Feykir - 18.12.2019, Page 19
48/2019 19
Sauma kyrtil fyrir fjallkonu Skagfirðinga
Konurnar í Pilsaþyt safna fyrir stórverkefni
Félagsskapurinn Pilsaþytur,
sem í eru konur í Skagafirði
sem hafa það að markmiði,
og hafa verið duglegar við,
að efla notkun þjóðbún-
inga við hin ýmsu tækifæri.
Þær hafa nú ákveðið að
ráðast í að sauma kyrtil
fyrir fjallkonu Skagfirðinga
til að skarta á þjóðhátíðar-
degi Íslendinga og við fleiri
tækifæri. Hafa þær m.a.
hafið sölu á dagatölum,
sótt um styrki og biðlað til
félagasamtaka, fyrirtækja
og almennings um stuðn-
ing svo draumurinn geti
orðið að veruleika.
Félagskonur hafa verið einkar
duglegar við að vera uppá-
búnar á ýmsum atburðum í
Skagafirði undanfarin ár og
vakið að vonum mikla athygli.
Félagsskapurinn hefur verið
starfandi um nokkurt skeið en
varð formlegur í upphafi þessa
árs. Ásta Ólöf Jónsdóttir,
formaður, segir að nú hafi
verið ákveðið að ráðast í það
mikla verkefni að sauma kyrtil
sem yrði til afnota fyrir
fjallkonu Skagfirðinga á 17.
júní og við önnur opinber og
hátíðleg tækifæri. Búningurinn
yrði í eigu og á ábyrgð félags-
ins, en eins og áður sagði, til
afnota við ýmis tækifæri.
„Á kyrtli er útsaumur við
hálsmál og á neðanverðu pilsi
og ermum. Skautfaldur, blæja
og spöng er notað við kyrtilinn
og auk þess belti og næla. Slíkt
verkefni útheimtir bæði mikla
vinnu og kostar einnig töluvert
fé. Vinnuna munum við
Pilsaþytskonur leggja fram en
ljóst er að efniskostnaður og
skart hleypur á hundruðum
þúsunda króna,“ segir Ásta.
Sveitarfélagið Skagafjörður
hefur nú þegar veitt þeim
stöllum styrk til kaupa á efni í
kyrtilinn svo hægt sé að hefja
saumaskapinn.
„Næsta verkefni er því að
afla fjár til kaupa á skartinu
sem borið er við búninginn og
höfum við því ákveðið að leita
til fyrirtækja í Skagafirði og
óska eftir framlögum til verk-
efnisins. Margt smátt gerir eitt
stórt og öll framlög skipta
máli.“ Ásta vonast til að sem
UMSJÓN
Páll Friðriksson
flestir sjái sér fært að láta eitt-
hvað af hendi rakna til þessa
samfélagsverkefnis. Hægt er að
leggja inn á reikning 0l61-26-
200004, kt. 690319-1010.
Um síðustu helgi stóðu
Pilsaþytskonur í Skagfirðinga-
búð og seldu dagatöl sem þær
hafa látið útbúa og hægt að
nálgast hjá þeim. Var þeim vel
tekið og sýnt að áhugi fólks
fyrir verkefninu er mikill.
Kyrtillinn
Skagfirðingurinn Sigurður
Guðmundsson, málari, (f. 9.
mars 1833, d. 7. september
1874) vildi að konur tækju upp
þjóðlega sparibúninga og
hannaði í þeim tilgangi skaut-
búning og síðan kyrtil árið
1870. Kyrtillinn var talsvert
notaður við fermingar og
brúðkaup í kringum alda-
mótin 1900. Á vefsíðunni
buningurinn.is segir að kyrt-
illinn hafi verið léttur og
einfaldur í sniði, úr silki, satíni
eða þunnu bómullar- eða
ullarefni, stöku sinnum úr
flaueli. Sigurður vildi að kyrt-
illinn væri hvítur en fljótlega
saumuðu konur dekkri kyrtla,
bláa, græna eða svarta. Kyrt-
illinn var rykktur undir beru-
stykki að framan og aftan,
hálsmál var ferkantað og opið
að framan og ermar hálfsíðar
ísettum ermum sem víkka
fram á við. Skreytingar eru
saumaðar á berustykki, framan
á ermar og neðan á fald.
Mynstur þá haft stærra á faldi
en að ofan. Mynstur og skreyt-
ingar geta verið ýmiss konar.
Höfuðbúnaður
Skautfaldurinn er hvítur og er
nokkurs konar húfa úr bómull
fyllt upp með tróði, oft ull áður
fyrr. Utan yfir faldinn er önnur
hvít húfa úr silki eða fínni
bómull. Faldurinn er festur í
hárið með kambi og spennum.
Blæja úr tjulli er síðan sett yfir
faldinn. Blæjur geta verið mis-
síðar en eru oftast niður á mitt
bak. Blæjan getur verið með
ídregnu blómamynstri úr
hvítum fínum þræði og nánast
alltaf með blúndu í útbrún.
Skartið
Spöng, koffur eða stjörnuband
er sett utan um höfuðbúnaðinn.
Hnýtt saman að aftan og hvílir
á höfðinu. Spöng er heil örlítið
sporöskjulaga kóróna smíðuð
úr silfri. Gyllt ef þess er óskað.
Koffur er samansett úr miðju-
stykki að framan sem rís
nokkuð hátt. Til hliðar eru 3-4
minni stykki sem hlekkjast
saman. Stjörnuband er stífað
hvítt léreftsband u.þ.b. 3-4 sm á
breidd. Á það eru festar
stjörnur eða önnur smástykki
svo úr verður langur renningur.
Við kyrtilinn er borið belti,
gjarnan stokkabelti, smíðað úr
silfri og gyllt ef þess er óskað.
Þá er borin næla í barmi.
og víðar. Blúnda var í hálsmáli
og fremst á ermum. Útsaumur
eða leggingar voru á beru-
stykki, framan á ermum og
neðan á pilsi og teiknaði
Sigurður sérstök munstur fyrir
kyrtilinn. Höfuðbúnaður var sá
sami og við skautbúning,
faldur, faldblæja og faldhnútur.
Koffur úr gylltu silfri var borið
við faldinn, silfurnæla var við
hálsmál og stokkabelti tók
kyrtilinn saman í mitti. Við
ljósa kyrtla voru notaðir ljósir
sokkar og skór en svartir við
aðra.
Kyrtill er heilsniðin ökklasíð
flík. Þröng yfir axlir en víkkar
niður að faldi. Hann er með
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, núverandi formaður ÖBÍ, í hlutverki fjallkonunnar í
fylgd kvenna úr hinum Skagfirsku Maddömum. Skautbúningurinn, sem Þuríður
klæddist var gjöf frá móðurömmu hennar, Þóru Guðmundsdóttur, og hafa hinar
ýmsu fjallkonur honum skartað á Sauðárkróki síðan. MYND: GJ
Svona skal kyrtill líta út.
Mynd af netinu
Ásta Ólöf Jónsdóttir og alnafna hennar og barnabarn, ásamt Jóhönnu Björnsdóttur stóðu vaktina í Skagfirðingabúð sl. laugardag
og seldu dagatöl fyrir Pilsaþyt. MYND AF FACEBOOK.