Morgunblaðið - 03.05.2020, Page 2

Morgunblaðið - 03.05.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MAÍ 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar Ósáttur við heimsóknabann  Maður sem hefur sinnt veikri konu sinni mátti ekki heimsækja hana á hjúkr- unarheimili  Er í sjálfskipaðri sóttkví  Segir starfsfólk fara víða utan vinnu Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Ég verð að leita réttar okkar hjóna vegna þess að okkur hefur verið stíað í sundur. Framkoma stjórnenda á Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) hefur verið þannig,“ sagði Ár- mann Ingimagn Halldórsson, véla- maður á Egilsstöðum. Konan hans, Gróa Ingileif Kristmannsdóttir, dvel- ur á hjúkrunarheimilinu Dyngju á Egilsstöðum sem er rekið af HSA. Hún er 62 ára og er með vöðvarýrn- unarsjúkdóm, er í öndunarvél og þarf mikla umönnun. Ármann gisti hjá Gróu á næturnar fram að heimsókna- banninu til að geta sinnt henni og ver- ið hjá henni. Hann segir að lögfræðistofa í Reykjavík sé að skoða málið. Hún hafi reynt að fá svör frá HSA og heil- brigðisráðuneytinu en lítið gengið. Ármann bendir á að framkvæmda- stjórn HSA hafi ákveðið heimsókna- bannið með tilkynningu. Honum finnst að banninu hafi verið framfylgt af of mikilli hörku. „Sjálfur hef ég nánast alveg verið í sjálfskipaðri sóttkví og konan mín er ekki eldri borgari. Þetta er eina úr- ræðið fyrir hana hér vegna þess hvað hún er veik. Ég hef alltaf hugsað um hana, en það var ekki möguleiki að fá að heimsækja hana,“ sagði Ármann. Heimsóknabannið var sett á 7. mars klukkan 15.00. „Ég var að vinna við að blása snjó, og kom 11 mínútum of seint. Komst ekki fyrr. Ég komst ekki einu sinni inn til að sækja lyfin mín og fékk ekki að baða hana morg- uninn eftir eins og ég var vanur að gera á sunnudagsmorgnum. Þetta er konan mín og ég vil fá að sjá um hana,“ sagði Ármann. Í sjálfskipaðri sóttkví Hann segir að á sama tíma og hon- um var meinað að heimsækja konu sína, þrátt fyrir sjálfskipaða sóttkví sína, hafi starfsfólk á Dyngju sést víða innan um fólk utan vinnutíma. Ármann nefnir til dæmis einn sem taki á móti vörum í nytjagámi Rauða krossins, nokkra sem hafi farið á Góugleði í félagsheimilinu Brúarási og aðra sem sótt hafi veitingastað á Egilsstöðum. Þá hafi starfsmaður sem kom úr utanlandsferð farið beint í vinnuna. Það var áður en fyrirmæli voru gefin um sóttkví ferðamanna. „Ég var ekki hættulegri en þetta fólk. Ég bý og vinn einn á vinnuvél og er ekkert að umgangast fólk. Þá sjaldan ég fer í búð þá spritta ég mig í bak og fyrir. Samt fékk ég alls ekki að hitta konuna mína. Ég hafði hugsað um hana, sneri henni á nóttunni og morgnana og gat gert það einn,“ seg- ir Ármann. Hann segir að eftir að hann fékk ekki að vera hjá Gróu á nóttunni hafi þurft að kalla starfs- mann af annarri deild til að hjálpa til við að snúa henni. Ármann óskaði eftir því að fá að dvelja hjá Gróu yfir páskana, eins og Stundin greindi frá 8. apríl. Ekki var orðið við því. Eina skiptið sem hann hefur hitt konuna sína í heimsókna- banninu var þegar hann fékk að fylgja henni í sjúkrabíl niður á Nes- kaupstað í túbuskipti á sjúkrahúsinu þar. „Ég fékk ekki að fara inn á sjúkrahúsið og þurfti að vera í galla og öllu,“ sagði Ármann. Hann hyggst nota tækifærið sem gefst í dag til að fara í langþráða klukkustundar langa heimsókn til Gróu. Ármann