Morgunblaðið - 03.05.2020, Blaðsíða 27
HANDBOLTI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Mariam Eradze, landsliðskona í
handknattleik, gerði þriggja ára
samning við Val í síðustu viku. Kem-
ur hún til Hlíðarendafélagsins frá
Toulon í Frakklandi. Hún fór ung að
árum til Frakklands og lék með
Cannes, áður en leiðin lá til Toulon.
Mariam, sem er 21 árs, var ekki
lengi að samþykkja þriggja ára
samningstilboð Vals.
„Þetta gerðist hratt. Félagið mitt
hér vissi að ég vildi komast heim til
fjölskyldunnar og fara í skóla. Ég
var enn á tveggja ára samningi, en
þau sögðu það í lagi að ég myndi fara
heim. Þá heyrði Valur í mér og þetta
gerðist mjög hratt eftir það,“ sagði
Mariam við Morgunblaðið og bætti
við að Valur hefði verið eina félagið
sem kom til greina á þessum tíma-
punkti.
Mariam verður ekki fyrsti leik-
maður Vals sem ber eftirnafnið
Eradze því faðir hennar, Roland
Valur Eradze, lék með félaginu frá
2000 til 2004. Roland kunni greini-
lega vel við sig hjá Val, því hann tók
upp nafnið Valur þegar hann fékk ís-
lenskt ríkisfang á sínum tíma. Mark-
vörðurinn lék á sínum tíma 52 lands-
leiki fyrir Ísland, þann fyrsta í
janúar 2003.
Ræddi við foreldrana
„Hann lék með Val og við grín-
uðumst með að núna þyrfti ég að
breyta nafninu mínu líka,“ sagði
Mariam og hló. „Ég ræddi við
mömmu og pabba áður en ég tók
þessa ákvörðun, en að lokum var
þetta mín ákvörðun,“ sagði Mariam.
Þess má geta að móðir hennar, Nat-
alia Ravva, var einnig mikil íþrótta-
kona og lék m.a. með landsliði
Georgíu í blaki. Lék Roland sömu-
leiðis með landsliði þjóðarinnar, áð-
ur en hann byrjaði að leika með því
íslenska.
Mariam fór til Frakklands í sum-
arfrí með fjölskyldunni þegar hún
var 15 ára gömul og var stefnan ekki
beint að spila úti næstu árin. Tæpum
sex árum síðar er hún hins vegar
loksins á heimleið.
Fór fyrst í sumarfrí
„Ég fór fyrst út þegar ég var 15
ára. Ég fór með fjölskyldunni í sum-
arfrí og frænka mín býr í Suður-
Frakklandi og við kíktum til hennar.
Ég var á leiðinni í menntaskóla á
þessum tíma og vildi æfa til að vera
tilbúin ef kallið kæmi frá meistara-
flokki Fram. Ég kíkti á nokkrar æf-
ingar hjá Cannes og þetta var mjög
saklaust. Ég vildi bara æfa, en eftir
fyrstu æfinguna báðu þau mig að
vera eftir og spila með þeim í yngri
flokkum og mögulega meistara-
flokki. Ég var hjá þeim í eitt ár, en
meiddist síðan og fór heim í eitt ár.
Eftir það fór ég síðan aftur út og þá
til Toulon,“ sagði Mariam, sem ætlar
sér að mennta sig samhliða því að
spila handbolta með Val.
„Ég er búin að vera að pæla í
þessu í rúmlega ár og ég hef saknað
fjölskyldunnar, enda búin að vera í
burtu í tæp sex ár. Heimþráin var
orðin mikil og mig langaði líka að
fara í skóla. Ég er búin að vera í fjar-
námi í fjögur ár og ég vildi komast í
almennilegan skóla. Fjölskyldan
vissi það og sagði mér endilega að
koma heim og það var réttur tíma-
punktur að gera það núna.“
Æðislegt í frönsku deildinni
Mariam er uppalin hjá Fram og
lék með liðinu upp í 4. flokk áður en
hún hélt út. Mun hún því leika í
meistaraflokki hér á landi í fyrsta
skipti á næstu leiktíð. „Markmiðið
hjá mér er að vinna sem mest með
liðinu og svo fá minn tíma á vell-
inum. Ég hef verið að spila í frönsku
deildinni og það er búið að vera æð-
islegt, en ég hef ekki fengið nægi-
lega mikinn spiltíma. Ég vona að ég
geti aflað mér meiri reynslu með því
að fá stærra hlutverk. Ég hef heyrt
góða hluti frá Gústa [Ágústi Jó-
hannssyni, þjálfara Vals] um liðið og
ég er spennt að spila í deildinni, sem
ætti að vera mjög sterk næsta vet-
ur,“ sagði Mariam, en hún skoraði 24
mörk í 17 leikjum í frönsku deildinni
á leiktíðinni. Var Toulon í 9. sæti 1.
deildarinnar þegar tímabilið var
blásið af vegna kórónuveirunnar.
