Morgunblaðið - 03.05.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MAÍ 2020
jákvæðum umhverfisáhrifum
vegna lægri prent- og sending-
arkostnaðar geti svo numið allt að
30 milljörðum kr. á ári.
„Verkefnin hjá Stafræna Ís-
landi sem við vinnum að nú eru
hreinlega viðbrögð við aðstæðum
á líðandi stundu, svo sem að gera
meðmælendalista fyrir forseta-
kosningar rafræna og útbúa staf-
ræn gjafabréf til að styðja við inn-
lenda ferðaþjónustu í sumar. Þá
erum við að þróa rafrænar þing-
lýsingar,“ segir Andri Heiðar.
„Við finnum fyrir miklum meðbyr
með okkar verkefnum. Stjórnvöld
hafa sömuleiðis kynnt fjárfest-
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Aðstæður sem hafa skapast í
samfélaginu undanfarið vegna
heimsfaraldursins hafa kallað á
að hraðað sé þróun tæknilausna
og stafrænna samskipta. Þá hefur
tækniþekking fólks stóraukist á
skömmum tíma. Við höfum því
unnið hörðum höndum á síðustu
vikum við að bregðast við þessari
auknu eftirspurn og kröfum sam-
félagsins í fjölmörgum verk-
efnum,“ segir Andri Heiðar Krist-
insson framkvæmdastjóri
Stafræns Íslands. Á þess vegum
er meðal annars starfrækt þjón-
ustugáttin island.is sem nú er ver-
ið að efla og endurbæta.
Meðmælalistar og
stafræn gjafabréf
Um tvö ár eru síðan verk-
efnastofan Stafrænt Ísland, sem
heyrir undir fjármálaráðuneytið,
var sett á laggirnar, en þar unnið
er að ýmsum stafrænum verk-
efnum fyrir hið opinbera. Mörkuð
hefur verið sú stefna að þjón-
ustuleiðir ríkisins við borgarana
verði í framtíðinni einkum og
helst yfir netið sem skilað getur
bæði tímasparnaði og framleiðni-
aukningu. Samkvæmt nýlegri
greiningu er, að sögn Andra,
áætlað að beinn sparnaður hins
opinbera af þessu gæti numið 9,6
milljörðum á ári eftir 3-5 ár og
ávinningur sem hlýst af tíma-
sparnaði, styttri málsmeðferð og
ingarátak í kjölfar heimsfarald-
ursins þar sem verja á rúmlega
1,3 milljörðum króna til staf-
rænna innviða og hugbún-
aðarkerfa; verkefni sem kemur til
framkvæmda strax á þessu ári.“
Bæta þjónustu og
einfalda samskipti
Í alþjóðlegum samanburði er
Ísland, skv. könnunum, meðal 20
fremstu þjóða heims þegar kemur
að stafrænni þjónustu. Andri
Heiðar segir þó möguleika á því
að gera enn betur. Í þessu efni
geti Íslendingar náð í hóp fimm
efstu þjóða á allra næstu árum í
kjölfar þeirrar öflugu fjárfest-
ingar á þessu sviði sem stjórnvöld
ætla nú í.
Nú þegar er til staðar þjón-
ustugáttin island.is þar sem hægt
er að nálgast yfir 700 stafræn um-
sóknablöð, leyfisveitingar og
þjónustu hjá hinu opinbera. Nú í
sumar verður, sem fyrr segir, nýr
og stórbættur vefur á þessari slóð
opnaður sem mun bæta þjón-
ustustig og einfalda samskipti og
upplýsingaflæði. Þar mun smám
saman verða hægt að nálgast upp-
lýsingar um alla þjónustu hins op-
inbera á einum stað. Í haust mun
svo smáforrit í farsíma fara í loft-
ið auk þess sem ýmis þjónusta
verður færð á stafrænt form svo
sem umsóknir um fæðingarorlof,
sakavottorð, ökunám og stafrænt
ökuskírteini.
Netvæðing og nýsköpun
„Á nýjum vef island.is verður
áhersla á að auðvelda aðgengi að
opinberri þjónustu, en einkafyr-
irtæki, stéttarfélög og fleiri munu
njóta góðs af því að allur hugbún-
aður verður aðgengilegur. Mark-
miðið er að opna öll gögn og vef-
þjónustu hins opinbera eins og
kostur er. Það sem annars vinnur
með okkur Íslendingum á þessari
vegferð er að hér eru tæknilegir
innviðir nú þegar til staðar ásamt
því að þekking og færni almenn-
ings í notkun tæknilausna er með
því allra besta sem gerist í heim-
inum,“ segir Andri og að lokum:
„Sem þjóð höfum við alltaf
verið mjög fljót að aðlagast og til-
einka okkur nýja tækni og erum
því í hópi þeirra fremstu þegar
kemur að netvæðingu. Mörg ís-
lensk nýsköpunar- og tæknifyr-
irtæki hafa náð því marki að
verða leiðandi á sínu sviði. Því tel
ég að nálgun okkar hjá Stafrænu
Íslandi, sem byggir á þróun opins
hugbúnaðar í samstarfi við stór
og smá einkafyrirtæki, sé aðferð-
arfræði sem margar þjóðir muni
horfa til í auknum mæli á næstu
árum. Þannig munum við stuðla
að frekari nýsköpun, bæði hjá
hinu opinbera og í einkageir-
anum.“
Opinber þjónusta í æ ríkari mæli flutt yfir á netið og miklir fjármunir sparast
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Tækni Auðvelda á aðgengi að opinberri þjónustu en einkafyrirtæki, stétt-
arfélög og fleiri munu njóta góðs af því, segir Andri Heiðar Kristinsson.
Stafræn vegferð og tæknilausnir í þróun
Andri Heiðar Kristinsson
fæddist árið 1982, er með B.Sc.-
próf í rafmagns- og tölvuverk-
fræði frá Háskóla Íslands og
MBA frá Stanford-háskóla í Kali-
forníu, þar sem hann bjó og
starfaði um sex ára skeið. Var
áður þróunarstjóri hjá LinkedIn í
San Francisco, framkvæmda-
stjóri og stofnandi Icelandic
Startups og sprotafyrirtækisins
Travelade.
Framkvæmdastjóri Stafræns
Íslands hjá fjármála- og efna-
hagsráðuneytinu frá því í janúar.
Virkur í uppbyggingu nýsköp-
unar- og tæknifyrirtækja, ráð-
gjafi sprotafyrirtækja og fleira.
Hver er hann?
., '*-�-��,�rKu�,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Seljum og þjónustum frysti- og kælikerfi
Funahöfða 7 | 110 Reykjavík | Sími 577 6666
Kæli- & frystibúnaður
í allar gerði
og flutning
Iðnaðar- einingar
mikð úrval
r sendi-
abíla
Kæli- &
frystiklefar
í öllum stærðum
Loftkælings-
& varmadælur