Morgunblaðið - 03.05.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.05.2020, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MAÍ 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Samtök iðn-aðarinsþinguðu í liðinni viku og gerðu það með öðr- um hætti en venja er eins og aðrir sem þurfa að „koma saman“ um þessar mundir. Í dag hefur að vísu rýmkast nokkuð um samkomkubannið, en þó ekki svo mjög að stórar samkomur séu mögulegar. Og alls ekki svo að nú sé tíminn til að slaka á og gleyma sér. Þvert á móti þarf áfram að fylgja öllum reglum um sóttvarnir svo að veiran skæða spretti ekki fram aftur. Komist hún á kreik af krafti á nýjan leik gæti skaðinn orðið enn meiri en orðið er, og er þá langt til jafnað. En þó að „samkoman“ á iðn- þinginu hafi í ár verið ólík því sem fólk á að venjast var ým- islegt gagnlegt að finna í álykt- un þingsins. Þar var bent á að atvinnulífið „dregur vagninn í verðmætasköpun þjóðarbúsins og því er það forsenda fyrir kröftugri viðspyrnu að öflug fyrirtæki standi af sér storm- inn. Þannig geta þau haldið fólki í vinnu og tryggt afkomu heimila landsins“. Þetta er grundvallaratriði sem sumir eiga erfitt með að skilja eða sætta sig við. Vel- ferðin væri orðin tóm ef hér væru ekki öflug fyrirtæki til að standa undir henni. Samtök iðnaðarins fagna að- gerðum stjórnvalda en benda á að frekari aðgerða sé þörf: „Ráðast þarf í framkvæmdir, létta álögum á fyrirtæki meðal annars með lækk- un tryggingagjalds og fasteignagjalda á atvinnuhúsnæði, einfalda regluverk og ryðja hindr- unum úr vegi, hvetja enn frekar til nýsköp- unar með skattívilnunum, fjölga starfs- og tæknimennt- uðum á vinnumarkaði með því að tryggja fleirum skólavist í haust og tryggja námslok og bæta umgjörð byggingarmála til að tryggja hraðari og hag- kvæmari uppbyggingu íbúðar- húsnæðis. Þá þarf að grípa til aðgerða þannig að vaxtalækk- anir Seðlabankans skili sér til fyrirtækjanna.“ Atvinnulíf þrífst betur við lágar álögur og einfalt reglu- verk en þegar skattar og gjöld eru að sliga fólk og fyrirtæki og reglugerðafrumskógurinn og eftirlitið ætla alla framtaks- semi að kæfa. Til að komast út úr því ástandi sem nú ríkir, með á sjötta tug þúsunda á at- vinnuleysisskrá og stóran hluta atvinnulífsins í alvar- legum vanda, þarf að grípa til aðgerða sem hleypa aftur fjöri í atvinnulífið. Skammtíma- aðgerðirnar sem gripið hefur verið til verða vonandi til þess að fleyta sem flestum yfir þann skyndilega skell sem fyrir- tækin fengu á sig. Meira þarf þó til og annars konar aðgerðir svo að atvinnulífið komist á það flug sem nauðsynlegt er til að útrýma atvinnuleysinu og leggja aftur undirstöðurnar að þeirri velferð sem landsmenn eru vanir og vilja búa við. Lækkun skatta og einföldun reglu- verks mun flýta för- inni út úr kreppunni} Nú þarf að huga að undirstöðunni Bresk stjórnvöldhafa brugðist við skyndilegum efnahagssam- drætti með ýmsum hætti eins og marg- ar aðrar þjóðir. Eitt af því sem gert hefur verið er að flýta lækkun virðis- aukaskatts á rafbækur úr hefð- bundnu þrepi, 20%, í 0%. Til stóð að þessi breyting kæmi til framkvæmda í lok ársins, en í ljósi aðstæðna var ákveðið að flýta þessari skattalækkun og samræma skattheimtu bóka í rafrænu formi og hefðbundinna bóka þegar í stað. Annað sem bresk stjórnvöld hafa gert vegna ástandsins er að lækka virðisaukaskatt á raf- útgáfu dagblaða niður í sama skattþrep og hefðbundin dag- blöð eru í. Rafblöð hafa verið í 20% skattþrepi en fara nú niður í 0% skattþrepið sem bresk dagblöð hafa verið í um árabil. Víða í Evrópu eru dag- blöð með 0% virð- isaukaskatt eða aðra mjög lága pró- sentu, ólíkt því sem hér er þar sem 11% skattur er lagður á