Mariam er sátt með sinn tíma í
Frakklandi. „Ég er mjög sátt. Þetta
var mikil reynsla og ég lærði mjög
mikið á þessum árum, ekki bara í
handboltanum. Ég lærði hvernig
maður á að haga sér og lærði mikið
af leikmönnunum sem ég spilaði
með,“ sagði Mariam og nefndi þá
sérstaklega frönsku landsliðskonuna
Siröbu Dembélé, sem hefur leikið
tæplega 300 landsleiki og orðið Evr-
ópu- og heimsmeistari með Frökk-
um. „Ég var að spila með Siröbu
Dembélé sem er einn besti leik-
maður heims og ég lærði ótalmargt
af henni; hvernig hún lætur, hvernig
hún talar og hvernig hún kemur
fram yfir höfuð. Það var mjög góð
reynsla að vera með henni í liði.
Vill festa sig í landsliðinu
Mariam lék með yngri landsliðum
Íslands og m.a. með U20 ára liðinu á
lokamóti HM í Ungverjalandi árið
2018. Árið áður fékk hún tækifæri
hjá Axel Stefánssyni í æfingahópi A-
landsliðsins, en fyrsti landsleikurinn
kom gegn Færeyjum í vináttuleik á
Ásvöllum í nóvember á síðasta ári.
Þá var Arnar Pétursson tekinn við
af Axel. Þar fékk hún smjörþefinn af
því að spila með bestu leikmönnum
Íslands.
„Ég hef ekki spilað mikið með
landsliðinu. Það urðu auðvitað þjálf-
araskipti og núna er mitt markmið
að komast almennilega í landsliðið.
Ég hef verið svolítið inni og úti til
skiptis og það væri geggjað að fá
minn stað í liðinu.“
Þar sem Mariam hefur leikið er-
lendis frá 15 ára aldri hafa fáir hand-
boltaunnendur hér á landi séð hana
spila. Hvers konar leikmaður er
Mariam? „Ég spila aðallega vinstri
skyttu en svo get ég spilað allar úti-
stöðurnar og á línunni ef þess þarf,
en ég er lítið í því. Ég er orkumikill
leikmaður sem vill vinna. Mér finnst
ömurlegt að tapa og ég gefst aldrei
upp. Mér finnst svo gaman að taka
af skarið og taka á mig ábyrgð. Ég
skal 100 prósent taka síðasta skotið í
jöfnum leik. Ég fékk það frá pabba
mínum, þótt hann hafi verið í mark-
inu,“ sagði Mariam. Átti hún nokkra
afar góða leiki með Toulon og skor-
aði t.a.m ellefu mörk úr tólf skotum
gegn Paris92 á síðustu leiktíð.
Fram á stóran stað í hjartanu
Þegar undirritaður ætlaði að
þakka fyrir sig og kveðja bað Mari-
am um lokaorð. „Ég kem úr Fram
og ég er afar þakklát fyrir félagið og
það sem það hefur gert fyrir mig í
gegnum árin. Ástæða þess að ég fór
ekki aftur í Fram er að mér finnst
Framliðið í rauninni tilbúið og ég
þarf meiri spiltíma. Fram á stóran
stað í hjarta mínu en á þessum tíma-
punkti á Valur betur við það sem ég
er að leita að,“ sagði Mariam.
Fram var með fimm stiga forskot
á Val þegar tímabilið hér á landi var
blásið af í síðasta mánuði. Þá urðu
Framkonur bikarmeistarar og voru
líklegar til afreka í baráttunni um
Íslandsmeistaratitilinn. Tímabilið á
undan vann Valur hins vegar þrefalt
og er líklegt að liðin berjist um þá
titla sem í boði eru á næstu leiktíð.
Nú þyrfti ég líka helst
að breyta nafninu
Mariam Eradze fetar í fótspor föður síns og leikur með Val næstu árin
Ljósmynd/Pierre Violet
Toulon Mariam Eradze reynir skot að marki í leik með Toulon í efstu deild Frakklands. Hún lék fyrstu tvo
A-landsleiki sína fyrir Íslands hönd í nóvember og á að baki fjölmarga leiki með yngri landsliðunum.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MAÍ 2020
Valsmenn staðfestu um helgina að
þeir hefðu fengið knattspyrnumann-
inn Aron Bjarnason lánaðan frá Új-
pest í Ungverjalandi til loka komandi
tímabils hér á landi. Aron lék 16 leiki
með Újpest í efstu deild í vetur en
hann fór til liðsins frá Breiðabliki í júlí
og lék áður með ÍBV, Fram og Þrótti.
Hann er 24 ára og hefur skorað 24
mörk í 113 leikjum í efstu deild hér-
lendis.
Aflraunamaðurinn Hafþór Júlíus
Björnsson lyfti 501 kg á laugardaginn
í beinni útsendingu heima hjá sér og
mun því vera fyrstur allra til að lyfta
meiru en hálfu tonni í réttstöðulyftu.
