Morgunblaðið - 03.05.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MAÍ 2020
80 ára Jóhanna ólst
upp á Háteigsvegi í
Reykjavík en býr í
Garðabæ. Hún er
hjúkrunarfræðingur og
vann mest á geð-
deildum.
Maki: Ólafur Þór
Thorlacius, f. 1936, fyrrverandi deildar-
stjóri hjá Sjómælingum Íslands.
Dætur: Margrét, f. 1961, Sigríður Elín, f.
1963, Sóldís, f. 1964, og Theodóra, f.
1974.
Foreldrar: Sigríður Elín Þorkelsdóttir, f.
1909, d. 1993, húsfreyja í Reykjavík, og
Jóhannes Zoëga, f. 1907, d. 1957, prent-
smiðjustjóri.
Jóhanna J. Thorlacius
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þín bíður eitthvað stórt og spenn-
andi. Ráðlegt er að bregðast vel við ef þér
verður boðið að axla aukna ábyrgð.
20. apríl - 20. maí
Naut Slepptu hendinni af kvíðanum og
taktu skref inn í óvissuna miklu. Þú ert eins
og kötturinn, átt níu líf.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur tekið mjög skyn-
samlegar og hagnýtar ákvarðanir í
vinnunni í dag. Hverjar eru óskir þínar
varðandi framtíðina? Íhugaðu þær.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ný tækifæri standa þér opin og
það ríður á miklu að þú flýtir þér hægt og
kannir alla málavexti til fulls. Láttu hug-
myndir þínar verða að veruleika.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þótt þú viljir gjarnan hjálpa ein-
hverjum úr fjölskyldunni í dag gætu þau
góðu áform leitt til vandræða. Notaðu
samningatækni þína til að semja frið.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ákvarðanir blasa við, taktu þær
hratt og af festu. Þér finnst gott að slaka á
og njóta augnabliksins. Það mættu fleiri
taka þig til fyrirmyndar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú færð óvæntar gleðifréttir svo full
ástæða er til að gera sér glaðan dag. Haltu
ótrauð/ur áfram á sömu braut. Einhver
kemur sér undan að svara spruningu þinni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nýtt samband virðist byggt á
vináttu en ýmislegt bendir til að ástríðan
kraumi undir niðri. Sýndu öðrum skilning
og þér mun verða launað þótt síðar verði.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Fylgdu eðlisávísun þinni jafnvel
þótt aðrir eigi bágt með að skilja þig og
stefnu þína. Öllu gamni fylgir einhver al-
vara.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það reynir á stjórnunarhæfileika
þína og það ríður á miklu að þú bregðist
rétt við. Það að tala við vin getur bjargað
deginum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Í stað þess að bregðast við
uppákomum lífsins án umhugsunar ættir
þú að nota daginn til þess að íhuga, vinna
úr og láta gerjast í þér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Velgengni þín virðist ógna fólki á
einhvern hátt. Þér gæti ekki verið meira
sama um álit annarra, haltu bara þínu
striki og þú munt slá í gegn.
fyrir Félags íslenskra leikara. Gest-
ur var gerður að heiðursfélaga Leik-
félags Akureyrar fyrir nokkru.
Fjölmiðlamaðurinn
Gestur Einar var blaðamaður á
Degi á Akureyri þegar blaðið var að
stækka úr tveimur blöðum á viku
upp í dagblað. Hann tók þátt í stofn-
un útvarps Hljóðbylgjunnar á Ak-
ureyri 1987 og var forstöðumaður
hennar í byrjun. Hann hóf síðan
störf hjá Ríkisútvarpinu sama ár
með aðsetur á Akureyri. Þaðan
stjórnaði hann mörgum vinsælum
þáttum á borð við Hvítir mávar, Með
grátt í vöngum og mörgum fleiri.
Hann stjórnaði viðtalsþáttum bæði í
útvarpi og sjónvarpi, auk þess að
Einnig þykir mér vænt um hlutverk
Geoffreys úr Hunangsilmi.“
Gestur Einar hefur leikið í mörg-
um kvikmyndum í sjónvarpi og út-
varpi. Af kvikmyndum sem hann
hefur tekið þátt í má nefna Útlag-
ann, Kristnihald undir jökli, Karla-
kórinn Heklu, Stellu í orlofi, Gull-
sand, Með allt á hreinu og Svaninn.
Svo hefur hann leikið í sjónvarps-
seríum eins og Hæ Gosi og Tími
nornarinnar, auk stuttmynda og
skólaverkefna nemenda í kvik-
myndagerð.
Á ráðningartíma sínum hjá L.A.
