Faxi - 2020, Page 8
8 FAXI
Þ ó ekki vanti umfjöllun um kórónu-veirufaraldurinn hefur markmið ritstjóra og blaðstjórnar Faxa frá
upphafi verið að íbúum þessa svæðis gefist
kostur á að fylgjast með því hvað sé að
gerast, ekki síst í menningar- og framfara-
málum. Því hefur verið fleygt, að þrátt fyrir
alla þá erfiðleika sem faraldrinum hefur
fylgt megi draga af þeim lærdóm, m.a.
varðandi framfaramál. Vinnandi fólk muni
nýta tæknina betur til fundarhalda, sem
hefur ekki eingöngu tímasparnað í för með
sér og aukna skilvirkni, heldur minnkun
kolefnisspors.
Ritstjóri lagði fyrir bæjarstjórana fjóra á
Suðurnesjum sex spurningar þar sem m.a.
var reynt að fá fram hvort mögulega mætti
draga jákvæðan lærdóm af faraldrinum.
Samstaða, aukin skilvirkni
og minna kolefnisspor
- er það jákvæða sem draga má fram í kórónuveirufaraldri
1. Hver hafa stærstu áhrifin af Covid 19 verið á þitt bæjarfélag?
2. Hverjar hafa verið stærstu áskoranirnar fyrir íbúa?
3. Hvaða viðspyrnu hafið þitt veitt til að dempa áhrifin?
4. Telur þú að kórónuveirufaraldurinn muni hafa veruleg áhrif á vinnulag
til framtíðar, jafnt í stjórnsýslunni sem hjá fyrirtækjum í bænum?
5. Nú þegar glittir í 2021 hvernig sérðu stöðu þíns bæjarfélags
í skugga heimsfaraldurs á nýju ári?
6. Hvaða lærdóm má draga af áhrifum faraldins?
Kannski einhvern jákvæðan? ?