Morgunblaðið - 03.05.2020, Page 25

Morgunblaðið - 03.05.2020, Page 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MAÍ 2020 komu saman og sungu jólalög.“ Sumardaginn fyrsta síðastliðinn var Gesti veitt heiðursviðurkenning Menningarsjóðs Akureyrar fyrir störf sín að menningarmálum. Fjölskylda Eiginkona Gests er Elsa Björns- dóttir, f. 3.9. 1950, hárgreiðslumeist- ari. Foreldrar hennar voru Björn Ottó Kristinsson, f. 1.10. 1918, d. 29.6. 1992, vélvirkjameistari og skólastjóri Vélskóla Íslands á Akureyri, og Hall- dóra S. Gunnlaugsdóttir, f. 16.10. 1926, d. 29.1. 1998, húsmóðir. Þau giftust 1946 og bjuggu allan sinn búskap á Akureyri. Dóttir Gests og Elsu er Halla Bára f. 3.2. 1973, master í innanhúss- hönnun, búsett í Reykjavík. Eigin- maður hennar er Gunnar Sverrisson ljósmyndari og dætur þeirra eru Lea, f. 2003, og Kaja, f. 2008. Gunnar á soninn Guðmund Örn, f. 1995. Systkini Gests eru Guðný Jónas- dóttir, f. 30.4. 1947, fyrrv. flugfreyja og fótaaðgerðafræðingur, búsett á Seltjarnarnesi, og Hjördís Nanna Jónasdóttir, f. 29.4. 1961, búsett í Svíþjóð. Foreldrar Gests voru Jónas Einar Einarsson, f. 22.1. 1921, d. 23.6. 1972, flugumferðarstjóri á Akureyri, og Bára Gestsdóttir, 14.10. 1925, d. 7.8. 1999, húsmóðir. Þau giftust 1945 og bjuggu á Akureyri, utan nokkurra ára í upphafi búskapar meðan Jónas lærði útvarpsvirkjun í Reykjavík. Gestur Einar Jónasson Hólmfríður Steinunn Hallgrímsdóttir húsfreyja í Fnjóskadal og áAkureyri Tryggvi Kristjánsson bóndi m.a. á Skuggabjörgum og Austari-Krókum í Fnjóskadal Lísbet Tryggvadóttir húsmóðir og verkakona áAkureyri Gestur Jóhannesson verkamaður áAkureyri Bára Gestsdóttir húsmóðir áAkureyri Sigríður Rósa Sigurðardóttir húsfreyja á Ytra-Hóli Jóhannes Sigurðsson bóndi á Ytra-Hóli í Fnjóskadal Jón Magnússon fréttastjóri Rúv Jón Ólafsson bóndi á Sveins- stöðum í Þingi Þórir Guðmundsson nnkaupastj. í Kópav. ón Kristjánsson læknir í Rvík Gróa Ólafsdóttir húsfreyja í Víðidals- tungu í Víðidal Magnús Jónsson b. á Sveinsstöðum Oddný Metúsalemsdóttir húsfreyja í Ytri-Hlíð í Vopnaf. Friðrik Páll Jónsson fv. fréttastjóri Rúv i Snorri Þórisson kvikmyndaframleiðandi J Ágúst Jónsson skipstjóri hjá Eimskip Bogi Ágústsson fréttamaður á Rúv Kristjana Jónsdóttir húsfreyja á Kjarna Jónas Jónsson bóndi á Kjarna í Eyjafirði Guðný Jónasdóttir húsfreyja á Seyðisfirði og Akureyri Einar Metúsalemsson verslunarmaður á Seyðisfirði ogAkureyri Metúsalem Einarsson bóndi á Burstafelli Elín Ólafsdóttir húsfreyja á Burstafelli í Vopnafirði Úr frændgarði Gests Einars Jónassonar Jónas Einar Einarsson flugumferðarstjóri áAkureyri „LÆKNARNIR SEGJA AÐ BATAFERLIÐ SÉ EINS OG ÓLGUSJÓR. ÉG MYNDI FYLGJA ÞÉR EN ÉG VERÐ ALLTAF SJÓVEIK.” „VIÐ LEYFUM ENGA SVONA Á OKKAR PLÁNETU.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... ljóð hennar til þín. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HVENÆR VERÐUR MATURINN TIL, LÍSA? ÞEGAR BROKKOLÍIÐ ER TILBÚIÐ HVERSU LENGI ÞARF AÐ SJÓÐA BROKKOLÍ? VONANDI LENGUR EN FYRIR PÍTSUSENDILINN AÐ KOMA DJÖ! VIÐ GLEYMDUM AÐ GRÍPA GULLSKARTGRIPINA! ÉG VISSI AÐ ÞAÐ VÆRI EKKI GÁFULEGT AÐ FARA SVANGIR Í RÁNSFERÐ! Áfimmtudag orti Pétur Stef-ánsson „vísu dagsins“ á Leir: Vorsins blærinn veröld strýkur, velli nærir sólin blíð. Allur snær frá vetri víkur, vaknar kær og betri tíð. Pétur bætti síðan við: „Vorsólin skín glatt þennan daginn. Hitastig- ið ekki mjög hátt í morgunsárið, en það hlýnar með deginum. Vindur hægur. Snjórinn bráðnar hægt og rólega um land allt og er betri tíð í vændum.“ „Fjöllin seiða“ segir Guðmundur Arnfinnsson á Boðnarmiði: Gæddur þori greini mátt greikka spor til fjalla, get nú borið höfuð hátt heyri vorið kalla. Hólmfríður Bjartmarsdóttir á Sandi yrkir: Þeim verður á að vori að gá sem veðrum góðum unna. Gulan dúsk í gær ég sá á grávíðirunna. Þó vorið hér sé heldur latt og heldur kalt, að sinni. Birkigreinar bruma hratt í blómavasa, inni. Litkast bráðum landið hvítt lifnar gleði og þor. Sólar bros í suðri blítt svona á að hafa vor Afi hennar, Guðmundur á Sandi, orti „Vorgæði“: Enn þá gerast æfintýr: Eyjar, búnar flosi, jarðar-kringla, himinn hýr, hafið – öll í brosi. Og hér er „Vorvísa“ eftir Guð- mund: Það glæðir áhuga, göfga teiti, og gefur útþránum byr í voð: að sjá þig, vorgyðja, suður á leiti, og sendir héraði veisluboð. Og viðbragð áskotnast vilja lúnum, hann vængjar sig til að fara á kreik. Og fíflum sóleyjar færa í túnum þau full, að glókollar lyfta brúnum. Sigurlín Hermannsdóttir segir: „Heimurinn spyr í ofvæni“: Er Kim Jong-un lífs eða liðinn? um lönd öll er spurt sem og miðin. Var hann sendur í fegrun; í massífa megrun eða guðar á gullslegin hliðin? Friðrik Steingrímsson segir að sér leiðist þessi málkækur for- manns Eflingar: Ef um laun við einhvern sem er ekki vill sig beygja, í þriðja hverju orði „em“ ætla ég að segja. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Svona á að hafa vor

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.