sat Gestur Einar um tíma í leikhús-
ráði fyrir hönd leikara. Hann var
einnig í stjórn Leikfélagsins, auk
þess að vinna ýmis trúnaðarstörf
G
estur Einar Jónasson er
fæddur 4. maí 1950 á
Akureyri í húsi afa síns
og ömmu, þeirra Gests
sótara og Lísbetar, að
Reynivöllum 2 á Eyrinni. „Ég átti
frábær ár sem strákur á Eyrinni með
skemmtilegum vinum. Við lékum
mikið við sjóinn og Slippinn við veið-
ar, strákapör og fótbolta.“
Leikarinn
„Ég gekk í Barnaskóla Íslands
eins og hann var kallaður hér á
Akureyri en hafði áður verið í smá-
barnaskóla sem var kenndur í heima-
húsi. Ég var enn í framhaldsskóla
þegar ég var beðinn að taka þátt í af-
mælissýningu Leikfélags Akureyrar
á Draumi á Jónsmessunótt eftir
William Shakespeare. Hlutverkið var
varðmaður með spjót, en þetta var
1967. Strax árið eftir var ég fenginn
til að taka þátt í sýningu L.A. í Sjall-
anum á leikriti með söngvum, Rjúk-
andi ráð þar sem ég lék löggu. Eftir
þetta lék ég eða var viðloðandi nánast
allar sýningar leikfélagsins til ársins
1985 er ég sagði upp föstum leik-
arasamningi mínum. Á sumrum og í
sumarfríum frá leiklistinni vann ég
svo hjá Akureyrarbæ við malbikun
gatna og bílaplana í bænum.“
Eftir að hafa sótt námskeið og
þjálfun hér heima í leiklist fór Gestur
Einar til London og sótti sér frekari
menntun í listinni, en hann nam við
Webber Douglas Academy of Dram-
atic Art.
Gestur Einar var í hópi fyrstu leik-
ara sem voru ráðnir á fastan samning
hjá Leikfélagi Akureyrar 1973. Á
þessu tímabili til 1985 var Gestur bú-
inn að leika um 100 hlutverk á sviði á
Akureyri og með Leikfélagi Akur-
eyrar á leikferðum víða um land, auk
þess að leikstýra hjá L.A. og hjá
áhugafélögum. „Af eftirminnilegum
hlutverkum má nefna Umba í
Kristnihaldi undir jökli, Eftirlits-
manninn úr samnefndu verki, hinn
geðþekka Mikka ref í Dýrunum í
Hálsaskógi og Jónatan ræningja í
Kardemommubænum, bæði hlut-
verkin í tvígang á um 10 ára tímabili.
Natan Ketilsson úr verkinu um
Skáld-Rósu og róninn úr Fyrsta öng-
stræti til vinstri eru minnisstæðir.
vinna við fréttir, íþróttalýsingar og
nánast allt sem sneri að þessum
miðlum. „Síðustu árin hef ég séð um
viðtalsþáttinn Hvítir mávar á norð-
lensku sjónvarpsstöðinni N4.“
Gestur Einar hefur alltaf haft
mikinn flugáhuga. „Enda ólst ég upp
á flugvelli og sótti mér flugpróf á
unga aldri, en ég ætlaði að verða
flugmaður áður en ég fór út í leik-
listina.“ Hann hefur setið í stjórn
Vélflugfélags Akureyrar og frá 2008
og fram til síðustu áramóta gegndi
hann stöðu safnstjóra Flugsafns Ís-
lands á Akureyrarflugvelli. „Þar
vann ég að uppbyggingu safnsins
sem heldur utan um þann þátt ís-
lenskrar menningar sem snýr að
flugsamgöngum.“ Gestur hefur
einnig mikinn áhuga á íþróttum og
er dyggur stuðningsmaður KA.
Hann vann ýmis verk fyrir félagið á
árum áður og sat um tíma í stjórn
Knattspyrnufélags Akureyrar.
Gestur Einar hefur alltaf búið á
Akureyri og mest af störfum sínum
hefur hann unnið þar. „Ég hef unnið
með ýmsum listamönnum hérna, svo
sem Ingimar Eydal og hans fólki.
Mér þykir gaman að hafa Akureyri
sem lifandi bæ og þess vegna skipu-
lagði ég meðal annars jólatónleika í
miðbænum þar sem íbúar og gestir
Gestur Einar Jónasson, leikari og fjölmiðlamaður – 70 ára
Tilbúinn til flökunar Gestur með silung úr Vesturhópsvatni.
Eflir menninguna á Akureyri
Afastelpurnar Lea og Kaja. Tengdasonur og dóttir Gunnar og Halla Bára.
Hjónin Gestur Einar og Elsa í fjölskylduferð í Berlín.
Sæmundur Steinar
Sæmundsson er 60
ára í dag. Hann er
fæddur á Akranesi
en hefur verið bú-
settur í Gautaborg
síðan 1979. Vegna heimsfaraldurs hef-
ur 60 afmælispartíinu One Love!, sem
fyrirhugað var að halda á heimili
Sæma í Gautaborg, verið frestað til
2021. „Verið velkomin að ári liðnu,
bæði vinir og ættingjar, þegar þetta
leiðinda Covid-19 er gengið yfir,“ segir
Sæmundur.
Árnað heilla
60 ára
40 ára Hanna ólst
upp í Neskaupstað og
á Akureyri en býr í
Reykjavík. Hún er
stúdent frá Verk-
menntaskólanum á
Akureyri og er
verkefnastjóri hjá
Nordic Visitor.
Maki: Halldór Jóhann Sigfússon, f. 1978,
handboltaþjálfari hjá Selfossi.
Börn: Álfheiður María, f. 1999, Torfi Geir,
f. 2004, og Sigurveig Ýr, f. 2010.
Foreldrar: Ásgeir Magnússon, f. 1950,
fyrrverandi sveitarstjóri í Vík í Mýrdal, og
Ásthildur Lárusdóttir, f. 1949, fyrrverandi
bankastarfsmaður. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Hanna Lára Ásgeirsdóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is