Fréttablaðið - 11.12.2020, Blaðsíða 58
Fjöllistakonan Margrét Erla Maack hefur þurft að hugsa í lausnum síðasta árið, enda hefur heimsfaraldurinn sett stórt strik í reikninginn
hjá flestum skemmtikröftum. Hún
hefur þó verið dugleg að nýta sér
tæknina og fundið upp á ýmsu
skemmtilegu til að af la tekna á
þessum fordæmalausu tímum. Um
helgina mun hún bjóða upp á inn-
pökkun gegn vægu gjaldi á Bravó
við Laugaveg, en hún hefur verið
rómuð fyrir skemmtilega framsetn-
ingu á pökkum í Herrafataverzlun
Kormáks og Skjaldar.
„Ég er aðallega í því að bralla
með dóttur minni fjórtán mánaða
þessa dagana en núna undanfarinn
mánuð hefur verið að glæðast í gigg-
heiminum yfir fjarfundarbúnað. Ég
er til dæmis að taka að mér pubquiz
fyrir minni vinnustaði sem er mjög
skemmtilegt, þar sem langf lestir
hafa náð að tileinka sér þennan
fjarfundarbúnað sem er í boði,“
segir Margrét.
Hún hefur líka tekið fjarkennslu-
tíma í Kramhúsinu.
„Það koma ókeypis tímar reglu-
lega í hópinn Fólkið í Kramhúsinu á
Facebook, sem er öllum opinn. Síð-
ustu helgi slógu Reykjavík Kabarett
og Vínstúkan upp fjarskemmtunar-
kabarett í beinni og fólk fékk send-
an mat heim, sem gekk alveg ótrú-
lega vel. Það var virkilega gaman að
setja upp sýninguna með öðrum
skemmtikröftum, en ekki alein
fyrir framan tölvuskjáinn, það gaf
okkur öllum ótrúlega mikið. Svo tek
ég nokkrar jólavaktir í bestu búð í
heimi, Herrafataverzlun Kormáks
og Skjaldar, þessa aðventuna eins
og fyrri ár, og fæ jólin alveg beint í
æð þar.“
Margrét segir það hafa tekið smá
tíma að komast upp á lagið með að
skemmta í gegnum streymi.
„Það er alveg smá skrýtið fyrst
að vera með einhverja skemmtun
og svo alveg „Bless takk fyrir mig“
og fólk er að hlæja og klappa. Loka
síðan bara forriti og tölvunni og
við tekur þögn. En þegar við vorum
með fjarkabarettinn þá vorum við
í sama rými og gátum fagnað og
klappað, auk þess sem streymi-
forritið sem við notuðum var með
lifandi athugasemdum frá áhorf-
endum sem var rosalega gaman.“
Algjör hugleiðsla
Hvernig kom þessi hugmynd með
innpökkunina til?
„Veg na f jöldat ak markana í
Herra fataverzluninni fékk ég aðeins
færri vaktir en ég hefði viljað, og svo
sá ég verkefnið Sköpum líf í lokun.
Því ákvað ég að athuga hvort ekki
væri hægt að smella upp lítilli inn-
pökkunarverksmiðju nokkra daga.
Þetta er algjör hugleiðsla fyrir mig,
að dúlla mér í þessu. Svo ég er ekki
bara að skapa mér vinnu, heldur er
þetta líka bara góð tilbreyting.“
Margrét er alin upp með annan
fótinn í barnafataverslun í Banka-
stræti, svo innpökkun hefur alltaf
legið vel fyrir allri fjölskyldunni.
„Sem unglingur var ég komin í
fína æfingu, sem datt svo niður en
lifnaði aftur við í Herrafataverzlun-
inni. Núna er ég komin í mjög góða
æfingu sem hófst um miðjan nóv-
ember.“
Hún segir sitt aðalsmerki í inn-
pökkun vera skyrtupakkana.
