Fréttablaðið - 11.12.2020, Page 4
Þekkirðu lyn þín?
GLÆSIBÆ / OPIÐ 08:30-18:00 mán.- fös.
Sími 517 5500 / lyfsalinn@lyfsalinn.is
VESTURLANDSVEGI / OPIÐ 10:00-22:00 alla daga
Sími 516 5500 / vesturlandsvegur@lyfsalinn.is
URÐARHVARFI / OPIÐ 08:30-18:00 mán.- fös.
Sími 516 5505 / urdarhvarf@lyfsalinn.is
og þér líður betur
Komdu eða pantaðu tíma í síma
517 5500 eða sendu póst á
lyfsalinn@lyfsalinn.is
Fáðu faglega aðstoð lyafræðings
FJÖLMIÐLAR Eigið fé Torgs ehf. hefur
verið aukið um 600 milljónir króna
með útgáfu nýs hlutafjár.
Tilgangur aukningarinnar er að
greiða upp óhagstæð lán og mæta
því tapi sem veirufaraldurinn hefur
valdið á árinu.
Félag í eigu Helga Magnússonar er
kaupandinn. Félög Helga eiga nú um
90 prósent hlutafjár í Torgi. Aðrir
hluthafar eru Saffron, Jón Þórisson
og Guðmundur Örn Jóhannsson.
Torg á og rekur Fréttablaðið,
DV, sjónvarpsstöðina Hringbraut,
nokkra vefmiðla og eigin prent-
smiðju. – jþ
Eigið fé
Torgs aukið
STJÓRNSÝSLA Félag fasteignasala
hefur áhyggjur af því að fyrirhugað-
ar breytingar á lögum um sölu fast-
eigna og skipa geti leitt til fákeppni
á fasteignamarkaði. Frumvarpið
sem um ræðir er hluti af öðrum lið
aðgerðaáætlunar atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytisins um ein-
földun regluverks og byggir meðal
annars á nýlegri skýrslu frá OECD
um samkeppnismat á byggingar-
iðnaði og ferðaþjónustu.
Tillögurnar í skýrslunni hafa
vakið nokkra athygli undanfarnar
vikur en meðal annars lagði OECD
til að lögvernduð starfsheiti, eins og
bakarar og ljósmyndarar, verði lögð
niður og hafa formenn meistara-
félaga í handiðn keppst við að gagn-
rýna það sjónarmið.
Breytingarnar sem fasteignasalar
hafa áhyggjur af snúast um að fellt
verði niður það skilyrði að fasteigna-
sali skuli með beinum hætti eiga
meirihluta í fasteignasölum og er
rökstuðningurinn sá að núgildandi
ákvæði dragi úr samkeppni og fjár-
festingu í greininni og að breyting-
arnar geti stuðlað að lægra verði fyrir
neytendur. Félag Fasteignasala telur
að það mat sé ekki á rökum reist.
„Þetta eignarhaldsákvæði var
sett árið 2004 að vel athuguðu máli
enda hafði frjálst eignarhald ekki
reynst vel. Þessar breytingar voru
til mikilla hagsbóta og hafa meðal
annars stuðlað að auknu sjálfstæði
og óhæði fasteignasala sem er afar
mikilvægt,“ segir Kjartan Hallgeirs-
son, formaður Félags fasteignasala. Í
aðdraganda laga um sölu fasteigna
árið 2015 hafi verið mikil umræða
um ákvæðið en í kjölfar yfirgrips-
mikillar skoðunar hafi stjórnvöld
og Alþingi talið að ekki væri æski-
legt að hrófla við ákvæðinu. „Í ljósi
þeirrar umræðu erum við undrandi
yfir þessari u-beygju í stefnu stjórn-
valda,“ segir Kjartan.
Vísað er til þess að sambærileg
skilyrði um eignarhald þekkist ekki
á fasteignasölum í Noregi, Svíþjóð
og Danmörku. Að mati Kjartans er
þróunin í þessum löndum á undan-
förnum árum víti til að varast.
„Þróunin í þessum löndum hefur
verið sú að fasteignasölur eru nú að
stórum hluta í eigu fjármálastofn-
ana. Það hefur leitt til fákeppni á
þessum markaði og einnig er mikil
hætta á margs konar hagsmuna-
árekstrum í bankastarfseminni og
fasteignasölurekstrinum, til dæmis
þegar bankinn fjármagnar eða fjár-
festir í fasteignaverkefnum,“ segir
Kjartan.
Hann telur því að tilgangur laga-
frumvarpsins um aukna samkeppni
haldi ekki vatni. Fáar starfsstéttir
búi við viðlíka samkeppni og fast-
eignasalar enda eru hér á landi
starfræktar um 120 fasteignasölur
og um 550 einstaklingar séu með
réttindi til sölu fasteigna. Afleiðing
af því sé sú að þóknanir hérlendis
eru lægri en í nágrannalöndunum.
„Okkar mat er því að þetta frum-
varp sé vanráðið og að hér sé verið
að leysa vandamál sem er ekki til
staðar,“ segir Kjartan.
bjornth@frettabladid.is
Fasteignasalar undrandi á
breyttri stefnu stjórnvalda
Félag fasteignasala leggst gegn lagafrumvarpi þar sem fellt verður út það skilyrði að fasteignasali skuli
með beinum hætti eiga meirihluta í fasteignasölu. Ákvæðið var sett í lög árið 2004 og hefur gefist vel að
mati formanns Félags fasteignasala. Óvíða sé meiri samkeppni á fasteignasölumarkaði en á Íslandi.
