Morgunblaðið - 03.05.2020, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 03.05.2020, Qupperneq 6
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR6 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MAÍ 2020 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Fyrstu tilslakanir samkomubanns- ins taka gildi í dag en með þeim er lagt bann við fjöldasamkomum þar sem fleiri en 50 manns koma sam- an, í stað 20. Gildir bannið frá deg- inum í dag og fram til 1. júní, eða þar til stjórnvöld endurmeta að- stæður, að því er fram kemur í auglýsingu heilbrigðisráðherra. Söfnum, kvikmyndahúsum, hár- snyrtistofum, nuddstofum og fleiri vinnustöðum er heimilt að hefja starfsemi í dag samkvæmt auglýs- ingunni, en þó verður ávallt að gæta þess að fleiri en 50 manns komi ekki saman í einu rými auk þess sem regla um tveggja metra nálægðartakmörk verður áfram í gildi. Uppgötvi auðinn í söfnunum Þjóðarbókhlaðan verður opnuð í dag eftir sjö vikna lokun. Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbóka- vörður segir að starfsfólk bókhlöð- unnar hafi búið sig undir opnunina og að sérstök aðgát verði höfð þeg- ar bókum verður skilað til safnsins á næstu dögum, vegna smithættu. „Við höldum okkur við 50 manna fjöldatakmörkun á hverri hæð. Fólk getur fengið lánað og skilað bókum,“ segir Ingibjörg. Kaffistof- an verður þó ekki opin og leitar bókhlaðan nú að rekstraraðila fyrir starfsemina. Aðgangur að Þjóðminjasafninu verður ókeypis næstu vikur að sögn Margrétar Hallgrímsdóttur þjóðminjavarðar, en tilslakanir á samkomubanni gera það að verkum að safnið getur hafið starfsemi að nýju í dag. Erlendir ferðamenn hafa verið stór hluti gesta á söfnum landsins að undanförnu, en fækkað hefur verulega í þeirra hópi. „Ég hef væntingar til þess að Ís- lendingar fari sjálfir að uppgötva þann auð sem er fólginn í söfn- unum. Þetta er almennur vettvang- ur sem við eigum saman og það er svo fjölbreytt starfsemi á söfnum á höfuðborgarsvæðinu.“ Sömu myndir í sýningu og áð- ur Kvikmyndahús verða opnuð í dag og verður starfsemin með óhefð- bundnum hætti. Í Laugarásbíói er þess gætt að einungis einn salur sé í notkun á hverjum sýningartíma, að sögn Magnúsar Geirs Gunnars- sonar, framkvæmdastjóra bíósins. Sömu myndir eru í sýningu og fyrir 22. mars, þegar kvikmynda- hús skelltu í lás. Meðal þeirra er ís- lenska grínmyndin Síðasta veiði- ferðin, sem hefur þegar fengið góðar viðtökur. „Þetta er stórmynd og við lok- uðum bara fyrir fullu húsi. Þessi mynd á mikið inni,“ segir Magnús og bætir við að 15. maí verði næsta frumsýning og þaðan í frá vikulega. „Við nýttum tímann á meðan það var lokað og skiptum út hreinlætis- tækjum og flísalögðum allt.“ Rakarastofa opin í tólf tíma Hárgreiðslustofum er eins og áð- ur sagði heimilt að hefja starfsemi í dag og að minnsta kosti ein rakara- stofa hefur gripið til þess ráðs að hafa opið tólf tíma á dag, fyrstu fimm dagana. „Við hlökkum mikið til að fara aftur að vinna. Það eru ansi margir sem bíða og margir hafa spurst fyrir um hvenær verður opnað næst,“ segir Fjóla Valdís Árnadótt- ir, rekstrarsjóri Barbarans. Útibú bankanna verða einnig opnuð fljótlega en Edda Her- mannsdóttir, upplýsingafulltrúi Ís- landsbanka, segir bankann hafa hvatt viðkiptavini sína til að nýta sér stafrænar leiðir. „Útibú verða opnuð hinn 11. maí og