„Einhvern tímann var ég að
pakka skyrtu í slíkan pakka en
konan sem ég var að pakka inn
fyrir varð smá reið. „Nú veit hann
hvað þetta er!“ Þannig að ég þurfti
að pakka honum inn aftur og öðru-
vísi. Mér fannst það smá fyndið, en
konan var sátt að lokum og piltur-
inn fékk sína skyrtu í dulúðugum
pakka sem gaf ekkert upp.“
Jólastemning
Hvaða ráð hefur þú fyrir skemmti-
lega innpökkun?
„Besta ráðið er frá mömmu: Það
þarf ekki að pakka öllu inn. Ef hluti
af gjöfinni eru fagrir hanskar, húfa
eða flott eldhúsáhald, er sniðugt að
hafa það bara bert utan á pakkan-
um. Ef pakkinn er rosalega klaufa-
legur þá er um að gera að setja bara
nógu stóra slaufu eða greni. Þegar
við tökum upp pakkana hjá for-
eldrum mínum setjum við allt sem
er endurnýtanlegt í poka, borða,
skraut og slíkt. Svo ég þurfti lítið að
kaupa fyrir þetta verkefni. Ef þú ert
að pakka nálægt jólum er gaman
að setja eitthvað lifandi á pakkann,
greni eða chilipipar.“
Finnst þér það gera mikið fyrir
gjöfina að hún sé skemmtilega inn-
pökkuð?
„Stundum skipta umbúðirnar
máli. Fallegur pakki er svona auka-
gleði, svo ef þú ert með einhvern
sparipakka, endilega komdu með
hann til mín,“ segir hún og hlær.
Margrét stefnir á að skapa alvöru
jólastemningu á morgun.
„Stemningin verður yndisleg,
leyfi ég mér að segja. Þetta er auð-
vitað ákveðin tilraun og fyrir þau
sem halda að biðin verði löng þá get
ég sagt að ég er mjög snögg að pakka
inn. Nokkrar vinkonur ætla að líta
við og grípa í límband líka á álags-
tíma. Best að taka fram samt strax
að barinn er að sjálfsögðu lokaður.
Svo verður grímuskylda og spritt.“
Innpökkunin er liður í verkefn-
inu Sköpum líf í lokun, sem hefur
heldur betur glætt miðbæinn lífi
og fjöri undanfarið.
„Þetta er bara yndislegt. Um dag-
inn í snjókomunni og kuldanum
stóð Teitur Magnússon í glugga með
tónleika, þetta er mjög skemmtilegt
og falleg tilbreyting á eftirminni-
legum tímum.“
Innpökkunin er í boði frá klukk-
an 13.00 til 18.00 á morgun og á
sunnudaginn.
steingerdur@frettabladid.is
Falleg innpökkun
gerir góða gjöf betri
Um helgina stendur Margrét Erla Maack fyrir innpökkun á Bravó
á Laugavegi, en hún hefur verið rómuð fyrir hæfni í sína í að föndra
flotta pakka. Viðburðurinn er liður í verkefninu Sköpum líf í lokun.
Hún sýnir lesendum hvernig á að gera skemmtilegan skyrtupakka.
Fjölskylda Margrétar rak barnafataverslun og lærði hún því snemma að pakka fallega inn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
1. Leggið borðann á flatan pakkann úti við endann. Best er að gera þetta
við mjúka pakka eða flata. Brjótið tvisvar svo borðinn sé innan í brotinu.
2. Klippið eins og einn þriðja inn á við báðum megin.
Kraginn er þetta sem borðinn er innan í. Það má brjóta
upp á axlirnar á pakkanum og líma ef fólk vill. 3. Snúið pakkanum við og myndið skyrtukragann.
Hægt er að sjá
hvernig gera
skal þennan
skemmtilega
pakka á vef
Fréttablaðsins
í dag, en hann
hefur slegið í
gegn á TikTok.
ÞETTA ER AUÐVITAÐ
ÁKVEÐIN TILRAUN OG
FYRIR ÞAU SEM HALDA AÐ BIÐIN
VERÐI LÖNG ÞÁ GET ÉG SAGT AÐ
ÉG ER MJÖG SNÖGG AÐ PAKKA
INN.
1 1 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