Fréttablaðið - 11.12.2020, Blaðsíða 6
Við leigjum þetta
svæði og getum
ekki stutt slíkt athæfi.
Björn Hembre,
forstjóri Arnarlax
Hafðu samband í síma 568 8000
eða pantaðu gjafakort á borgarleikhus.is
Gefðu
barninu
Gosa
um jólin
GETUM BÆTT VIÐ
OKKUR VERKEFNUM!
Parketlögn
Uppsetning á innréttingum
Ísetning á hurðum og gluggum
ásamt allri almennri smíðavinnu
Gerum tilboð, þér að kostnaðarlausu.
Ívar Guðmundsson – sími: 769 1049
Steve Roberts – sími: 772 2612 – steve@prverk.is
UMHVERFISMÁL „Ég hef upplýsingar
um hver gerði þetta en vil ekki
dreifa þeim til fjölmiðla,“ segir
Björn Hembre, forstjóri Arnarlax,
um mikinn eld á geymslusvæði
félagsins í Auða-Hrísdal, skammt
utan við Bíldudal þar sem laxeldis-
fyrirtækið hefur starfsstöð.
Arnarlax geymir ýmsan búnað
á leigulóð í Auða-Hrísdal. Svæðið
blasir við þegar ekið er úr Bíldudal
út í náttúruperluna Hvestudal og
Selárdal þar sem safn og kirkja lista-
mannsins Samúels Jónssonar eru.
Mánudaginn 23. nóvember varð
vegfarandi var við gríðarmikinn og
kolsvartan reyk sem lagði af báli á
geymslusvæðinu og tók myndina
sem fylgir hér með fréttinni. Virðist
sem meðal annars hafi verið kveikt
í vörubrettum.
„Málið tengist ekki Arnarlaxi sem
voru mjög óhressir með að einhver
færi með úrgang á geymslusvæði
sem þeir nota. Talið er að þarna hafi
rækjuútgerð brennt veiðarfærum,
meira veit ég ekki,“ segir Anton
Helgason, heilbrigðisfulltrúi Vest-
fjarða, við Fréttablaðið.
Að sögn Antons er veiðarfæraúr-
gangur vandamál því hann til-
heyri f lokki sem ekki fari gegnum
Úrvinnslusjóð. Samtök útgerðar-
manna séu með eigin endurvinnslu.
Forstjóri Arnarlax staðfestir að
starfsmenn fyrirtækisins hafi ekki
komið að því að brenna það sem
kveikt var í á geymslusvæðinu.
„Þetta var ekki gert af starfs-
mönnum Arnarlax og það var
ekki búnaður frá Arnalaxi sem var
brenndur,“ segir Björn Hembre.
„Við leigjum þetta svæði og getum
ekki stutt slíkt athæfi. Svo ég er ekki
ánægður,“ bætir hann við.
Bál af þessu tagi er bannað að
kveikja segir Anton. Hann kveðst
ekki vita til þess að áður hafi
úrgangur eða annað verið brennt
á þessum stað. „Ég gekk um þetta
svæði í sumar og hefði tekið eftir
því ef þarna væru reglulegar brenn-
ur,“ segir hann.
Áðurnefndur vegfarandi, sem
ekki vill láta nafns síns getið, segir
umrætt svæði vera mörgum heima-
mönnum þyrnir í augum, því það sé
eins og hálfgerður ruslahaugur.
Anton segir að á svæðinu í Auða-
Hrísdal sé fyrst og fremst að finna
búnað í geymslu. Engar kvartanir
hafa borist heilbrigðiseftirlitinu
vegna svæðisins. „Það hefur enginn
haft orð á þessu við okkur.“
gar@frettabladid.is
Forstjóri Arnarlax óánægður
með brennu á geymslusvæði
Mikinn svartan reyk lagði frá báli á geymslusvæði Arnarlax utan við Bíldudal nýverið. Forstjórinn segir
starfsmenn Arnarlax ekki hafa komið þar nærri. Hann viti hverjir hafi verið að verki en vilji ekki upp-
lýsa það í fjölmiðlum. Heilbrigðisfulltrúi segir talið að um hafi verið að ræða veiðarfæri frá rækjuútgerð.
Rækjuútgerð er talin hafa brennt veiðarfæri í Auða-Hrísdal. MYND/AÐSEND
VIÐSKIPTI „Stöndum við ekki and-
spænis þeirri spurningu að lýð-
ræðinu á Íslandi standi ógn af
auðræðinu?“ segir Logi Einarsson,
formaður Samfylkingarinnar en
hann fékk svör við spurningum
sínum um ríka Íslendinga eins og
Fréttablaðið fjallaði um í gær.
Þar kom fram að ríkustu fimm
prósent íslenskra framteljenda
áttu rúm 40 prósent alls fjár sem
talið var fram til skatts á Íslandi í
fyrra. Þau sem tilheyra ríkasta einu
prósenti landsmanna áttu samtals
865 milljarða en það stappar nálægt
heilum fjárlögum íslenska ríkisins
og þeir sem tilheyra 0,1 prósenti
ríkustu Íslendingana juku eign sína
um 22 milljarða.