Hann skákaði með því Eddie Hall,
keppinaut sínum í keppni um sterk-
asta mann heims, sem lyfti 500 kíló-
um árið 2016. Ekki er um heimsmet í
réttstöðulyftu í kraftlyftingum að
ræða því lyftan uppfyllir ekki skilyrði
fyrir keppni í þeirri grein. Þar á Júlían
J.K. Jóhannsson heimsmetið í +120
kg flokki, 405,5 kg.
Anna Björk Kristjánsdóttir, lands-
liðskona í knattspyrnu og leikmaður
PSV Eindhoven í Hollandi, gæti leikið
á Íslandi í sumar. Hún staðfesti í hlað-
varpsþættinum Heimavellinum um
helgina að hún ætti í viðræðum við ís-
lensk félög.
Spánverjinn Roberto Martínez hef-
ur samið á ný við Belga um að stýra
karlalandsliði þeirra í knattspyrnu
fram yfir HM sem fer fram í Katar í
árslok 2022. Belgar hafa verið á mik-
illi sigurbraut undir stjórn Martínez,
aðeins tapað þremur leikjum af 43
undir hans stjórn. Þeir komust í und-
anúrslit HM 2018 í Rússlandi og eru
efstir á heimslista FIFA.
Hákon Hermannsson Bridde hefur
verið ráðinn yfirþjálfari handknatt-
leiksdeildar Gróttu til þriggja ára. Há-
kon hefur undanfarin tvö tímabil þjálf-
að karla- og kvennalið norska
félagsins Florö en áður þjálfaði hann
yngri flokka hjá HK um árabil.
Handknattleiksmaðurinn Þorgeir
Bjarki Davíðsson hefur samið við Val
til tveggja ára. Hann er 23 ára horna-
maður og lék alla 20 leiki HK í úrvals-
deildinni í vetur en spilaði áður með
Fram og Gróttu og yngri landsliðum
íslands.
Körfuknattleiksþjálfarinn Finnur
Freyr Stefánsson hefur sagt starfi
sínu lausu hjá danska félaginu Hor-
sens eftir eitt ár sem þjálfari liðsins.
Finnur stýrði liðinu til úrslita í danska
bikarnum og var í toppbaráttu í
dönsku úrvalsdeildinni, áður en
keppni var hætt vegna kórónuveir-
unnar. Áður en hann hélt út gerði
hann KR að Íslandsmeisturum fimm
ár í röð og þá hefur hann verið í þjálf-
arateymi A-landsliðs karla. Ákvörðun
Finns var tekin í ljósi ástandsins sem
ríkir í heiminum um þessar mundir.
Andri Heimir Friðriksson var um
helgina ráðinn aðstoðarþjálfari karla-
liðs ÍR í handknattleik og hann mun
jafnframt leika með liðinu. Andri, sem
er þrítugur, hef-
ur leikið með
Fram und-
anfarin tvö ár og
áður með ÍBV og
Haukum en hann er
uppalinn ÍR-ingur og
lék með félaginu til
2010. Hann verður
nýjum þjálfara ÍR-
inga, Kristni
Björgúlfssyni,
til aðstoðar.
Eitt
ogannað
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Aðeins fjórum dögum eftir að Guðjón
Valur Sigurðsson tilkynnti að hand-
boltaskórnir væru komnir á hilluna
var gamla þýska stórveldið Gum-
mersbach búið að staðfesta að hann
hefði verið ráðinn þjálfari liðsins til
næstu tveggja ára.
Félagið skýrði frá þessu í gær-
kvöld en Guðjón tekur við liðinu í
sumar og verkefni hans er að koma
félaginu aftur í fremstu röð. Gumm-
ersbach, eitt sigursælasta handknatt-
leiksfélag Þýskalands, féll úr efstu
deild í fyrsta skipti í sögunni vorið
2019 og var í fjórða sæti B-deild-
arinnar þegar keppni var hætt í mars,
tveimur stigum frá öðru sætinu.
Þýska handknattleikssambandið
ákvað síðan að röð liðanna eftir 24
umferðir af 34 skyldi gilda sem loka-
staða tímabilsins.
Guðjón er á leið á kunnuglegar
slóðir en hann gekk til liðs við Gumm-
ersbach frá Essen sumarið 2005 og
lék með því í þrjú ár. Fyrsta árið varð
hann markakóngur þýsku deild-
arinnar.
Gummersbach varð síðast þýskur
meistari árið 1991, þá í tólfta skipti og
í fimmta sinn á tíu árum. Félagið varð
Evrópumeistari fimm sinnum frá
1967 til 1983, vann EHF-bikarinn árið
2009 og Evrópukeppni bikarhafa 2010
og 2011. Kristján Arason varð meist-
ari með liðinu 1988 og Alfreð Gíslason
þjálfaði það á árunum 2006 til 2008.
Guðjón Valur fer á fornar slóðir
Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson
Þýskaland Guðjón Valur Sigurðs-
son á langan feril að baki í landinu.
Byrjar þjálfaraferil hjá gamla stórveldinu Gummersbach