Faxi - 2020, Blaðsíða 11
FAXI 11
Kjartan Már Kjartansson
bæjarstjóri í Reykjanesbæ
1. Covid hefur haft mikil áhrif á starfsemi
Reykjanesbæjar líkt og þjóðfélagið allt. Ef
við horfum til bæjarbúa þá hefur þurft að
skerða þjónustu þegar fjöldatakmarkanir
hafa verið settar. Í fyrstu bylgjunni þurftum
við til að mynda að loka bókasafni og þjón-
ustuveri bæjarins, auk menningarhúsanna.
Þá var skerðing á skólastarfi og sundlaugar
og íþróttamannvirki lokuð. Í þriðju bylgj-
unni nú í haust þegar fjöldatakmarkanir
fóru niður í 10 manns þurftum við aftur að
loka á ákveðnum stöðum en náðum að hafa
þjónustuverið opið og starfsemi skólanna
var ekki eins takmörkuð og í fyrstu bylgj-
unni. Almennar smitvarnir hafa svo auð-
vitað sett svip sinn á alla starfsemina. Við
höfum til að mynda þurft að passa vel upp á
skjólstæðinga okkar í velferðarþjónustunni
sem margir tilheyra viðkvæmum hópum.
Þegar horft er á áhrif veirunnar á starf
okkar þá hafa allar einingar og starfs-
stöðvar þurft að aðlaga sig á einhvern hátt.
Byggingar sem hýsa starfsemi bæjarins
henta misvel við svæðaskiptingar svo
heimavinna hefur aukist til muna hjá þeim
starfsmönnum sem geta sinnt störfum að
hluta eða öllu leyti heiman frá sér. Passa
þarf gríðarlega vel upp á hreinlæti, halda
fjárlægðarmörk og fjöldatakmarkanir. En
þrátt fyrir krefjandi aðstæður á köflum þá
tel ég að við höfum náð að halda góðu þjón-
ustustigi og aðlaga okkur að takmörkunum
hverju sinni.
2. Íbúar Reykjanesbæjar hafa flestir þurft
að breyta daglegu lífi sínu á einhvern hátt.
Þegar við horfum til sóttvarna þá hugsa ég
að stærsta áskorunin sé tengd félagslega
þættinum. Að þurfa að takmarka mikið
þá sem þú átt í samskiptum við, þurfa að
sleppa stórafmælinu, fermingarveislunni
eða brúðkaupinu sem var búið að skipu-
leggja marga mánuði fram i tímann. Önnur
stór áskorun sem við glímum nú við og er
afleiðing veirunnar er mikið atvinnuleysi
á svæðinu. Flugvöllurinn er gríðarlega
stór vinnustaður og á meðan flug liggur að
mestu niðri verða krefjandi tímar.
3. Meðal aðgerða sem Reykjanesbær hef-
ur farið í er að heimila fyrirtækjum að óska
eftir fresti á greiðslu fasteignagjalda fyrir at-
vinnuhúsnæði, farið var í atvinnuátak með
Vinnumálastofnun, boðið var upp á 250 ný
sumarstörf fyrir námsmenn, þá var komið
til móts við foreldra með lækkun gjalda í
frístunda- og leikskólum þegar þjónusta
var skert, sérstakt framlag var veitt til
þjónusturekinna leikskóla auk framlags til
dagforeldra. Einnig tók bæjarráð ákvörðun
um að ráðast í mannaflafrek verkefni til að
auka atvinnutækifæri. Menningarhúsin hafa
svo verið dugleg að bjóða upp á viðburði
sem kalla ekki á að stór hópur komi saman
til að létta okkur lundina. Dæmi um það
eru streymi frá tónleikum Hljómahallar,
ratleikur um bæinn fyrir alla fjölskylduna,
krakkajóga, viðtöl, upplestur og annað
áhugavert efni á vef- og samfélagsmiðlum
okkar.
4. Já ég tel að faraldurinn hafi veru-
leg áhrif á vinnulag til framtíðar. Margir
horfa nú öðrum augum á heimavinnu sem
þótti ekki koma til greina áður. Margir
geta hugsað sér að vinna heiman frá sér í
framtíðinni óháð Covid faraldrinum en svo
eru auðvitað aðrir sem vilja heldur mæta á
vinnustaðinn alla daga. Mér finnst líklegt að
mörg fyrirtæki, þar sem heimavinna hentar,
muni bjóða áfram upp á þann möguleika
fyrir starfsmenn. Annað sem ég tel að muni
breytast er fundahald. Í dag kunna allir,
sem á annað borð þurfa að sitja fundi vegna
vinnu sinnar, á fjarfundi. Það kemst enginn
upp með annað en að tileinka sér þá tækni.
Það er margt jákvætt sem fæst með því að
nýta fjarfundatækni, t.a.m. skilvirkni og
tímasparnaður þó að það sé skemmtilegra
að hitta fólk í eigin persónu. Ég held að það
sé engin spurning að fjarfundir muni verða
áfram mikið notaðir þó að Covid veiran
kveðji okkur.
5. Það er erfitt að segja. Auðvitað óskar
maður þess og vonar að hægt verði að hefja
bólusetningar á fyrri hluta ársins en við
verðum bara að bíða og sjá. Það er ljóst að
við þurfum að gera ráð fyrir einhverjum
takmörkunum áfram inn í árið 2021. Það er
óskandi að flug muni aukast með hækkandi
sól þó við vitum öll að það er töluvert langt
í að það verði með sama hætti og það var
fyrir Covid. Við munum áfram vinna í að
styðja við bæjarbúa og reyna að fjölga at-
vinnutækifærum á svæðinu. Á svona tímum
er samstaðan mikilvæg og að allir hugsi í
lausnum og leiti nýrra atvinnutækifæra.
6. Mér er efst í huga hvað samtakamáttur
okkar Íslendinga er mikill þegar á reynir
og við finnum svo áþreifanlega fyrir því
á svona tímum. Smæðin spilar auðvitað
stóran þátt í því en ég held að það sé partur
af menningu okkar að standa saman.
Það er jákvætt og nauðsynlegt að virkja
þennan samtakamátt eins og kostur er til
að mynda til atvinnuþróunar og jákvæðrar
uppbyggingar á samfélaginu okkar. Staðan
hefur auðvitað undirstrikað að við erum
með mjög mörg egg í sömu körfunni hvað
atvinnutækifæri varðar þar sem flugvöllur-
inn og afleidd störf skapa um 42% íbúa
vinnu. Eitthvað sem við vissum auðvitað
fyrir en ýtir hressilega við okkur að leita
nýrra og spennandi tækifæra.
Ljósm.Garðar Ólafsson