Logi hefur lagt þessa fyrirspurn
áður fram á Alþingi og segir að það
sé gert til að fylgjast með þróun
mála enda sýni svarið það sem hinn
svokallaði Gini-stuðull sýni ekki.
„Okkur er tamt að einblína á Gini-
stuðulinn, sem mælir tekjuójöfnuð.
Hann er í sjálfu sér með því betra
sem þekkist í heiminum en það er
eignaójöfnuðurinn sem er kannski
meira vandamál og þetta dulda sem
ég er að skoða.“ Hann segir að það sé
mikilvægt að fylgjast með hvernig
allir þessir fjármunir færist á milli
því hættan sé sú að auðurinn færist
á sífellt færri hendur. „Bara á síðasta
ári jók 0,1 prósent ríkustu einstakl-
ingana eign sína um 22 milljarða,“
bendir Logi á.
Hann segir enn fremur að sama
dag og svarið barst honum hafi
ríkisstjórnin lagt fram tillögur um
skattalækkanir sem eigi að koma
þeim ofurríku til góða. „Það er búið
að lækka bankaskattinn, það er
verið lækka erfðafjárskattinn, það
er verið að lækka fjármagnstekju-
skattinn, við þekkjum söguna um
veiðigjöldin og nú er verið að leggja
fram í efnahags- og skattanefnd til-
lögur sem mylja undir þennan hóp.“
Af svarinu sem tekur til tekna
Íslendinga frá árinu 1998, sam-
kvæmt framlögðum skattfram-
tölum, má sjá að efnamestu Íslend-
ingarnir hafa aukið auðlegð sína
umtalsvert á síðustu tveimur ára-
tugum en í svarinu kemur fram að
eigið fé þeirra sem mest eiga hefur
aukist hlutfallslega í samanburði
við eignir allra landsmanna á þeim
tíma.
„Fimm prósent ríkra Íslendinga
eiga 40 prósent af hreinni eign í
landinu. Auðvitað sjáum við og
vitum að það eru til risar sem hafa
fengið að nýta sameiginlega eign
þjóðarinnar fyrir litla peninga og
í skjóli þess hafa þeir ekki aðeins
safnað ofboðslegum auð heldur eru
þeir nú farnir að hasla sér völl í öllu
mögulegu hvort sem það er dag-
vörumarkaður, dreifing, dagblöð,
tryggingar eða orkuvinnsla. Þetta
er bara hreinlega hættulegt og sam-
félaginu stafar hætta af þessu,“ segir
Logi. benediktboas@frettabladid.is
Segir eignaójöfnuðinn meira vandamál
Ríkasta 0,1 prósentið bætti við sig eignum upp á 22 milljarða á milli ára. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Bara á síðasta ári
jók 0,1 prósent
ríkustu einstaklinganna
eign sína um 22 milljarða.
Logi Einarsson
COVID-19 Í gær tóku gildi breytingar
í sóttvarnareglum sem fela meðal
annars í sér að heimilt var að opna
sundlaugar á ný eftir tveggja mán-
aða lokun. Þá mega veitingastaðir
hafa opið til klukkan 22 og leyfilegt
er að taka á móti fimmtán manns í
hverju rými. Enn er í gildi tíu manna
samkomubann, tveggja metra fjar-
lægðartakmörk og grímuskylda.
Í gær voru 183 einstaklingar í ein-
angrun með COVID-19 hér á landi
og 249 manns voru í sóttkví. Sólar-
hringinn á undan greindust fjórir
einstaklingar með sjúkdóminn, þrír
þeirra voru í sóttkví við greiningu.
32 einstaklingar voru inniliggjandi
á sjúkrahúsi með COVID-19 í gær og
fækkaði þeim um einn milli daga.
Þrír voru á gjörgæsludeild, allir í
öndunarvél.
Frá því að sjúkdómurinn var fyrst
greindur hér á landi í lok febrúar
hafa hér á landi verið staðfest 5.524
tilfelli. Yfir 45 þúsund hafa lokið
sóttkví og tæplega 223 þúsund sýni
hafa verið tekin. 311 einstaklingar
hafa verið lagðir inn á sjúkrahús,
þar af 51 á gjörgæslu.
Þær breytingar á sóttvarna-
reglum sem tóku gildi í gær gilda
til 12. janúar en á upplýsingafundi
almannavarna í gær sagði Þórólfur
Guðnason sóttvarnalæknir að
mögulega yrði reglugerðin endur-
skoðuð á tímabilinu. Þá sagði hann
faraldurinn vera á góðri niðurleið.
– bdj
Faraldurinn á
góðri niðurleið
Enn er í gildi tíu manna
samkomubann
1 1 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð