Fréttablaðið - 11.12.2020, Qupperneq 44
Viktor Örn og Berglind komu fram í þættinum Matur og heimili á Hringbraut.
Það var sannkölluð jólastemning
yfir hátíðarkvöldverðinum sem
þau framreiddu af hjartans lyst.
Viktor Örn er einn metnaðarfyllsti
íslenski matreiðslumaðurinn og
hefur í gegnum árin prófað sig
áfram með djarfar nýjungar.
Viktor eldaði úrbeinaðan
lambahrygg og brá út af klass-
ískum jólahefðum og „færði nýja
sælkerasteik upp á fat“. Lykilinn
að velgengni í eldamennsku segir
Viktor vera spennandi meðlæti
þar sem brögðin fái að njóta sín
með aðalréttinum. Viktor bauð
upp á dýrindis kartöflumauk,
hungangsgljáðar regnbogagul-
rætur og rauðvínssósu með fyllta
lambahryggnum.
Jólatvist úr sjávarfangi
Viktor Örn tók jafnframt snúning
á forrétti sem tekur örskamma
stund að framreiða. Er hér um að
ræða tvist úr sjávarfangi, risarækj-
um og hörpuskel með skemmti-
legri útfærslu.
„Framreiðsla réttanna skiptir
líka miklu máli og ég legg mikið
upp úr því að bera matinn fallega
fram á borð, það gleður bæði auga
og munn,“ segir landsliðskokkur-
inn Viktor Örn.
Piparmintan minnir á jólin
Berglind veit fátt skemmtilegra
en að bregða á leik í eldhúsinu og
elskar að baka og útbúa ljúffenga
eftirrétti sem bráðna í munni.
Hún er þekkt fyrir bakstur sinn og
ástríðuna í eldhúsinu. Berglind tók
við keflinu þegar kom að eftir-
réttinum.
„Pavlovur eru áttunda undur
veraldar, ég get svo svarið það.
Einu sinni byrjað og þú getur ekki
hætt. Pavlova er hvít og falleg eins
og vetrarsnjórinn og það er eitt-
hvað við piparmintu sem minnir
mann á jólin. Því finnst mér þessi
uppskrift vel við hæfi. Það besta
við þessa uppskrift, fyrir utan
bragðið, er að það má gera hana
kvöldinu áður. Á aðfangadag er svo
hægt að setja hana saman í róleg-
heitunum. Það er eftirréttur að
mínu skapi,“ segir Berglind sem er
mjög slök þegar kemur að matar-
hefðum um jólin og leggur meiri
áherslu á að fólkið hennar og hún
hafi það huggulegt um jólin.
Hér deila þau með lesendum
uppskriftunum af þriggja rétta
hátíðakvöldverðinum.
Pönnusteiktar
risarækjur með mangó
og sesam-majónesi
Fyrir 3-4
Risarækjur og hörpudiskur
2-3 risarækjur á mann
2-3 hörpuskeljar á mann
Sítróna
Olía
Salt og pipar
Mangó salsa
1 stk. ferskt mangó skorið í litla
teninga
½ chillipipar fínt saxaður
2-3 msk. ferskur kóríander eða
graslaukur fínt saxaður
3-4 msk. mangó chutney úr
krukku
Hörpuskel og risarækja eru sett
á sitt hvort grillspjótið. Olíu hellt
yfir og kryddað til með salti. Hitið
pönnuna vel og steikið spjótin.
Best er að elda hörpuskelina
90% af eldunartímanum á annarri
hliðinni og svo snúa rétt til að loka
hinum megin, þá fáum við fallega
gyllta steikingu á aðra hliðina.
Risarækjurnar eru steiktar í um
það bil 3 mínútur á hvorri hlið.
Takið svo spjótin af pönnunni
og á bakka, kreistið smá sítrónu-
safa yfir. Mangó salsa sett ofan
á. Berið fram á fallegum disk og
skreytið. Það passar mjög vel að
hafa gott majónes eða aioli með.
Pestó-fylltur
lambahryggur með
parmesan og hvítlauk
1 stk. lambahryggur ( úrbein-
aður)
5-6 msk. pestó
50 g parmesan
Olía
Salt og pipar
Fylling
Basil pestó
200 g basil
1 hvítlauksrif
45 g ólífuolía
60 g kasjúhnetur eða furuhnetur
50 g eða eftir smekk af parmesan
Hnetunum er velt upp úr olíu og
léttristaðar í ofni á 180 í 6 mínútur.
Sett í blandara eða matvinnslu-
vél með basil, hvítlauk og olíu og
maukað vel saman, rifnum par-
mesan bætt við í lokin, kryddað til
með salti og pipar.
Hryggurinn fylltur og lokað.
Leggið hrygginn með fituhliðina
á brettið. Penslið með smá olíu,
kryddið með salti og pipar, takið
svo fínt rifjárn og rífið hvítlauks-
geira yfir kjötið. Fyllið miðjuna
á hryggnum af pestóinu. Rífið
ferskan parmesan yfir.
Rúllið svo upp hryggnum og
bindið vel með bindigarni.
Ofninn er hitaður í 220°C, þegar
kjötið fer inn í ofninn má lækka
niður í 150°C-160°C. Best er að
nota hitamæli og elda hrygginn
upp í 52°C og láta hann svo hvíla á
bretti í 10-15 mínútur.
Hunangsgljáðar gulrætur
10 stk. íslenskar regnbogagul-
rætur
4 greinar rósmaríngreinar
4 msk. hunang
2 msk. olía
Dill
Salt og pipar
Byrjið á því að hita ofninn í 180°C.
Gulræturnar eru þvegnar vel og
endar snyrtir, svo velt upp úr olíu
og hunangi, kryddaðar með salti
og pipar. Síðan eru þær settar á
bakka og bakaðar í 30-40 mínútur
eða þar til þær eru orðnar mjúkar
í gegn, stráið svo fínt söxuðu dilli
yfir þær.
Kartöflumauk
500 g kartöflur (helst möndlu-
kartöflur)
150 g niðursoðinn rjómi
100 g kalt smjör í teningum
Sjóðið kartöflurnar, skrælið þær
og þrýstið í gegnum sigti til að
þær maukist. Blandið þeim við
heitan niðursoðinn rjómann, hitið
kartöflumaukið við miðlungs hita
og hrærið stanslaust með sleif á
meðan í 5-10 mínútur.
Bætið svo smjörinu við og
hrærið áfram þar til smjörið er
uppleyst og blandað við kartöflu-
maukið. Kryddið til með salti. Gott
er að bæta nokkrum dropum af
truffluolíu saman við til að fá gott
bragð.
Piparmintu-pavlova
með hvítum
súkkulaðirjóma
Botnar (3 stykki í þremur
stærðum)
150 g eggjahvítur, geymdar við
stofuhita
300 g flórsykur
1 tsk. piparmintudropar
Hvít súkkulaðimús
500 ml rjómi
300 g hvítir súkkulaðidropar
Skraut
1 poki Bismark-brjóstsykur
50 g suðusúkkulaði
Hindber eða önnur ber að eigin
vali
Pavlovu-marengsbotnarnir
Setjið eggjahvíturnar í hreina
og þurra hrærivélarskál. Hrærið
á hæstu stillingu í 3-4 mínútur.
Bætið flórsykri saman við smátt og
smátt og hrærið áfram. Þegar allur
flórsykurinn er kominn saman
við hrærið í 5 mínútur til við-
bótar. Bætið piparmintudropunum
saman og á lægstu stillinguna.
Hrærið í 30 sekúndur til viðbótar.
Setjið smjörpappír á ofnplötur og
gerið botnana þrjá. Setjið þrjár
stórar skeiðar af marengsum fyrir
neðsta botninn, tvær skeiðar fyrir
miðju botninn og eina fyrir þá
efstu. Deilið afganginum á milli
og mótið marengsinn með sleikju.
Látið inn í 100°C heitan ofn í 1
klukkustund og 30 mínútur. Opnið
ekki ofninn á meðan marengsinn
er að bakast. Þegar tíminn er
liðinn slökkvið á ofninum og látið
marengsinn vera í ofninum þar til
ofninn er orðinn kaldur. Þetta er
gott að gera kvöldinu áður.
Hvít súkkulaðimús
Setjið súkkulaðidropana í skál.
Hitið rjómann að suðu í potti við
vægan hita en látið ekki sjóða.
Hellið yfir súkkulaðið og látið
standa í 5-10 mínútur eða þar til
súkkulaðið er bráðið. Blandið vel
saman, setjið filmu yfir skálina og
látið í ísskáp í að minnsta kosti 2
klst. eða yfir nótt. Takið þá úr kæli
og þeytið í hrærivél á hæstu still-
ingu þar til rjóminn er þeyttur.
Setjið stærsta botninn á kökud-
isk. Látið súkkulaðirjóma þar yfir.
Endurtakið með hina botnana.
Bræðið súkkulaðið yfir vatns-
baði og kælið lítillega. Skreytið
með muldum brjóstsykri, berjum,
súkkulaðisósu. Svo er voðalega
flott að sigta flórsykur yfir kökuna.
Njótið vel og gleðileg jól.
Fylltur lambahryggur og jólapavlova
Jólin nálgast og tvíeykið Viktor Örn Andrésson landsliðskokkur og Berglind Guðmundsdóttir,
matarbloggari hjá Gulur, rauður, grænn og salt, leika listir sínar og töfra fram hátíðarkvöldverð.
Viktor Örn og Berglind komu fram með réttina sína á sjónvarpsstöðinni Hringbraut. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Pönnusteiktar risarækjur með mangó og sesam-majónesi.
Ómótstæðileg piparmintu-pavlova
með hvítum súkkulaðirjóma.
Matarást
Sjafnar
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn@torg.is
Verslun Guðlaugs A Magnússonar
Skólavörðustíg 10
101 Reykjavík
sími 562 5222
www.gam.is
Jólaskeiðin
2020
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R