Morgunblaðið - 03.05.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MAÍ 2020
Ef marka má þau eintök sem rat-að hafa inn á Alþingi má segja
að þrasgirni sé það sem helst greinir
Pírata frá öðru fólki. Þetta er ekki
vegna þess að aðrir þingmenn grípi
ekki stundum til þrass en það verður
að teljast ólíklegt að aðrir þing-
flokkar hafi einkennst svo mjög af
þrasinu og jafn lítið af innihaldi um-
ræðunnar. Jón Þór Ólafsson steig í
fundarstól þingsins í
liðinni viku og ræddi
yfirvofandi verkfall
Eflingar. Fór hann
mikinn vegna orða
sem hann taldi sig
hafa heyrt sögð úti í
bæ um að mögulega
þyrfti að setja lög á
verkfallsaðgerðir Efl-
ingar.
Forseta þingsinsleist ekki á orð-
bragðið, og er þó
ýmsu vanur og hefur
ekki endilega alltaf verið nákvæmur
í orðavali í gegnum tíðina. Bað hann
þingmenn að gæta „hófs í orðanotk-
un, sérstaklega um fjarstadda aðila
sem ekki geta svarað hér fyrir sig“.
Jón Þór greip strax fram í ogkvaddi sér svo hljóðs um fund-
arstjórn og óskaði nánari skýringa á
athugasemdum forseta. Forseti vís-
aði í stjórnarskrá og hefðir í þessu
sambandi en Jón Þór hljóp ítrekað í
ræðustólinn til að halda þrasinu
áfram.
Á hæla hans kom svo fyrirspyrj-andinn mikli, Björn Leví Gunn-
arsson, með þras sem varla þætti
sæmandi á málfundaræfingu í
grunnskóla.
Er það málefnafátæktin semknýr þingmenn Pírata til að
stunda þennan sérkennilega mál-
flutning, eða ræður eitthvað annað
hegðuninni?
Jón Þór
Ólafsson
Þrasgjarnir
þingmenn
STAKSTEINAR
Björn Leví
Gunnarsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Rithöfundasamband Íslands (RSÍ)
er að gera könnun á meðal fé-
lagsmanna sinna um reynslu höf-
unda af viðskiptum þeirra við
sænsku hljóðbókaútgáfuna Storytel.
„Könnunin er nýfarin út og stend-
ur í nokkra daga í viðbót,“ sagði Karl
Ágúst Úlfsson, formaður RSÍ.
Spurður um almenna reynslu rit-
höfunda af Storytel kvaðst Karl
Ágúst ekki geta sagt til um hana.
„Þetta er svolítið flókið fyrir-
komulag. Rithöfundar semja yfir-
leitt ekki beint við Storytel heldur
fer það oft í gegnum útgefendur. Ég
geri frekar ráð fyrir því að fólk komi
misjafnlega vel út úr þessum við-
skiptum, en þetta segi ég án ábyrgð-
ar,“ sagði Karl Ágúst.
Í frétt Morgunblaðsins um gagn-
rýni Ingimars Jónssonar, forstjóra
Pennans, á starfsemi Storytel og
ríkisstyrki til hljóðbókaútgáfunnar
kom m.a. fram að árið 2019 hefði
Storytel á Íslandi greitt rétt rúm-
lega 250 milljónir króna í höfundar-
réttargreiðslur.
„Ástæðan fyrir því að við gerum
þessa könnun er að við þurfum að
vita hvaða stærðir er um að ræða til
þess að við getum haft einhverja
skoðun á þessu,“ sagði Karl Ágúst.
Félagsmenn í RSÍ eru rúmlega 500
talsins. gudni@mbl.is
Skoða reynslu höfunda af Storytel
Rithöfundasamband Íslands gerir
nú könnun á meðal félagsmanna sinna
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bækur Auk þeirra prentuðu eru nú
í boði hljóðbækur og skjábækur.
Hlynur Elfar Þrastarson, fram-
kvæmdastjóri svefnbílaleigunnar
Kuku Campers, segir að lítil sem
engin starfsemi sé hjá fyrirtækinu
um þessar mundir. Þó muni það
halda úti starfsemi í sumar og halda
þeim svefnbílum
sem fyrirtækið
hefur til umráða,
en þeir eru tæp-
lega 400 talsins.
„Við ætlum
bara að standa
þetta af okkur,
taka einn dag í
einu og vona það
besta,“ segir
Hlynur.
Aðgerðir stjórnvalda hafa mælst
vel fyrir hjá fyrirtækinu í því slæma
árferði sem blasir við ferðaþjónust-
unni.
„Aðgerðir stjórnvalda hafa gefið
fyrirtækjum von um að hægt sé að
fara í gegnum skaflinn. Sá styrkur
sem ríkisstjórnin veitir og það að
lánafyrirtækin séu að fresta
greiðslum af lánum hjálpar okkur,“
segir hann.
Innan ferðaþjónustunnar og hjá
stjórnvöldum standa vonir til að
landsmenn ferðist innanlands í sum-
ar, og hjálpi þar með fyrirtækjum í
ferðaþjónustu að takast á við erfitt
rekstrartímabil vegna þverrandi
fjölda ferðamanna.
„Að sama skapi get ég sagt að við
erum sátt við viðbrögð Íslendinga.
Við finnum fyrir auknum áhuga af
hálfu Íslendinga og það er augljóst
að þeir munu ferðast innanlands í
sumar,“ segir Hlynur að endingu.
Halda úti bíla-
flotanum í sumar
„Við ætlum að standa þetta af okkur“
Ljósmynd/Kuku Campers
Þingvellir Treyst er á að landsmenn
ferðist innanlands í sumar.
Hlynur Elfar
Kristinsson
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Kolibri trönur
í miklu úrvali, gæða-
vara á góðu verði
Kolibri penslar
Handgerðir þýskir penslar
í hæsta gæðaflokki
á afar hagstæðu verði
Ennþá meira úrval af
listavörum
WorkPlus
Strigar frá kr. 195