dagblöð. Hröð viðbrögð breskra stjórnvalda til lækkunar virð- isaukaskatts á ofangreindar vörur sýna að sé vilji fyrir hendi er hægt að taka slíkar ákvarðanir og hrinda þeim í framkvæmd. Sú staðreynd að Bretar búa nú við 0% virðis- aukaskatt á bækur og blöð, hvort sem er á pappír eða á raf- rænu formi, sýnir um leið að bresk stjórnvöld hafa ekki að- eins skilning á mikilvægi þess- ara miðla heldur hafa þau um leið vilja til að taka skref sem munar um svo að þeir megi þrífast. Bretar, líkt og fleiri þjóðir, styðja bækur og dagblöð með lágum sköttum} Jákvæðar aðgerðir Þ að fór ekki fram hjá neinum að laun þingmanna og ráðherra voru hækkuð hinn 1. maí um 6,3% frá áramótum. Til þess að gæta allrar sanngirni þá hækkuðu launin samkvæmt lögum hinn 1. janúar sl. en það gleymdist að greiða laun samkvæmt þeirri hækkun þangað til núna. Ríkisstjórnin mundi allt í einu eftir því þegar næsta hækkun hinn 1. júlí næstkomandi átti að koma til fram- kvæmda. Þeirri hækkun var blessunarlega frestað en þau hættu allt í einu að gleyma hækkuninni sem átti að verða 1. janúar. Ég fylgdist vel með þegar fjárlög 2020 voru afgreidd hvort það kæmi inn fjárheimild til þess að hækka laun þingmanna um áramótin. Ekkert slíkt gerðist og ég leit svo á að það ætti bara að sleppa hækkuninni. Því fylgdist ég vel með næstu launaseðlum og það reyndist rétt. Engin launahækkun. Flott, ég hafði ekki yfir neinu að kvarta og enginn annar sagði neitt heldur. Það var greinilega engin eftirspurn eftir þessari launahækkun, hún gleymdist og enginn kvartaði. Þessi launahækkun er dálítið undarleg, hún er nefni- lega reiknuð miðað við launaþróun ársins 2018 en hækk- uninni var frestað í fyrra vegna lífskjarasamninganna. Þingmenn og ráðherrar eru semsagt að fá mjög gamla launahækkun vegna launaþróunar ársins 2018 fyrst núna. Launahækkun sem enginn vildi greinilega fá því það kvartaði enginn þegar hún kom ekki. Það sem er enn áhugaverðara er að reiknuð launaþróun ársins 2018 er 6,3%. Samt fengu lífeyrisþegar einungis 4,7% hækkun fyrir sama ár, en samkvæmt al- mannatryggingarlögum eiga lífeyrisþegar að fá annaðhvort hækkun skv. launaþróun eða verðbólgu, hvort sem er hærra. Þessir tveir hópar, lífeyrisþegar annars vegar og þing- menn og ráðherrar hins vegar, eru semsagt að fá hækkun launa samkvæmt svipuðum við- miðum. Launavísitala fyrir árið hækkaði meira að segja um 6,45% og útskýrist mis- munurinn á því að hækkun þingmanna miðast bara við launaþróun opinberra starfsmanna. Með réttu hefði því lífeyrir almannatrygginga átt að hækka um 6,45%, meira en laun þing- manna. Það gerðist hins vegar ekki af því að lífeyrir hækkar samkvæmt spá og sú spá hef- ur alltaf verið vanmetin og hefur aldrei verið leiðrétt afturvirkt. Laun þingmanna eru hins vegar hiklaust leiðrétt afturvirkt. Lífeyrir er lífsnauðsynlegur en er líka fátæktargildra. Lífeyrir nær hvorki að halda í við launaþróun né verð- bólgu og er skertur í allar áttir ef fólk vogar sér að reyna að bjarga sér sjálft með smávægilegum aukatekjum. Fé- lagsmálaráðherra vísaði um daginn í ummæli Ghandis, að fátækt væri ljótasta form ofbeldis, og þau ummæli Kims Larsens að hinir sterku sæju yfirleitt um sig sjálf- ir. Forgangsröðun ríkisstjórna ætti að vera hjá þeim sem eru í veikri stöðu. Launahækkanir sýna forgangsröð- unina, svart á hvítu. bjornlevi@althingi.is Björn Leví Gunnarsson Pistill Lífeyrir og þingfararkaup Höfundur er þingmaður Pírata. