Víkurfréttir - 11.11.2020, Blaðsíða 24
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga frá kl. 09:00 til 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
S t æ r s t a f r é t t a - o g a u g l ý s i n g a b l a ð i ð á S u ð u r n e s j u m
Mundi
Takk fyrir Trump
Undanfarin fjögur ár hafa margir
velt því fyrir sér hvernig Banda-
ríkjamönnum tókst að kjósa bjána
eins og Donald Trump í embætti
forseta. Samkvæmt mjög svo
óháðri skoðanakönnun sem gerð
var á Íslandi var niðurstaðan sú
að á Íslandi fengi Trump um 8%
atkvæða. Við myndum auðvitað
ekki kjósa trúð eins og Trump í
embætti forseta. Sama hvað okkur
finnst þá virðist Trump hafa verið
þeim sem kusu hann góður forseti.
Annað verður ekki skilið á þeim
fjölda atkvæða sem hann hlaut í
kosningunum nú, þrátt fyrir yfir-
vofandi tap. Ekki hafa fleiri kosið
í Bandaríkjunum hlutfallslega í
100 ár. Það gengur hins vegar illa
að telja atkvæði. Rúmri viku eftir
kosningar hefur enn ekki formlega
verið úrskurðað um sigurvegara.
Hvernig má þetta vera á heimili
hinna frjálsu og hugrökku?
Forsetakosningar í Bandaríkj-
unum eru töluvert öðruvísi en þær
sem við Íslendingar göngum til á
fjögurra ára fresti. Í fyrra gátum við
valið milli þess að setja X við Guðna
eða Gúnda. Munurinn var sláandi.
Guðni fékk nánast öll atkvæðin
enda sitjandi forseti. Aðalmálið að
kosningunum loknum var hvað í
andskotanum Gúndi hefði verið að
vilja upp á dekk. Kostnaðurinn við
kosningarnar ríflega 400 milljónir. Á
sama tíma stærum við okkur að því
að vera lýðræðisríki. Kjósum sveita-
stjórnir á fjögurra ára fresti, Alþingi
á fjögurra ára fresti og kjósum for-
seta á fjögurra ára fresti. Forsetinn
ræður að vísu litlu, meira svona upp
á punt. Bæjarstjórar eru ráðnir af
þeim flokkum sem mynda meirihluta
að loknum kosningum. Sums staðar
eru þeir „ópólitískir“ en það þýðir að
þeir voru ekki á framboðslista flokk-
anna. Ráðherraembættum á Íslandi
er úthlutað til meirihlutaflokka eins
og sælgæti að loknum kosningum.
Ráðherrar í Íslandi ráða mismiklu.
Oft eru það embættismennirnir sem
setið hafa í ráðuneytunum áratugum
saman sem halda í taumana.
Kjörseðill Bandaríkjamanna sem
tugir milljóna Bandaríkjamanna
senda í pósti inniheldur miklu fleiri
atriði heldur en að merkja bara X við
Joe Biden eða Donald Trump. Mis-
munandi eftir fylkjum. Kosið um alls
kyns menn og málefni, saksóknara,
dómara, yfirmann sorphirðingar,
slökkviliðsstjóra, borgarstjóra, ríkis-
stjóra og jafnvel hvort lögleiða eigi
eiturlyf með öllu – og ef einhver er að
hugsa af hverju þeir kjósa ekki raf-
rænt þá þurfum við að átta okkur
á því að Bandaríkjamenn nota enn
ávísanir. Launþegar fá enn útborgað
með ávísunum.
Kjörseðillinn í Bandaríkjunum
veltir upp mörgum spurningum
um lýðræðið á Íslandi. Af hverjum
kjósum við ekki bæjarstjóra til fjög-
urra ára í senn, slökkviliðsstjóra eða
persónukjör til Alþingis? Af hverju
er okkur ekki boðið, þegar kosið er
til þings, að kjósa um þau málefni
eða verkefni sem við viljum helst
að verði kláruð í okkar kjördæmi á
komandi tímabili? Við værum þá
líklega búin að fjórfalda Reykjanes-
brautina. Skyldi vera að íslenska
flokksræðið sé hér allt að drepa eða
bara þríeykið. Samansafn embættis-
manna sem enginn kaus en er búið
að rústa efnahag þjóðarinnar. Hver
var með það á stefnuskrá sinni fyrir
síðustu alþingiskosningar að ná 25%
atvinnuleysi á Suðurnesjum í boði
sóttvarna?
Það er hollt að líta eigin barm áður
en maður óskapast yfir fávitaskap
annarra. Niðurstaðan er gæti verið
sú að maður sé mesta fíflið sjálfur.
Grindvíkingar eru
auðvitað illa brenndir
eftir Tyrkjaránið.
LO
KAO
RÐ
Grindavík hefur ekki tök á að taka á móti flóttafólki
Grindavíkurbær hefur ekki tök
á að taka þátt í verkefni félags-
málaráðuneytisins en ráðuneytið
leitar að sveitarfélögum sem eru
áhugasöm um að taka þátt í verk-
efni um móttöku flóttafólks sem
koma til landsins á eigin vegum.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og
fræðslusviðs Grindavíkurbæjar sat
fund bæjarráðs undir þessum dag-
skrárlið. Ráðuneytið leitar að sveit-
arfélögum sem eru áhugasöm um
að taka þátt í verkefni um móttöku
flóttafólks sem koma til landsins
á eigin vegum. „Grindavíkurbær
hefur ekki tök á að taka þátt í verk-
efninu,“ segir í afgreiðslu bæjarráðs.
Verslanir N1 um land allt
Akureyri s. 440 1420 • Blönduós s. 440 1339 • Húsavík s. 440 1448
Höfn s. 478 1940 • Ísafjörður s. 456 3574 • Klettagarðar s. 440 1330
Ólafsvík s. 436 1581 • Patreksfjörður s. 456 1245 • Reyðarfjörður s. 474 1293
Reykjanesbær s. 421 4980 • Vestmannaeyjar s. 481 1127
Kuldaboli er
kominn á kreik
Dimex kuldagalli
Vattfóðraður kuldagalli
með renndum brjóstvösum.
Litur: Svartur. Stærðir: S–3XL.
Olympia ullarbolur
Langerma ullarbolur með
kraga og rennilás úr merinóull.
Litur: Svartur. Stærðir: S–2XL.
Leðurhanskar
Fóðraðir Tegera
leðurhanskar með
riflás.
Litur: Ljós. Stærðir: 9, 10, 11.
Vettlingar
Hlýir Showa 451
vettlingar með
góðu gripi.
Ca 25 cm háir.
Dimex húfa
Dimex prjónahúfa.
Litur: Dökkgrár.
Ein stærð.
K2 kuldagalli EN471 CL.3
Vattfóðraður kuldagalli með
cordura efni á álagsflötum.
Með rennilás á skálmum.
Hægt að taka hettuna af.
Litur: Gulur. Stærðir: XS–5XL.
Olympia föðurland úr ull
Föðurland úr merinóull.
Ekki með klauf.
Litur: Svartur. Stærðir: S–2XL.
Vnr. 9609 648
Vnr. A546 JSB517-16
Vnr. 9640 335 Vnr. 9658 451
Lambhúshetta
Lambhúshetta
úr flísefni, fóðruð
með bómull.
Ein stærð.
Vnr. A421 2 Vnr. 9609 4260+
Vnr. 9616 K2 2009
A546 JSB517-21
ALLA LEIÐ
440 1000 n1.is