Fréttablaðið - 11.12.2020, Blaðsíða 34
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Sólarhjólið er eins og lífsins gangur og á því ferðast maður í gegnum tilveruna og mætir
bæði börnum og fullorðnum,
dýrum, furðuhlutum og kostu
legum hugmyndum sem vekja
forvitni manns og hafa sín áhrif.
Sjálfur fer ég flestra minna ferða
á hjóli, svo það er nærtækt, en í
bókinni leik ég mér líka að því að
skapa alls kyns hjól sem eru ekki
enn þá til, svo sem sjóhjól, langhjól
og leikjahjól,“ segir Aðalsteinn
Ásberg Sigurðsson rithöfundur
um nýju barnaljóðabókina sína,
Sólarhjól.
Bókina vann Aðalsteinn í sam
starfi við Högna Sigurþórsson
teiknara en þeir Högni sendu
frá sér barnabókina Kvæðið um
Krummaling sem hlaut af bragðs
góðar viðtökur fyrir þremur árum.
„Hugmyndin að Sólarhjólinu
kviknaði fyrir um tveimur árum
þegar við Högni sátum að spjalli
og urðum sammála um að hjólið
væri skemmtilegt viðfangsefni í
barnabók. Ég lagði strax fyrstu
drög að verkinu sem við höfum
unnið að allar götur síðan en við
Högni vinnum verkin okkar sjálf
stætt og látum þau kallast á þannig
að mynd og ljóð bæti hvort annað
upp,“ útskýrir Aðalsteinn.
Ljóðin í Sólarhjólinu eru sjálf
stæð en tengjast þó innbyrðis og
myndir Högna eru af ýmsu tagi og
stílgerðum.
„Sólarhjólið er ekki beinlínis
saga heldur er farið vítt og breitt
um heim hjólsins og hjólað fram
hjá alls kyns fyrirbærum. Þetta eru
háttbundin ljóð sem eru alls konar
í laginu og bæði ljóð og myndir
eru með fjölbreyttu sniði og stíl.
Á Íslandi er rík hefð fyrir mynd
skreyttum barnaljóðabókum og ég
held það sé gott að blanda saman
ljóðum og myndum fyrir börn
því myndformið er ágengara, það
grípur augað fyrst, situr eftir og
kannski löngu síðar rifjast upp ljóð
við það eitt að sjá myndina.“
Börn hafa gaman af ljóðum
Bókin um Sólarhjólið er hugsuð
fyrir unga lesendur og upp úr.
„Þetta er góð bók til að lesa
með börnum og góð bók fyrir
yngri börn sem hafa yfirleitt
mjög gaman af ljóðformi, rími og
stuðlum. Það er mín reynsla. Þau
læra fljótt heilu hendingarnar og
fá þannig sjálf tilfinningu forminu.
Hugmynd okkar Högna er að þau
fái jafnframt breiða sýn á myndlist
í gegnum bókina. Sólarhjólið ætti
þannig séð að vera listupplifun
fyrir börnin,“ segir Aðalsteinn um
nýju barnaljóðabókina sem er alls
ekki einsleit heldur margleit.
„Þótt bókin sé sköpuð með unga
lesendur í huga verður líka alltaf
að vera eitthvað til staðar sem
grípur eldri lesendur sem koma
að verkinu með þeim ungu. Eitt
hvað sem börn bera ekki endilega
skynbragð á en hægt er að tala um
saman og kemur skemmtilega á
óvart. Það er ekki alltaf allt jafn
einfalt og það virðist við fyrstu sýn
og með kápumyndinni förum við
líka óhefðbundna leið í barna
bókarkápu, enda treystum við
lesandanum til að vega og meta; að
skoða og skilja.“
Berrössuð á tánum 25 ára
Önnur heillandi barnabók sem
kemur út fyrir jólin hjá Dimmu er
25 ára afmælisútgáfa af Berrössuð
á tánum. Efnið kom upphaflega út
á plötum með tónlist Aðalsteins
í eftirminnilegum flutningi hans
sjálfs og Önnu Pálínu Árnadóttur
og var það fyrst f lutt á ótal tón
leikum, en meðal eftirminnilegra
persóna úr þeirri f lóru er til dæmis
kötturinn Krúsilíus.
„Þar er að finna góðkunningja
margra barna sem nú eru orðin
stór, eins og Argintætu, Bullu
tröllin, Eldinn, Hákarlinn og fleiri
persónur sem eru enn í fullu fjöri,“
segir Aðalsteinn.
„Þegar rann upp fyrir mér að
komin væru 25 ár síðan fyrsta
efnið úr þeim sjóði birtist ákvað
ég að Berrössuð á tánum ætti líka
að koma út á bókarformi. Sigrún
Eldjárn myndskreytti á sínum
tíma tvo diska með þessu efni, og
teiknaði mynd með hverju lagi og
ljóði, en nú þegar allt er komið inn
á rafrænar tónlistarveitur týnast
bæði textar og myndir, sem mér
fannst synd. Í nýju útgáfunni er
örlítið af nýju efni líka og virki
lega gaman að geta gefið hana út
nú á afmælisárinu,“ segir Aðal
steinn sem stofnaði bókaútgáfuna
Dimmu árið 1992.
