Faxi

Árgangur

Faxi - 2020, Blaðsíða 22

Faxi - 2020, Blaðsíða 22
22 FAXI „Á Keflavíkurflugvelli er nú fjöldi banda- rískra hermanna, en það eru yfirleitt ungir menn, flestir um tvítugt. Til fróðleiks er gaman að geta þess, að þessir menn eru flest- ir frá suðurríkjum Bandaríkjanna, Tennessee og ríkjunum þar í kring... Þeir búa í bröggum sem eru fremur þægilega útbúnir, sæmilega kyntir og rennandi vatn í þeim öllum... Þeim líður vel hérna. Ein leið íslenskra stjórnvalda til að stemma stigu við fjölda hermanna sem gátu blandað geði við Íslendinga, og þá sér í lagi kvenfólk- ið, var að setja lög sem áttu að hindra náin kynni á milli hermanna og íslensks kven- fólks. Einnig settu stjórnvöld útivistarbann á hermennina sjálfa. Þannig varð raunin sú að þann tíma sem hermennirnir voru staddir hér bjuggu þeir við einangrun og í raun vissu þeir lítið hvað var að gerast á Íslandi almennt. En það var ekki nóg að yfirvöld settu þeim stólinn fyrir dyrnar heldur gerðu helstu veitingahúsin það sama. Í upphafi áttunda áratugarins voru Hótel Saga, Hótel Loftleiðir og Hótel Borg búin að banna einkennis- klæddum hermönnum aðgang. Það varð til þess að mikil óánægja varð innan raða hersins þar sem þeir lægst settu voru skikk- aðir til þess að vera alltaf í einkennisbúning- um sínum. Þar með gátu þeir ekki notið þess að borða á fínni veitingastöðum Reykjavíkur en þessi höft á ferðir bandarískra hermanna voru óskiljanleg í augum þeirra og talin bera sterkt svipmót öfgaþjóðernishyggju og einangrunarstefnu. Líklegt má telja að fjölgun næturklúbba innan varnargirðingarinnar hafi verið bæði bein og óbein afleiðing þess að íslensk stjórn- völd gerðu mikið í því að hamla bandarísk- um hermönnum að fara á skemmtistaði í Reykjavík. Í Keflavík og Njarðvík var nánast eyðimörk þegar kom að einhverju sem hét skemmtistaður. Næturklúbbum fjölgaði því á Vellinum og urðu afar vinsælir hjá heima- mönnum sem sóttu klúbbana sem mest þeir máttu og þá bæði Suðurnesjamenn og fólk af höfuðborgarsvæðinu. Vera hernámsliðs Breta fyrst og Banda- ríkjamanna á stríðsárunum, og síðar Varnarliðsins, skapaði mikla atvinnu og miklar tekjur fyrir bæði einstaklinga og þjóðfélagið í heild. Allir sem vildu fengu vinnu hjá hernum og tekjurnar voru mjög góðar. Mannlífið blómstraði. Þegar svo kom að því að Varnarliðið fór árið 2006 olli það miklu atvinnuleysi á Suðurnesjum. Fjöldi manna starfaði fyrir herinn í einni eða annarri mynd, ýmist sem starfsmenn Varnarliðsins eða hjá einhverjum af þeim íslensku verktakafyrirtækjum sem störf- uðu fyrir herinn. Þá má ekki gleyma því að herinn skildi eftir sig bæ með miklum innviðum, t.d. skemmtistöðum, sundlaug, íþróttahúsi, heilsugæslustöð og skólum og íbúðarhúsum sem stóðu eftir auð og tóm. Í dag nefnist þessi bær Ásbrú og er nú hverfi í Reykjanesbæ. Þar hefur verið unnið mikið starf við að koma í notkun mannvirkjum og búnaði sem herinn skildi eftir sig. Ferskar stefnur og smygl Með komu hersins til Íslands komu nýjar og ferskar stefnur í ýmsum menningarkimum og afþreyingu. Þar á meðal var nýtt hljóð sem tröllreið hinum vestræna heimi. Rokk og ról var komið til landsins, mönnum til mismikillar gleði, en íslensk ungmenni tóku þessari nýju tónlist fagnandi. Strax við komu sína til landsins árið 1951 hóf Varnarliðið útvarpsrekstur á Keflavíkurflugvelli og sjónvarpsútsendingar árið 1955. Í upphafi sendi Kanasjónvarpið svokallaða út með bráðabirgðaleyfi á litlum sendistyrk og mest- megnis voru sýndar afþreyingarmyndir og fréttaefni frá Bandaríkjunum. Árið 1963 var sendistyrkurinn aukinn og þá gat stór hluti íbúa á suðvesturhorninu náð útsendingun- um. Íslenskir menntamenn töldu að aðal markmið Bandaríkjamanna með útvarps- og sjónvarpsútsendingum væri fyrst og fremst áróður vegna eigin hagsmuna. Leiða má líkur að því að sjónvarp RÚV hafi verið stofnað fyrr en ella til að bregðast við þessum áhrifum Kanasjónvarpsins. Árið 1974 hvarf Kanasjónvarpið Íslendingum þegar það hóf að senda eingöngu út efni í gegnum kapal innan girðingar. Eitt af því sem vakti mikið umtal og tengist veru hersins var smygl af vellinum á hinum ýmsu munum s.s. fatnaði, hljómflutnings- tækjum, bílum, áfengi og mat. Margt af því sem laumað var út af vellinum er enn til og leynist víða. Mikið var einnig selt í gegnum sölunefnd varnarliðseigna. Herinn var víða á Suðurnesjunum og sjást ummerkin um hann enn. Ásbrú og Patterson eru stærst og mest áberandi í dag en einnig sjást ummerki á fjallinu Þorbirni og ofan við Sólbrekkuskóg þar sem fjarskiptastöðin Broadstreet var staðsett. Fyrir marga íbúa á Suðurnesjum var spennandi að komast þangað sem herinn var með aðsetur eða starfsemi. Margir fóru á ruslahaugana til þess að finna nýtanlega hluti sem herinn var að henda og margir eignuðust ýmislegt áhugasvert eftir þeirri leið, hluti eins og nýleg reiðhjól og hljóm- flutningstæki. Einnig var eftirsóknarvert hjá börnunum í Keflavík og Njarðvík að príla inn í ónýtar flugvélar sem geymdar voru rétt ofan við byggðina í Keflavík. Þar fundu þau ýmsa dýrgripi og fjársjóði sem suma hverja má finna í bílskúrum og háaloftum víða um bæinn í dag. Til gamans látum við eina af þekktari smyglsögunum fylgja með en hún er af manninum sem fór á hverju kvöldi með hjólbörur fullar af sagi í gegnum aðalhliðið. Alltaf var leitað í saginu í hjólbörunum en aldrei fannst neitt ólöglegt. Mörgum árum síðar spurði ákveðinn lögreglumaður gamla manninn hverju hann hafi verið að smygla í gegn. Lögreglumaðurinn var nefnilega viss um að sá gamli væri að lauma einhverju í gegn í börunum. Sá gamli svaraði: „Jú, væni minn, ég var að smygla hjólbörum.“ Ísvél til að búa til mjólkurhristing, shake. Eitt af því sem einhverra hluta vegna er tengt Rock‘n Roll er mjólkurhristingurinn. Hér er einmitt vél til að framleiða slíkar veitingar. Margir kannast við að hafa fengið sér „Shake“ í Wendys eða öðrum þeim stöðum sem var að finna á vellinum. Tveggja sæta Flintstones sófi, trégrind með vínrauðum vínyl sessum. Blátt og gult kælibox úr málmi. Merkt "Corona Extra" Þessi kælir var fylltur af ís til að kæla innihaldið. Hljómtækjasamstæða frá Sony. Stæðan sam- anstendur af plötuspilara, segulbandstæki og útvarpi. Margir eignuðust samskonar græjur sem komu misjafnlega heiðarlega af vellinum. Sumir keyptu þær í sölunefnd varnarliðseigna, aðrir hirtu þær af haugunum og svo voru aðrir sem eignuðust slíkar nauðsynjar eftir að þeim hafði verið smyglað af vellinum.

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.