Ingimagn Halldórsson Gróa Ingileif Kristmannsdóttir „Landamæri okkar eru lokuð til 15. maí og fyrir þann tíma mun liggja fyrir áætlun um næstu skref okkar í þeim málum,“ sagði Katrín Jak- obsdóttir forsætisráðherra í ávarpi til þjóðarinnar í gærkvöldi. „Efnahagsleg áhrif veirunnar eru djúp og ófyrirséð hve langvarandi þau verða,“ sagði Katrín. Bætti hún við að höggið væri þyngst á ferða- þjónustuna hér heima, sem skilaði hátt í 40% allra útflutningstekna í fyrra. Fjallaði ráðherra um árangur heilbrigðisyfirvalda, mikilvægi sam- stöðu og efnahagslegt áfall vegna kórónuveirufaraldursins, og minnti að auki á mikilvægi þess að fara ekki of geyst í afléttingaraðgerðir: „Við þurfum að fara hægt í sak- irnar því að ekki má glutra niður þeim árangri sem náðst hefur. Áfram þurfum við að halda ró okk- ar og stillingu og feta okkur hæg- um skrefum eftir því einstigi sem er fram undan,“ sagði Katrín. Hrósaði ráðherra árangri heil- brigðisyfirvalda í baráttunni gegn veirunni og sagði vinnu smitrakn- ingarteymisins og smitrakningar- appið hafa vakið athygli víða. Þá væri einnig sérstök ástæða til að þakka þeim einstaklingum og fyrirtækjum sem útveguðu og gáfu búnað til heilbrigðisstofnana. „Píningsveturinn er að baki, sumarið heilsar okkur, lóan er kom- in og það á að hlýna í vikunni,“ sagði ráðherrann undir lok ávarps- ins. Áætlun um opnun landamæra væntanleg fyrir miðjan maí  Björninn er ekki unninn, sagði forsætisráðherra í ávarpi Skjáskot/RÚV Ávarp Forsætisráðherra sagði að píningsveturinn væri að baki. Verslun IKEA í Kauptúni verður opnuð í dag í fyrsta sinn frá 23. maí og hlakkar starfsfólk mikið til að mæta aftur til vinnu, að sögn Stefáns Rúnars Dagssonar, fram- kvæmdastjóra IKEA á Íslandi. Strik er þó í reikningnum en svo margir hafa pantað vörur hjá IKEA og ekki sótt þær að erfitt er að opna verslunina þar sem ekki verður þverfótað fyrir ósóttum pöntunum. Miklar ráðstafanir hafa verið gerðar til að tryggja öryggi við- skiptavina og starfsmanna og upp- fylla sóttvarnareglur. Versluninni hefur til að mynda verið skipt upp í svæði og mega einungis 50 manns vera á hverju svæði. Starfsmenn fylgjast með hverju svæði, segir Stefán Dagur. Til að byrja með verður veitinga- staður IKEA lokaður en bakaríið á efri hæðinni og bistro, pylsu- og ís- salan á neðri hæð opin. IKEA opn- að að nýju  50 manns á svæði Stefán Rúnar Dagsson Gunnuhver á Reykjanesi varð eins og hluti af skýjunum um stund þegar ljósmyndari Morgun- blaðsins var á ferð. Auðvelt er um leið að ímynda sér að draugur Gunnu, Guðrúnar Önundar- dóttur sem uppi var um árið 1700, sem sagður er búa í hvernum, sé loks stiginn til himna. Morgunblaðið/Eggert Gunna stigin upp til himna? Heimsókna- bann á hjúkr- unarheim- ilum hefur verið mörg- um mjög erf- itt, bæði heimilisfólki og aðstand- endum, að sögn Þuríðar Hörpu Sigurðardóttur, for- manns Öryrkjabandalagsins. Nú má einn aðstandandi koma í heimsókn í einu. Bóka þarf heimsóknina fyrirfram. „Sumir þurfa mikið á því að halda að eiga daglegt samneyti við sitt fólk, t.d. makar þar sem annað er í hjúkrunarrými og hitt hefur ekki fengið að koma í heimsókn,“ sagði Þuríður. „Fólk hefur leitað mikið til mín, jafn- vel í mikilli angist, vegna þessa aðskilnaðar.“ Reynst erfitt fyrir marga HEIMSÓKNABANNIÐ Þuríður Harpa Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.