Morgunblaðið - 03.05.2020, Page 1
M Á N U D A G U R 4. M A Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 104. tölublað 108. árgangur
HEIM EFTIR
SEX ÁR Í
FRAKKLANDI
NÝIR LANDNEMAR
VARÐ AÐ
KOMAST
ÚT Á LAND
KOMA MÖTTULDÝRANNA 14 RASMUS RASK 26ÍÞRÓTTIR 27
2.500 kr. afsláttur
Ef verslað er fyrir 15.000 kr. eða meira
Gildir eingöngu á elko.is til með 10. maí 2020
KÓÐI: SUMARGJOF2020
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Náttúrustofa Suðurlands gerði út
leiðangur í Stafnes á norðvestan-
verðri Heimaey í gær vegna ábend-
ingar um mörg fuglshræ. Þar fundust
27 hræ, flest af æðarfuglum en einnig
af langvíu og álku. Af þeim voru 14
fuglar olíublautir, líklega mengaðir af
svartolíu. Svartolíublautir fuglar hafa
fundist víðar á strönd Heimaeyjar og
eins við suðurströndina.
Erpur Snær Hansen, forstöðu-
maður Náttúrustofu Suðurlands,
segir að sýni af olíunni verði send til
Noregs til efnagreiningar. Sýni úr
svartolíublautum fugli sem fannst í
Reynisfjöru var greint og var það
svartolía eins og er seld hér. Erpur
segir enga nota slíka olíu nú nema
farmskip.
Þeirri hugmynd hefur verið varpað
fram að svartolían kunni að koma úr
sokknu flaki austan við Eyjar og ber-
ist með straumum vestur með land-
inu. Fuglarnir sem hafa mengast
halda sig gjarnan við ströndina, eins
og æðarfuglinn.
„Þessi mengun virðist vera viðvar-
andi og ekki stoppa. Fuglarnir virð-
ast lenda í svartolíunni úti á rúmsjó.
Þeir komast gegnblautir af olíu í land,
reyna að þrífa sig með því að éta af
sér olíuna. Svo drepast þeir kvalafull-
um dauðdaga,“ segir Erpur í samtali
við Morgunblaðið.
Mengun í Vestmannaeyjahöfn
Talið er að olíumengun kunni að
hafa borist af landi út í Vestmanna-
eyjahöfn eins og sjá mátti á mynd á
forsíðu Morgunblaðsins á laugardag.
Starfsmenn hafnarinnar hafa
fylgst sérstaklega með tveimur svæð-
um til að athuga hvort olía geti hafa
borist þaðan út í höfnina, að sögn
Ólafs Þórs Snorrasonar hafnarstjóra.
„Það er ólíklegt að þetta hafi komið
úr báti, því það voru engir bátar
þarna á ferðinni,“ segir Ólafur. „Við
erum ekki búnir að setja upp girð-
ingar, en það er alveg inni í myndinni
ef við sjáum eitthvað koma af olíu.“ Í
dag á að athuga hvort mengunin geti
hafa borist úr aflögðum lögnum.
Olíublautir fuglar víða
Erpur Snær segir að talsvert hafi
fundist af olíublautum fuglum bæði
innan og utan hafnarinnar í Vest-
mannaeyjum nokkuð lengi. Þannig
var áberandi olíumengun í höfninni í
september í fyrra þegar lundapysjur
fóru að fljúga úr holum. Mjög margar
lentu í olíunni og voru færðar til
hreinsunar hjá Sea Life Trust, og
tókst að bjarga flestum þeirra.
Olíumengun drepur fugla
Mörg hræ af olíublautum fuglum hafa fundist í Vestmannaeyjum Svartolíumengun úti á rúmsjó
kann að koma frá sokknu flaki austan við Eyjar Upptök olíumengunar í höfninni gætu verið í landi
Ljósmynd/Náttúrustofa Suðurlands
Fuglshræ Mörg voru olíublaut.
Þegar umferðin er minni getur vegstika öðlast
nýtt hlutverk og orðið að leikfangi barns af svip-
aðri stærð. Umferð erlendra ferðamanna um
landið hefur dregist verulega saman vegna far-
aldurs kórónuveiru. Lítil sem engin starfsemi er
til dæmis hjá bílaleigunni Kuku Campers. »8
Morgunblaðið/Eggert
Leikið við stiku
á fáförnum vegi
Fyrsti áfangi tilslakana á samkomu-
banni og aðgerðum stjórnvalda
vegna kórónuveiru tók gildi í dag en
nú mega allt að 50 manns koma sam-
an en ekki tuttugu eins og áður.
Skólastarf mun frá og með deg-
inum í dag fara fram með eðlilegum
hætti og ýmis starfsemi verður leyfð
að nýju.
Tveggja metra reglan gildir áfram
og segir Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir að hún sé grunnregla.
„Tveggja metra reglan er einn
hluti af þessum einstaklingsbundnu
sýkingavörnum sem við þurfum að
viðhafa en það er ljóst að eftir því
sem við afléttum hömlum á starf-
semi verður erfitt að framfylgja
þeirri reglu.“ »4, 6
Slaka á
boðum og
bönnum
Morgunblaðið/Eggert
Leikskóli Skólastarf fer í samt horf.