Víkurfréttir - 11.11.2020, Blaðsíða 10
Smávægilegir árekstrar á línuslóðum
Og tíminn heldur áfram, ekki er nú beint hægt að segja að nóvember byrji
vel. Veðurfarið hefur gert sjómönnum lífið ansi erfitt og þegar þessi pistill
er skrifaður hafa bátar lítið komist á sjóinn það sem er nóvember.
Þeir bátar sem hafa komist út
hafa ekki fiskað mikið. Maron GK
er með 2,9 tonn í aðeins þremur
róðrum á netum en svo virðst vera
sem Faxaflóinn sé búinn gagnvart
netaveiðunum því þar var veiðin í
október orðin frekar lítil. Maron GK
byrjaði í Faxaflóa en var kominn
undir Garðskaga í síðasta róðri
sínum.
Aftur á móti hafa línubátasjómenn
orðir þess varir að þorskurinn virðist
vera að ganga inn á miðin út af Sand-
gerði því t.d í október var mjög mikið
af ýsu í afla bátanna, allt upp í um
80% af aflanum var ýsa. Núna á
laugardaginn síðasta fóru tveir línu-
bátar út frá Sandgerði, Máni II ÁR og
Alli GK. Alli GK var með 1.396 kg af
ýsu og 1.339 kíló af þorski en Máni
II ÁR var reyndar með mun meira
af ýsu eða um 1,5 tonn og 545 kíló af
þorski. Það skal tekið fram að þetta
er ekki heildaraflinn hjá bátunum,
þarna vantar þó nokkuð upp á
aflann hjá þeim. Þetta voru tölurnar
sem voru komnar þegar pistillinn var
skrifaður.
Netabáturinn Erling KE er kominn
úr slipp en framundan hjá honum
eru netaveiðar og ansi mikill kvóti
sem eftir er að veiða á bátnum,
því alls á Erling KE eftir óveidd
1.631 tonn. Það verður fróðlegt að
sjá hvort að þeir á Erling KE leyti
fyrir sér utan við Sandgerði því
Faxaflóinn er orðinn frekar dapur.
Einn netabátur hefur verið í
Grindavík og er það Hraunsvík GK,
aflinn hjá honum hefur frekar lítill,
um 1,5 tonn í þremur róðrum.
Reyndar er nokkuð merkilegt að
sjá Grindavík og hvernig október og
nóvember eru þar. Þessi stóra höfn,
þar er svo til lítið sem ekkert um að
vera því enginn línubátanna sem
eru gerðir út þaðan eru að landa í
heimahöfn sinni, þrátt fyrir að mikið
magn af fiski sé unnið í Grindavík en
stærstum hluta þess er ekinn suður
til vinnslu.
Reyndar hefur orðið smá breyting
þar til góðs því eftir að Þorbjörn
ehf. lagði línubátnum Sturlu GK og
keypti togbátinn Sturlu GK hefur
Sturla GK landað í Grindavík, sem
er gott mál. Þótt Sturla GK hafi
landað í Grindavík þá hefur bát-
urinn ekki verið að veiðum þar fyrir
utan, heldur hefur báturinn verið
að veiðum á línuslóð utan við Sand-
gerði núna í um fjórar vikur.
Það hefur skapað pínu árekstra
þegar línubátarnir frá Sandgerði hafa
verið út á sínum miðum, sem erum
fjórar mílur út frá Sandgerði, að
Sturla GK er beint í línuslóð þeirra.
Ekki alls fyrir löngu fór línubátur
út, lagði línuna og lét skipstjórann á
Sturlu GK vita en hann svaraði ekki,
á endanum kölluðu þeir upp gæsluna
og létu hana kalla í Sturlu GK svo
hann myndi ekki toga í línuna.
Svæðið þarna utan við Sandgerði
er nú reyndar mjög þekkt togsvæði
og það er hægt að fara ár hvert 50
ár aftur í tímann og lengra og alltaf
er hægt að sjá að togbátar hafa veitt
þarna fyrir utan.
Ef við förum mjög langt aftur í
tímann, aftur fyrir árið 1950, þá voru
það ekki Vestmannaeyjar sem voru
aðalverstöðin og miðin þar í kring.
Nei, það voru nefnilega miðin út af
Sandgerði. Bátar frá Sandgerði og
Keflavík réru mikið á þessu sömu
mið og talað er um varðandi Sturlu.
Í raun þá má fara enn lengra aftur
tímann, þegar Bretar voru með tog-
skipin sín, þá voru þau líka mikið á
veiðum utan við Sandgerði.
Ansi ótrúlegt að hugsa að miðin
þarna úti eigi sér meira enn 120 ára
sögu, ef ekki lengri, og alltaf hafa
þessi mið verið gjöful af fiski.
Með þessum pistli fylgir stutt
myndband af Mána II ÁR og Alla GK
koma til Sandgerðis snemma núna í
nóvember.Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
MYNDSKEIÐIÐ ER AÐEINS AÐGENGILEGT Í RAFRÆNNI ÚTGÁFU VÍKURFRÉTTA
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Fræðslunefnd Grindavíkurbæjar telur mikilvægt að sett sé á laggirnar stuðningsteymi fyrir skólastjórn-
endur þegar aðlaga þarf skólastarf að nýjum forsendum eins og vegna óvæntra aðstæðna. Þetta kemur
fram í gögnum síðasta fundar fræðslunefndar frá 5. nóvember síðastliðnum þar sem kórónuveiran og
Covid-19 voru til umræðu.
„Það teymi myndi funda með stjórnendum í upphafi breytinga og skapa umræðugrundvöll og sam-
vinnu milli stjórnenda og stofnana ásamt því að halda áfram að samræma og halda upplýsingaflæði
gangandi milli aðila,“ segir í gögnum nefndarinnar.
Mikilvægt að sett sé á laggirnar
stuðningsteymi fyrir skólastjórnendur
DEKKJASKIPTI
VERÐ FRÁ 7.990 kr.
SLEPPTU BIÐINNI OG BÓKAÐU Á
WWW.BILAHOTEL.IS
ALHLIÐA BÍLAÞJÓNUSTA
GEYSIR - BOGATRÖÐ 11, ÁSBRÚ
SÍMI 455-0006
FIMMTUDAG KL. 20:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
10 // aFlaFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár