Faxi - 2020, Page 29
FAXI 29
Á Reykjanesi má finna þrettán vita. Þeir eru ekki einungis sögulegt kennileiti
heldur leiðarminni í sögu þjóðar sem allt
fram á þennan dag hefur átt afkomu sína
undir því að draga fisk úr sjó. Vitarnir voru
logandi líflína til lands, ljósberar sem leiddu
menn heim af hafi.
Með tilkomu vita varð til starf vitavarð-
ar sem gat verið einmanalegt. Svo hagaði
til að tvö skáld gegndu starfi aðstoðarvita-
varðar þessum elsta vita landsins en það
eru atómskáldið Steinn Steinar og Hannes
Sigfússon.
Reykjanesviti
Reykjanesviti var reistur árið 1878 og var
þá fyrsta stórframkvæmdin sem ráðist var
í eftir að Íslendingar fengu heimastjórn frá
Dönum. Vitinn laskaðist í jarðskjálfta en
sá viti sem nú stendur var tekinn í notkun
1908. Vitinn stendur á Bæjarfelli upp af
Valahnjúk, þar sem fyrsti vitinn stóð.
Reykjanesviti var eini viti landsins um
nærri tveggja áratuga skeið og hafði vita-
vörður aðsetur á Reykjanesi sem var víðs
fjarri mannabyggð þar sem enginn vegur lá
yfir auðnina. Það var langur spölur frá vita-
varðarhúsinu að gamla vitanum og þurfti
hetjudug til starfsins.
Steinn Steinarr
Starf vitavarðarins gat verið einmanalegt en
hann hafði þó með sér aðstoðarvitavörð og
skiptu þeir með sér verkum. Það var héraðs-
læknir Keflvíkinga, Sigvaldi Kaldalóns, sem
útvegaði ungum vini sínum Steini Steinari
starf aðstoðarvitavarðar á Reykjanesi en þá
var vitavörður Jón Ágúst Guðmundsson.
Steinn hafði oft dvalist í Grindavík hjá
tónskáldinu ásamt helstu listamönnum þess
tíma. Steinn var þá aðeins 22 ára gamall
og ekki gerður fyrir erfiðsvinnu vegna
vöðvarýrnunar í handlegg. Framtíðarhorfur
hans virtust því ekki glæsilegar enda hafði
skólaganga hans verði stutt. Í misjöfnum
vetrarveðrum þurfti oft að hafa mann næt-
urlangt uppi í vitanum til að hreinsa af snjó
sem vildi festast á rúðurnar í ljósaklefanum,
Kom það gjarnan í hlut Steins. Má gera sér
í hugarlund að þar hafi orðið til ljóð þegar
leiðindi sóttu að honum á þessum löngu og
köldu vetrarnóttum og hann þurfti að halda
á sér hita. Steinn starfaði í vitanum einn
vetur frá 1930 til 1931 en hans fyrsta ljóða-
bók Rauður loginn brann kom út þremur
árum síðar eða 1934. Þar mátti finna róttæk
ljóð um hlutskipti lítilmagnans og bar mik-
ið á vonleysi og trega enda þjóðin í kreppu
og atvinnuleysi mikið.
Hannes Sigfússon
Rithöfundurinn Hannes Sigfússon var
aðstoðarmaður vitavarðarins, Sigurjóns
Ólafssonar, þegar olíuskipið Clam fórst
við Reykjanes þann 28. febrúar árið 1950.
Starfið hafði hann fengið í gegnum gott orð
frá vini sínum og læriföður, Steini Steinarr.
Hannes var þá 28 ára gamall og hafði gefið
út sína fyrstu bók, Dymbilvöku, árinu áður
sem er eitt hans þekktasta verk.
Skipið var það stærsta til þess að stranda
við Íslandsstrendur og voru 50 menn í
áhöfn þess þegar það strandaði þétt upp
við hamravegginn sunnan Valahnúks. Hluti
áhafnarinnar sem var að mestum hluta
Kínverjar fór í björgunarbáta sem ýmist
brotnuðu við skipshlið eða hvolfdu í brim-
inu. Af þeim fórust 27 manns en fjórum
mönnum skolaði upp í klettana þaðan sem
þeim var bjargað. Þeim mönnum sem héldu
kyrru fyrir um borð í skipinu var öllum
bjargað af björgunarsveitinni Þorbirni frá
Grindavík, en skipið brotnaði fljótlega í
spón á staðnum.
Hannes bjargaði sjálfur tveimur mönn-
um úr flæðarmálinu og skrifaði síðar um
atburðinn í skáldsögu sinni Strandið 1955.
Þar segir frá olíuskipinu Atlantis sem rekur
stjórnlaust undan veðri og straumum að
hrikalegri klettaströnd. Við kynnumst
áhöfn skipsins, Kínverjum, Evrópubúum
og Bandaríkjamanni og við kynnumst vita-
verðinum á Reykjanesi sem rækir einmana-
leg skyldustörf í vetrarmyrkri og bíður þess
sem verða vill. Bókin fékk ekki góða dóma
en Hannes var eitt helsta ljóðskáld sinn-
ar kynslóðar og brautryðjandi í íslenskri
ljóðagerð.
Ekki er vitað hvaða áhrif myrkrið og
víðáttan á Reykjanesi hafði á skáldin og
vinina Stein og Hannes en báðir voru
þeir byltingarmenn og ortu um manninn
í óræðri og dularfullri veröld þar sem
vitundin ein er gegn alheiminum. Í miðju
svartnætti ljóðanna leiftra óræðar blikur
um mannlega reisn og jafnvel hina innstu
vitund.
Skáldin í vitanum
Ljósmyndari: óþekktur
Reykjanesviti, í byggingu,
sá yngri, bærinn í forgrunn