Faxi

Årgang

Faxi - 2020, Side 43

Faxi - 2020, Side 43
FAXI 43 óhreinskilnari en annars staðar á landinu og á það við alla Gullbringusýslu. Uppivöðslusemi, brennivínsdrykkja og blótsyrði Að öllum líkindum má rekja þetta neikvæða viðhorf til breytinga á atvinnuháttum Ís- lendinga á þeim tíma þegar fiskveiðar tóku stærri sess sem mörgum þótti valda skekkju á landinu öllu. Fiskveiðunum fylgdi útflutn- ingur og erlend verslun sem var að mati manna ekkert til að hrópa húrra fyrir því þar hafi Íslendingar fengið í skiptum tóbak, brennivín og pestir. Var talið æskilegra að menn sem búsettir voru við sjóinn myndu frekar taka eftir erlendum verslunarmönn- um í hreinlæti, fögrum og gagnlegum sið- um og hófsemi heldur en uppivöðslusemi, kaffi- og brennivínsdrykkju, blótsyrðum og annarri fífdirfsku. Suðurnesin urðu því nokkurs konar birtingarmynd spillingarinnar við sjáv- arsíðuna þar sem menn lifðu á fiski, áttu samskipti við erlenda kaupmenn og drógu í ofanálag til sín góða bændur og vinnumenn úr flestum sveitum til starfa á vertíð. Þannig vanræktu bændur búskapinn sem þótti göfugri en fiskveiðarnar en talið var að sjó- mennskan dræpi annan hvern vinnufæran mann og aðrir drukknuðu á sjónum. Samskipti við erlenda kaupmenn þóttu spilla tungumálinu og var það mat manna að hvergi á landinu væri talað jafn bjagað og blandað mál og á Suðurnesjum. Það voru aðeins góðir bændur og sæmdarfólk sem töluðu hreint og óbjagað mál. Þar sem Suðurnesjamenn bjuggu við sjávarsíðuna borðaði fólk nýjan fisk í mun meira magni en annarsstaðar. Tilbreytingin í mataræðinu var mest á tyllidögum en þar má nefna bygggraut eða kjötsúpu. Á stórhátíðum, svo sem páskum og jólum, var venjan að borða hangikjöt. Húsakynni þóttu lélegri en í meðallegi við sjávarsíðuna, en langlélegust og sóðalegust voru þó talin húsakynnin í Vestmannaeyjum, á Eyrar- bakka og í verstöðunum á Suðurnesjum. Rangárvallasýsla vinsælust til undaneldis Verin á Suðurnesjum voru ein þau eftir- sóttustu á landinu og þangað kom fólk frá fjarlægum sýslum.Má þar nefna Húnvetn- inga, Skagfirðinga, Norðlendinga, Þing- eyinga og Sunnlendinga. Flestir komu þó úr nærliggjandi sýslum sunnan og vestan- lands. Vertíðirnar voru langar, þrír mánuðir á vor- og vetrarvertíð, þannig að allstór hluti karlmanna úr sveitum landsins hefur eytt drjúgum parti úr vetri fjarri heimil- inu á þessum fjarlægu verstöðvum. Það er nægur tími fyrir snót og svein að finna hvort annað og áttu Suðurnesjamenn því öðrum fremur maka úr fjarlægum sýslum. Vinsælastar til manneldis voru Rangárvalla- sýsla og V-Skaptafellssýsla. Guðsvolaður staður Næsta vertíð hófst upp úr seinni heimstyrj- öldinni þegar Ísland gekk í Nató og hingað kom bandarískt varnarlið sem smíðaði Keflavíkurflugvöll og kom sér fyrir upp á Miðnesheiði. Má segja að þá hafi hafist menningarpólitískt stríð þar sem Suðurnes og herinn urðu eitt í hugum margra Herinn bauð börnum á Suðurnesjum á jólaskemmtanir og þar smökkuðu þau í fyrsta sinn hinn framandi drykk kóka kóla. Mynd Byggðasafn Reykjanesbæjar. Bandariskir varnarliðsmenn leystu verin af hólmi og færðu með sér alþjóðlega strauma. Mynd Friðþór Eydal.

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.