hansen Sigríður Rósa Magnúsdóttir Solvej Dürke Bloch Michael D. Hansen Annemarie V. Hansen Anita Roland Brian Roland Rolf D. Hansen Manuel Parra Recuero John D. Hansen barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamamma, amma, langamma og langalangamma, Perla Kolka sem lést 3. desember sl., verður jarðsungin frá Laugarneskirkju mánudaginn 14. desember. Aðeins nánustu ættingjar verða viðstaddir, en athöfninni verður streymt á slóðinni mbl.is/andlat/ Björg Kolka Robin Melkun Margrét Kolka Þórhallur Þorvaldsson Ása Kolka Sverrir Tynes Elín Perla Kolka Valur Arnarson Heiður Óttarsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Loks er komið að því að við getum sýnt gamanleikinn okkar, Fullorðin, í Samkomu-húsinu á Akureyri. Forsýn-ingin er á morgun, laugardag. Fólki veitir ekkert af því að hlæja aðeins,“ segir Vilhjálmur B. Braga- son leikari, sem er höfundur verksins og f lytjandi, ásamt þeim Árna Beinteini Árnasyni og Birnu Pétursdóttur. Vilhjálmur segir salinn standast sótt- varnareglur, í honum séu svalir og því sé hægt að taka tvöfaldan, leyfilegan skammt áhorfenda. „Planið var að sýna Skuggasvein í haust en það verður bara næsta haust og í samstarfi við Þjóðleik- húsið. Í staðinn ákváðum við að búa til þessa sýningu, Fullorðin, hún er létt- ari í vöfum, við erum bara þrjú svo það þarf ekkert marga áhorfendur til að hún beri sig.“ Í fimmtán hlutverkum Sýningin snýst um þau vonbrigði sem margir verða fyrir þegar þeir fullorðnast, að sögn Vilhjálms. „Maður heldur í upp- vextinum að allt verði svo frábært þegar vissum aldri er náð, þá geti maður ráðið öllu og svarað öllu. Það er ekki alveg það sem við blasir þegar til kastanna kemur, maður veit oft ekkert í sinn haus en vonar bara að enginn sjái í gegnum það. Yfir- leitt kann maður ekki að meta það sem maður hefur í augnablikinu og heldur að allt sé betra hinum megin við lækinn,“ útskýrir hann. Segir leikarana sækja í eigin reynslubrunna en líka bregða sér í marga búninga og karaktera. „Það er hraði í verkinu, ég held ég leiki fæstar per- sónur, samt er ég í fimmtán hlutverkum. Þetta er stuð!“ Flestar persónurnar eru fullorðnar, að sögn Vilhjálms, aðrar eru börn og ungl- ingar, sumar meira að segja unglingar á fyrri öldum. „Það er heilmikil heim- ildavinna bak við þetta stykki,“ útskýrir hann og segir sýninguna taka klukku- tíma og korter, ekkert hlé sé tekið til að hafa allt sem COVID-vænast. Vilhjálmur tekur fram að ekkert COVID-grín sé í sýningunni. „Við erum bara að gera grín að hinum tímalausu fylgifiskum þess að vera til á öllum aldri. Veltum líka fyrir okkur skilgrein- ingunni á því að vera fullorðinn – orðinn að fullu, sem þýðir þá væntanlega að maður verður ekkert meira. Ef maður horfir á það þannig verður maður ekki fullorðinn fyrr en maður deyr. Varla er þetta spurning um að verða fullur. Það eru margir f letir á þessu.“ Árni Beinteinn verður búálfur Birna og Árni eru venjulega búsett í Reykjavík en verða fyrir norðan í vetur, að sögn Vilhjálms. „Við vorum öll við- loðandi sýninguna Tæringu, sem er samstarfsverkefni Leikfélagsins og Maríu Pálsdóttur. Birna og Árni Beinteinn eru líka í Búálfinum sem verður settur upp eftir áramót, ef allt fer samkvæmt áætl- un. Árni Beinteinn er búálfurinn. Þau áttu þannig bæði erindi norður og eru á samningi í vetur.“ gun@frettabladid.is Þegar vissum aldri er náð Sú glansmynd sem ungmenni hafa af því að verða fullorðin framkallast ekki alltaf. Leikfélag Akureyrar gerir grín að því í frumsömdu verki sem forsýnt er á morgun. Árni Beinteinn, Birna og Vilhjálmur á sviði Samkomuhússins. Þar munu þau bregða sér í fjölda hlutverka. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Hvað þýðir fullorðin? spyr Vilhjálmur. Maður veit oft ekkert í sinn haus en vonar bara að enginn sjái í gegnum það. 1 1 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R20 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.