„Ég er svo heppinn að vera minn
eigin útgefandi. Ég fann það út
fyrir löngu að það væri langbest að
ég fengi að ráða yfir mér og mínu
efni sjálfur. Ég er því stundum í
hlutverki útgefandans og þarf að
semja við höfundinn. En þeim
tveim kemur ágætlega saman og
rífast sjaldan, þótt þeir séu ekki
alltaf alveg sammála,“ segir hann
kankvís.
Sjá allt um fjölbreytta útgáfu
Dimmu á dimma.is
Listaupplifun á furðuhjólum
Í barnaljóðabókinni Sólarhjólinu öðlast lesendur spennandi listaupplifun og fara í skemmtilegt
ferðalag á skringilegum hjólum sem enn eru ekki til og mæta þá furðuverum, dýrum og hlutum.
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, rithöfundur og útgefandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
12 1 1 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RBÓKAJÓLKYNNINGARBLAÐ
Aðdraganda Ísblárrar birtu má rekja til upphafs ársins 2018 þegar Ásta ákvað að byrja
árið með því að semja eitt ljóð á dag.
„Ég gerði það alveg í þrjá mánuði
en fór þá aðeins að minnka það,“
útskýrir Ása. Ljóðin í bókinni eru
flest ort um veturinn og vorið það
ár og bera keim af árstíðinni.
Bókinni skiptir Ásta upp í fjóra
kafla eftir innihaldi ljóðanna.
Fyrsti kafli bókarinnar, Djúpbláir
skuggar, fjallar um veturinn og
vorið en eins og fram kemur í ljóð
unum eru myrkrið og ljósið aldrei
langt undan.
Annar kaflinn, Þú heyrir söng
þinn nálgast, fjallar um drauma en
Ásta útskýrir að þegar myrkrið er
sem mest eru draumarnir dökkir.
Síðasta ljóðið er um draum að vori
þegar ljóðmælandinn vill ekki
vakna upp af fallegum draumi ljóss
ins og sólarinnar.
Þriðji kaflinn, Stjörnuhrap, fjallar
um sorgina, návist hennar og dauða
ástvina og fjórði og síðasti kaflinn,
Skuggar okkar þræða götuna, er til
óræðrar persónu.
„Kaflinn er til þín, hver sem þú
ert, það er bara einhver þú en ekki
nein ákveðin manneskja,“ útskýrir
Ásta.
Upphaflega ætlaði Ásta að hafa
fimm kafla í bókinni en hún tók
einn þeirra út þar sem ljóðin í
honum voru sett upp ólíkt hinum.
„Ljóðin sem ég skrifaði um sum
arið eru ekki í bókinni en verða
í þeirri næstu. Það eru prósaljóð
sem fjalla um garðinn minn.“
Ásta útskýrir að þriðji kaflinn
um sorgina og dauðann komi til
vegna þess að hún hefur upplifað
að missa bæði son sinn og bróður
sinn.
„Hún er eiginlega það sem
stendur mér næst, þessi sorg sem
er alltaf til staðar. Hún fer aldrei.
Ég held að styrkleiki minn liggi í
sorginni og angurværðinni. Mér
finnst það oft vera bestu ljóðin
mín, kannski af því þau koma mest
frá hjartanu.“
Fyrsta ljóðabók Ástu, Sonur
frá árinu 2013, fjallar einmitt
um sonarmissinn, en Ásta segir
það tvímælalaust hjálpa henni í
sorginni að yrkja ljóð.
„Þegar ég skrifaði fyrri bókina
þá byrjaði ég stuttu eftir að sonur
minn lést að skrifa miða með
litlum ljóðum. Ég átti bunka af
litlum gulum miðum. Ég fór svo að
raða þeim saman og sá að ég gæti
skrifað bók í hans minningu.“
Styrkleikinn liggur í sorginni
Ásta Björk Sveinbjörnsdóttir gaf út sína aðra ljóðabók, Ísbláa birtu, fyrr á árinu. Í ljóðunum fjallar
Ásta um bæði gleðina og sorgina en hún segir sorgina alltaf standa henni nærri eftir sonarmissi.
Ásta Björk
Sveinbjörns-
dóttir sendi frá
sér ljóðabók
fyrr á árinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Ísblá birta er önnur ljóðabók Ástu.
Ásta er 68 ára á gömul en hún
útskrifaðist úr meistaranámi í
ritlist frá Háskóla Íslands núna í
febrúar. Hún segir að þrátt fyrir að
hafa ekki gefið bækur út fyrr hafi
hún alla tíð skrifað mikið.
„Þegar ég lærði íslensku þá tók
ég ritlist með. Mér fannst það svo
skemmtilegt að ég ákvað að þegar
ég hætti að kenna myndi ég drífa
mig í meistaranámið,“ útskýrir
Ásta sem lét drauminn rætast eftir
að hún lét af störfum.
Ísblá birta er gefin út af fjöl
skyldufyrirtækinu Blómatorginu
á Birkimel. Barnabarn Ástu, Svein
björn Rúnarsson, myndskreytti
bókina og tengdadóttir hennar,
Stefanía Ragnarsdóttir, setti hana
upp fyrir prentun.
Úr lokakafla Ísblárrar birtu
9
við Galtará
klippti ég lokka þína
batt spotta
um minninguna
læsti í öskju
eigraði um
í húminu