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Hlaupskorpumöttull og app-elsínumöttull eru á meðalfimm nýrra tegundamöttuldýra sem hafa greinst við landið á síðustu tveimur árum. Þetta eru þekktar framandi ágengar tegundir víða um heim og gætu haft nei- kvæð áhrif á líf- ríkið, en einnig at- vinnustarfsemi. Náttúrustofa Suðvesturlands sérhæfir sig í rannsóknum á út- breiðslu og fram- vindu framandi tegunda í sjó á landsvísu. Í árs- skýrslu stofunnar fyrir 2019 segir að framandi ágengar tegundir séu önnur helsta ógnin við líffræðilegan fjöl- breytileika á heimsvísu. Suðupunktur landnáms „Samhliða hækkandi sjávarhita og auknum sjóflutningum eykst hættan á flutningi framandi tegunda sífellt. Í dag er suðvestanvert landið suðupunktur landnáms framandi teg- unda sökum tíðra skipaflutninga, en til þessa hafa um 90% framandi teg- unda fundist þar fyrst,“ segir í árs- skýrslunni. Glærmöttull fannst fyrstur þess- ara framandi möttuldýrategunda 2007, stjörnumöttull fannst 2011 á línukræklingi og 2018 og 2019 bætt- ust fimm landnemar möttuldýra við. Dr. Sindri Gíslason, forstöðurmaður Náttúrustofu Suðvesturlands, segir að framandi tegundum sé stöðugt að fjölga og segist sannfærður um að á næstu árum muni því miður margar nýjar framandi tegundir finnast hér við land. Á næstunni birtist grein í vísindaritinu BioInvasion Records um landnám möttuldýranna við Ís- land. „Þær tegundir sem hér hafa numið land eru allar þekktir skað- valdar víða um heim,“ segir Sindri. „Þær taka oft yfir búsvæði og vinna aðrar tegundir í samkeppni um fæðu og pláss. Í atvinnulífinu geta þær haft neikvæð áhrif t.d. á fiskeldi og kræk- lingarækt. Í Bandaríkjunum og Kan- ada er milljónum dala varið ár hvert í að berjast gegn framandi tegundum í sjó, sem margar hverjar þekja allt hart yfirborð, eins og til dæmis hafn- armannvirki, baujur og skipskrokka. Þessar tegundir auka kostnað við þrif báta og hafnarmannvirkja og leggjast á línur í skelfiskrækt og eins á eldiskvíar; þekja þær og sliga.“ Þær tegundir framandi sjávar- lífvera sem hingað hafa komið hafa flestar borist með kjölfestuvatni, hin- ar sem ásætur á skrokkum skipa. Fyrsti viðkomustaður þessara teg- unda er yfirleitt í höfnum og segir Sindri brýnt að vera á varðbergi og fylgjast með. Vöktun og bætt umgengni Náttúrustofa Suðvesturlands hóf vöktun í helstu höfnum hringinn í kringum landið 2018. Sindri segir að vöktun sé gríðarlega mikilvæg, því grípa þurfi til mótvægisagerða áður en dýrin berist um allt land og verði illviðráðanleg. Fara þurfi að huga að því að þrífa skip og hafnarmannvirki meira og betur en nú sé gert, sem leiða muni jafnframt af sér minni eldsneyt- iskostnað. „Biðin langa er svo eftir að öflug og náttúruvæn skipamálning komi á markað,“ segir hann. Lengi hefur verið vitað að fram- andi gestir ferðist með kjölfestuvatni og reglur hafa verið hertar varðandi losun kjölfestuvatns um heim allan. Skipum sem koma í íslenska efna- hagslögsögu hefur t.d. verið skylt að halda kjölfestudagbók síðan 2010. Þá er í bígerð ný reglugerð um að öll ný skip innan Evrópusambandsins verði með hreinsibúnað til að meðhöndla kjölfestuvatn, að sögn Sindra. Þekktir skaðvaldar hafa numið hér land Glærmöttull Fannst fyrstur möttuldýranna hér á landi, árið 2007. Möttuldýr » Í stuttu máli eru möttuldýr flokkur sjávarhryggleysingja. » Þekktar eru um 3.000 teg- undir á heimsvísu og af þeim eru 64 tegundir þekktar fram- andi tegundir. » Möttuldýr eru botnlægir síarar, lifa annaðhvort sem stök dýr eða í þyrpingum á hörðu undirlagi. » Af þessum 3.000 teg- undum er stærð þeirra mjög misjöfn, frá 0,5 sentimetrum upp í 26 sentimetra að lengd. » Glærmöttull er t.d. með stærri tegundum, en hann verð- ur stærstur um 15 sentimetrar að lengd. Ljómyndir/Sindri Gíslason Stjörnumöttull Fannst í fyrsta skipti hér á landi á línukræklingi 2011. Sindri Gíslason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.