verður opið frá ellefu til fjögur á daginn,“ segir Edda í samtali við Morgunblaðið. Skemmtanir og kennsla enn óheimil Tekið er fram í auglýsingu heil- brigðisráðherra að bann við fjölda- samkomum nái meðal annars til ráðstefna, kennslu, skemmtana, kirkjuathafna og annarra sambæri- legra atburða þar sem fleiri en 50 einstaklingar komi saman. Skemmtistaðir, krár og spilasalir skulu einnig vera lokuð vegna sér- stakrar smithættu. Öðrum veit- ingastöðum, þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar, er enn fremur ekki heimilt að hafa opið lengur en til klukkan 23.00 alla daga vik- unnar. Sundlaugar og líkamsræktar- stöðvar skulu einnig standa lokaðar almenningi áfram, vegna sérstakr- ar smithættu, en sundlaugar mega þó hafa opið fyrir skólasund og skipulagt íþróttastarf sem sam- ræmist settum reglum. Matvöruverslanir og apótek eru enn undanskilin þessum fjöldatak- mörkunum. Slíkum verslunum er heimilt að hafa allt að 100 manns inni í einu að því gefnu að uppfyllt séu skilyrði um nálægðartakmörk. Sem fyrr eru æfingar og keppni skipulagðs íþróttastarfs heimilar án áhorfenda og eru snertingar óheimilar. Tveggja metra fjarlægð- artakmörk gilda í skipulögðu íþróttastarfi innandyra og mega ekki fleiri en fjórir einstaklingar æfa eða leika saman í einu rými, sem skal að lágmarki vera 800 fer- metrar. Við skipulagt íþróttastarf utan- dyra mega ekki fleiri en sjö ein- staklingar æfa eða leika saman í hópi. Hlakka til að fara aftur að vinna  Fjöldatakmörkun fer úr 20 manns í 50 manns en regla um tveggja metra fjarlægðarmörk enn í gildi  Söfn og kvikmyndahús opna dyr sínar á ný  Líkamsræktarstöðvar og skemmtistaðir áfram lokaðir Ljósmynd/Barbarinn Opið Starfsmenn rakarastofunnar Barbarans hlakka til að mæta til vinnu, eftir margra vikna lokun í samkomubanni. Afl étting takmarkana frá og með í dag Tannlæknaþjónusta og sjúkraþjálfun er heimil Öku- og fl ug- kennsla er heimil ef við- komandi eru einkennalausir Tryggt skal í allri starf- semi að ekki séu fl eiri en 50 í sama rými Matvöruversl- anir og apótek mega áfram hafa hundrað manns, en gæta þarf tveggja metra fjarlægðar Nuddstofur, hárgreiðslu- stofur og snyrtistofur má opna á ný Skemmtistaðir, krár og spilasalir verða áfram LOKAÐIR Fjöldasamkomur eru áfram óheimilar, en nú aðeins ef fl eiri en 50 koma saman Sundlaugar og líkamsræktar- stöðvar lokaðar almenningi en opnar fyrir íþróttastarf og skólasund Fjöldatakmarkanir taka ekki til nemenda í starfsemi leik- og grunnskóla og barna í íþrótta- og æskulýðsstarfi Heimild: Heilbrigðisráðuneytið Færst hefur í vöxt á undan- förnum vikum að bálfarir fari fram án þess að duftkerin séu svo grafin. Eru kerin þá geymd þar til síðar, þegar fjölmennari athafnir geta farið fram. Fyrstu fjóra mánuði ársins voru 15,8% fleiri líkbrennslur en á sama tímabili í fyrra, að sögn Þórsteins Ragnarssonar, forstjóra Kirkjugarða Reykjavík- urprófastsdæma. Voru þær 388 nú en 335 í fyrra. Segir Þórsteinn það skýrast af breyttum aðstæðum í sam- félaginu sem stafi af samkomu- banni yfirvalda. „Það hefur verið aukning undanfarin ár, en 15,8% er ívið meira en hefur verið. Ég geri ráð fyrir því að það dragi aðeins úr þessu þegar á líður eða þegar samkomubannið verður víkkað út.“ Fleiri bálfarir en áður BREYTTAR AÐSTÆÐUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.