Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 07.06.2009, Blaðsíða 4

Sjómannadagsblaðið - 07.06.2009, Blaðsíða 4
4 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 7. JÚNÍ 2009 Bæjarbúar horfðu af hafnarbakkanum á skipin fylla sig dag eftir dag og koma drekkhlaðin að landi eftir nokkurra mínútna landstím. Runólfur Guðmundsson, útgerðarmaður í Grundarfirði, sagði af þessu tilefni í samtali við Skessuhorn á sínum tíma að Grundfirðingar hefðu vaknað á morgnana við skarkalann í skipunum enda mörg þúsund hestöfl í gangi úti á firði. Svipaða sögu var að segja af haustvertíðinni á síðasta ári. Þá mokveiddist síld bæði fyrir utan Stykkishólm og líka við Keflavík, þar sem bæjarbúar fylgdust með veiðunum út um gluggann heima hjá sér. Sjómannadagsblaðið ræddi við Jakob Jakobsson sem er þaulkunnugur sögu síldveiða. „Enda þótt síldveiðar upp við landsteina veki ávallt athygli er þetta þó engin nýlunda. Þess má til dæmis geta að á 19. öld þegar síldveiðar hófust fyrir alvöru hér við land var síldin eingöngu veidd í svokallaða landnót sem kastað var í hálfhring út frá fjöruborðinu og dregin í land. Helstu síldarfirðirnir þá voru Eyjafjörður, Seyðisfjörður, Mjóifjörður og Reyðarfjörður fyrir austan. Síldarævintýrið í Kollafirði og Hvalfirði árin 1946-1948 svo og síldveiðarnar inni á Austfjörðum 1980-1990 eru nærtæk dæmi um miklar veiðar á grunnslóð. Í öllum tilvikum valdi síldin sér vetursetustöðvar í kyrrum og köldum sjó og dvaldist þar uns voraði með tilheyrandi þörungablóma og átumergð. Veturinn 1947-1948 veiddust tæp tvö hundruð þúsund tonn í Hvalfirði. Þessar miklu veiðar hjuggu hins vegar stórt skarð í stofninn og í kjölfarið hvarf hún úr firðinum,“ segir Jakob. Ömurleg tíðindi Síðastliðin 40 ár hafa síldveiðar hér við land nánast eingöngu byggst á einum síldarstofni, íslensku sumargotssíldinni. Fyrir hrun síldarstofnanna um 1970 var hins vegar langmest veitt af norskri og íslenskri vorgotssíld, öðru nafni Norðurlandssíldinni. Með markvissum friðunaraðgerðum tókst að endurreisa sumargotssíldarstofninn sem aðeins var um 10 þúsund tonn árið 1972 en var hin síðustu ár talinn vera kominn í 600 til 700 þúsund tonn og því mun stærri en dæmi eru um frá fyrri árum. Miklar vonir voru því bundnar við síðustu vertíð enda gert ráð fyrir að mestur hluti síldarinnar færi til manneldis í stað bræðslu. En þá gerðist það sem Íslendingar þurftu síst á að halda. Í ljós kom mikil sýking í stofninum og í desember, á miðri vertíð, var orðið ljóst að um var að ræða faraldur, sem sýkt hafði um 40% síldar á Breiðafirði og Faxaflóa og um 70% undan Suð-Vesturlandi. Þjóðarbúið varð af milljörðum króna í útflutningstekjum vegna sýkingarinnar. Smiðshöggið á „vertíðina“ sló svo fjölveiðiskipið Kap VE sem fékk mörg hundruð tonn af dauðvona bræðslusíld við Básaskersbryggju og í Friðarhöfn í Vestmannaeyjum í mars. Skipverjar þurftu varla að leysa landfestar meðan á „veiðunum“ stóð. Óþekkt við Ísland „Þessi sýking, sem hrjáir nú íslensku sumargotssíldina er út af fyrir sig vel þekkt, bara ekki hér við land. Þetta er sníkjudýr, heitir Ichthyophonus hoferi á latínu og finnst í fiskum. Það er þekkt í fjölmörgum fisktegundum auk síldar, t.d. laxi, silungi og ýmsum flatfiskum. Hún hefur t.d. komið nokkrum sinnum upp við Kanada. Yfirleitt líða 10 til 20 ár á milli faraldra en svo jafnar síldin sig á tveimur árum. Síðast var faraldur í norska stofninum á árunum 1991-1992 og um svipað leyti í Norðursjó. Þeir faraldrar hafa líka staðið yfir í um tvö ár og svo rammt kvað að í Norðursjó 1991 að við stendur Danmerkur rak dauða síld á land í miklu magni. Það varð aðeins vart við þessa sýkingu hér við land 1991 en það var svo lítið að það var varla mælanlegt,“ segir Jakob. Samkvæmt rannsóknum Hafrannsóknarstofnunarinnar virðist sem Ichthyophonus hoferi sé ávallt til staðar í síld, en sýkillinn gjósi upp í faraldri með reglulegu millibili. Samkvæmt fyrri reynslu má því gera ráð fyrir að sú veiki sem nú herjar á íslensku síldina verði svipuð í haust en síðan fari stofninn að jafna sig. Há dánartíðni Dánartíðni af völdum sníkjudýrsins er mismunandi milli tegunda en hún virðist einkum há í síld og skarkola. Sníkjudýrið berst í meltingarveginn þaðan sem það ryður sér leið inn í blóðrásina. Með henni berst það um búk fisksins og kemur sér fyrir í líffærunum, einkum þar sem blóðflæði er mikið, svo sem í nýrum, hjarta, lifur og milta. Á myndum af sýktum síldarflökum má sjá greinilegar blæðingar í holdi og að utanverðu eru kýli algeng þar sem sníkjudýrið fjölgar sér og bíður þess að koma sér fyrir í nýjum hýsli. Síldin fer sínar eigin leiðir Það hefur vakið athygli við síldveiðar undanfarin misseri hve síldin hefur leitað innarlega í firði og flóa við landið. Má segja að sums staðar hafi íslenski flotinn nánast ekki þurft að róa lengra en sem nemur út fyrir hafnarkjaftinn til að fylla sig. Þetta var t.d. áberandi á haustvertíðunum 2007 og 2008. Grundarfjörður kraumaði af síld á haustvertíðinni 2007. Við síldartalningar úti fyrir Norðurlandi sumarið 1952. Jakob Jakobsson skipstjóri, Jakob Magnússon fiskifræðingur og Jakob Jakobsson fiskifræðinemi hvíla sig um stund í björgunarbátnum af varðskipinu Maríu Júlíu.

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.