Faxi - 2020, Page 42
42 FAXI
Sagt hefur það verið um Suðurnesjamenn, eða er það fólk? Hvaða fólk er þetta?
Hvaðan kom það og hvers vegna staldraði
þar við hér á suðvesturhorninu þar sem
ferskir vindar blása, enda engin fjöllin til
þess að slá niður lægðirnar þegar þær berast
til landsins, fyrst á Suðurnesjum.
Ímynd Suðurnesja hefur lengi verið veik
og er það engin nýjung, heldur aldagömul
hefð að segja má. En hvað er það sem hefur
mótað þetta viðhorf og á það við enn þann
dag í dag?
Fyrstu lýsingarnar sem finna má af
Suðurnesjamönnum eru í ferðabókum frá
18. öld en þá þóttu þeir yfirleitt háir í vexti,
vel á sig komnir og rjóðir í andliti en mikið
vinnuálag og sjómennskan var talin hafa
komið niður á heilsu og hreysti manna.
Suðurnesjamenn voru taldir ólíkari inn-
byrðis en annars staðar vegna þess að fólk
úr öðrum fjórðungum hafði blandast saman
við íbúana. Þá var fólk við sjávarsíðuna talið
ólíkt hinum eiginlegu Íslendingum vegna
þess að það hafði blandast erlendum mönn-
um. Þannig var það talið lakara en annars
staðar á landinu - og mun ófríðara. Hér-
aðsbragurinn var á þá leið að menn væru
dramblátari, eigingjarnari, ógestrisnari og
Sagt hefur það verið um Suðurnesjamenn
Suðurnesjamenn voru taldir ólíkari innbyrðis en annarsstaðar vegna þess að fólk úr öðrum
landsfjórðungum hafði blandast saman við íbúana. Ljósmyndari: Stefán Bergmann
Sjómenn um borð í skipi. Ljósmyndari: óþekkturSjómaður í skinnklæðum. Ljósmyndari: óþekktur