Mikil samkeppni er á fasteignasölumarkaði og þóknanir óvíða lægri en hérlendis FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Kjartan
Hallgeirsson,
formaður Félags
fasteignasala
AUSTURLAND Fiskeldi Austfjarða
hefur brugðist við mótmælum
heimastjórnar Seyðisfjarðar með
því að falla frá einni af fjórum fyrir-
huguðum staðsetningum fyrir eld-
iskvíar. Um var að ræða varastað-
setningu við Háubakka.
Berglind Harpa Svavarsdóttir,
formaður heimastjórnarinnar,
sagðist fagna þessu samráði á
fundi sveitarstjórnar Múlaþings í
vikunni, þegar rætt var um laxeldi
í Seyðisfirði. Heimastjórnin mót-
mælti einni af fjórum fyrirhug-
uðum staðsetningum kvíanna en
hefur ekki sett sig upp á móti fisk-
eldi almennt í firðinum þrátt fyrir
hávær mótmæli íbúa.
Jódís Skúladóttir sveitarstjórnar-
fulltrúi sagði afstöðu heimastjórn-
arinnar ekki nógu afgerandi. Um
væri að ræða mikið hagsmunamál
sem stór hluti kjósenda á Seyðisfirði
væri mótfallinn.
Bæði Berglind Harpa og Elvar
Snær Kristjánsson drógu í efa gildi
undirskriftalistans, sem íbúar
Seyðisfjarðar færðu bæjarstjóra í
vikunni. Á listanum var 281 undir-
skrift. Spurði Elvar bæjarstjórann
hvort hann hefði sannreynt öll
nöfnin á listanum.
Jódís sagðist ekki skilja hvers
vegna verið væri að draga undir-
skriftalistann í efa. „Það kemur
skýrt fram í skýrslunni að Háu-
bakkar eru sístir og til vara. Að
kasta því fram að hér sé verið að
mæta einhverjum vilja íbúa er
alveg galið,“ sagði Jódís. „Þau er
ekki að mótmæla kvíum við Háu-
bakka. Þau er að mótmæla fiskeldi
á Seyðisfirði.“
Þóra Bergný Guðmundsdóttir,
íbúi á Seyðisfirði, segir bæjarbúa
líta svo á að aldrei hafi átta að setja
niður eldiskví innst í firðinum við
Háubakka. „Það er bara taktík að
nota þetta sem skiptimynt.“ – ilk, bdj
Draga undirskriftalista í efa
Staðsetningin sem um ræðir er við Háubakka. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGRÚN
REYKJAVÍK Breytingar á Óðin s torgi,
sem lokið var við í sumar, kostuðu
alls 60 milljónir að sögn Dags B.
Eggertssonar borgarstjóra. Vig dís
Hauks dóttir, oddviti Miðflokksins,
bókaði á fundi borgarráðs í gær að
kostnaðurinn við Óðinstorg væri
657 milljónir króna.
Fjá r m á l a s v ið b or g a r i n n a r
svaraði fyrirspurn Vigdísar í gær.
Dagur segir að hún hafi lagt saman
fram kvæmdir við torgið en einn-
ig endur gerð Skóla vörðu stígs,
Óðins götu, Spítala stígs, Týs götu,
Loka stígs, Freyju torgs, Freyju-
götu, Bjargar stígs og Óðins götu við
Freyju torg. Þar af hafi Óðinstorg
aðeins kostað 60 milljónir. – la
Breytingarnar á
torginu kostuðu
alls 60 milljónir
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
DÓMSMÁL Kona, sem starfsmaður
Deloitte f letti upp í vanskilaskrá,
segir það hafa verið gert til að valda
henni tjóni. Persónuvernd tekur
undir það með henni að uppflett-
ingin hafi verið óheimil.
Í umfjöllun Persónuverndar um
kæru konunnar kemur fram að til-
tekinn starfsmaður Deloitte hafi
árið 2018 flett henni upp á vanskila-
skrá Creditinfo og gefið það upp að
uppflettingin væri vegna viðskipta.
„Kvartandi kveðst aldrei hafa sóst
eftir viðskiptum við Deloitte og því
hafi henni brugðið þegar hún hafi
orðið vör við umrædda uppf lett-
ingu,“ segir í umfjöllun Persónu-
verndar.
Þá segir að konan hafi fengið þær
skýringar að fyrirspurnir hennar
hafi kallað á þjónustu Deloitte
henni til handa og að í ljósi þess að
um reikningsviðskipti yrði að ræða
hafi henni verið flett upp í vanskila-
skrá.
Konan hafi þá bent á að hún hafi
aldrei óskað eftir þjónustu eða
reikningsviðskiptum við Deloitte.
Fram kemur í umfjölluninni
að konan hafi átt í deilum við tvo
bræður sína vegna erfðamála. Á
árinu 2013 hafi Deloitte gert erfða-
fjárskýrslu um fyrirframgreiddan
arf frá föður konunnar og bræðra
hennar.
Deloitte hafnaði ásökunum kon-
unnar. „Miðað við umrædd sam-
skipti hafi Deloitte verið í góðri trú
um slíkt og hafi því haft lögvarða
hagsmuni af því að kanna hvort sá
aðili sem óskaði eftir þjónustu frá
fyrirtækinu væri borgunarmaður
fyrir þjónustunni,“ segir í umfjöll-
un Persónuverndar um sjónarmið
Deloitte.
Persónuvernd segir ekki unnt að
fallast á að uppflettingin hafi verið
nauðsynleg. – gar
Deloitte fletti konu upp í van skila skrá í heimildar leysi
Konan segir að hún hafi aldrei
óskað eftir þjónustu við Deloitte.
Deloitte hafnaði ásök-
unum konunnar.
1 1 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð