Faxi

Árgangur

Faxi - 2020, Blaðsíða 12

Faxi - 2020, Blaðsíða 12
12 FAXI Magnús Stefánsson bæjarstjóri í Suðurnesjabæ 1. Ef litið er til rekstrarins, þá hefur verið mikið tekjufall og aukin útgjöld sem afleiðingar Covid á þessu ári 2020. Einnig hafa verið mikil áhrif á ýmsa starfsemi, svo sem skólana, félagsstarf, menningarstarf- semi o.fl. 2. Það hefur verið mikil áskorun fyrir alla einstaklinga að fylgja leiðbeiningum og reglum varðandi sóttvarnir. Það hefur haft í för með sér ýmsar breytingar á fyrri hegðun og atferli hvers og eins. Einnig hafa íbúar þurft að takast á við og mæta alls konar takmörkunum í sínu daglega lífi, sem hafa verið á forsendum sóttvarna. 3. Suðurnesjabær hefur komið til móts við íbúa með ýmsum hætti, sérstaklega börnin og barnafjölskyldur. Það hefur verið með ýmsum hætti, þó aðallega í tengslum við skólastarfið. Þá hefur sveitarfélagið staðið fyrir ýmsum minni menningarvið- burðum, til að halda lífi í samfélaginu. Þá hefur verið leitast við að gera ráðstafanir í rekstri sveitarfélagsins, til að draga úr kostnaði. 4. Þegar faraldurinn fór af stað sl. vetur urðu fljótlega ýmsar breytingar á vinnulagi. Sem dæmi má nefna fjarfundi, sem komu í stað funda í raunheimum sem gátu ekki far- ið fram vegna sóttvarnaaðgerða. Sú aðferð er komin til að vera, í einhverjum mæli. Það verður á sviði tölvutækni og rafrænnar stjórnsýslu sem varanlegar breytingar verða, þar sem áhrifin af einstaklingsbundnum sóttvörnum munu væntanlega verða varan- leg og birtast í því að fólk muni síður eiga persónuleg samskipti í návígi en áður var. 5. Rekstrarlega verður árið 2021 erfitt, þar sem tekjufall er og aukinn kostnaður. Hins vegar er ég bjartsýnn á að í vor eða byrjun sumars fari að verða viðsnúningur og smám saman muni ástandið breytast á jákvæðan hátt, öllum til hagsbóta. 6. Við verðum alltaf að gera ráð fyrir að heimsfaraldrar af einhverju tagi herji á okkur og vera undir það búin, eða jafnvel einhvers konar hamfarir. Því getur verið lykil atriði að hafa tiltækar viðbragðs- og aðgerðaáætlanir sem hjálpa okkur um að takast á við áföllin. Íslendingar geta enn og aftur dregið þann lærdóm að samstaða þjóðarinnar fleytir okkur yfir erfiðustu hjalla og megnar okkur að standa af okkur brotsjó. Gera má ráð fyrir að almennt hafi faraldurinn áhrif á viðhorf fólks til lífsgilda og lífsgæða, ekki er sjálfsagt að lífið gangi fram á beinni braut og ekki séu hæðir og lægðir og alls konar beygjur á leiðinni. Þá er reynslan og lærdómurinn einnig sá að fólk er almennt tilbúið til þess að bregðast við því ástandi sem upp kom. Starfsfólk sveitar- félagsins hefur sýnt aðdáunarvert framlag til þess að leysa þær áskoranir sem upp hafa komið, í þágu samfélagsins og til að halda þjónustu sveitarfélagsins og starfsemi gangandi. 1. Hver hafa stærstu áhrifin af Covid 19 verið á þitt bæjarfélag? 2. Hverjar hafa verið stærstu áskoranirnar fyrir íbúa? 3. Hvaða viðspyrnu hafið þitt veitt til að dempa áhrifin? 4. Telur þú að kórónuveirufaraldurinn muni hafa veruleg áhrif á vinnulag til framtíðar, jafnt í stjórnsýslunni sem hjá fyrirtækjum í bænum? 5. Nú þegar glittir í 2021 hvernig sérðu stöðu þíns bæjarfélags í skugga heimsfaraldurs á nýju ári? 6. Hvaða lærdóm má draga af áhrifum faraldins? Kannski einhvern jákvæðan? ? Ljósm. Hilmar Bragi Ljósm. Hilmar Bragi

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.