Morgunblaðið - 03.05.2020, Blaðsíða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MAÍ 2020
Ferðin til fyrirheitna landsins
Íslenski kaupmaðurinn hafði heyrt
vini sína heima á Íslandi nefna Rask
og varð afar hrifinn af að hitta Dana
sem talaði móðurmál hans og hafði
lifandi áhuga á fornbókmenntum
Íslendinga. Áform Rasks voru þau að
leggja stund á tungumálið fyrst í
stað, síðan á söguna og loks á allt til-
tækt varðandi
samfélagið.
Hann var fyrst-
ur málvísinda-
manna til að
sækja Ísland
heim í því augna-
miði að læra
tungumálið. En
fyrstu áhrifin
voru engan veg-
inn í samræmi við
draumsýnir hans. Hrifning hans á
sögueyjunni gömlu og tungumáli
þess, „eyjunni heilögu! Hinu gríðar-
mikla hofi langminnisins“, hafði dreg-
ið hann svo á tálar að hugmyndir
hans stóðust engan veginn veru-
leikann.
Rask kom til Íslands að haustlagi
1813. Skipið Skálholt hefði átt að
sigla snemma um sumarið, en hið
ótrygga stjórnmálaástand, sem með-
al annars tengdist bankahruninu
sama ár, seinkaði brottförinni. Það
veitti honum ráðrúm til að sækja um
styrki og hann fékk í senn fé frá
Bülow, konunginum og Norðmanni
nokkrum, „Aal riddara“, járnsmiðju-
eiganda. J. Aal hugðist losa hann
undan þeirri áþján að bjóða upp á
aukatíma í reikningi svo að hann gæti
í staðinn lokið við ritgerð sína.
Vísindafélagið hafði árið 1812 gefið
út skrifleg fyrirmæli um verðlauna-
ritgerð sem skyldi fjalla um uppruna
fornnorrænna tungumála á grund-
velli rannsókna. Rask hafði sent inn
uppkast að svari og beðið um fá
afhendingarfrestinn rýmkaðan til
ársins 1813. Á það var fallist og nú
hafði hann tækifæri til að uppfylla
fyrsta markmið drauma sinna, að
læra íslensku „til fullnustu“ eins og
honum var einungis unnt á Íslandi.
Með sér í farteskinu hafði hann hið
ófullgerða handrit að ritgerðinni.
Reykjavík – á lág-
menningarnótum
Fyrst um sinn dvaldi hann í hinum
nýja höfuðstað, Reykjavík, sem var
lítið bæjarfélag 500 íbúa. Hinar
opinberu stofnanir voru dómkirkjan,
landsyfirrétturinn og tukthúsið, og
einmitt árið 1813 varð að sleppa öll-
um föngum lausum vegna þess að
ekki var hægt að fæða þá.
Það voru margir danskir kaup-
menn í höfuðstað Íslands. Umræð-
urnar í bænum voru „eins lágkúru-
legar og hugsast gat“ og bærinn
„algerlega laus við sérhverja lind til
þess að svala andlegum þörfum“.
Rask fann sér gistingu hjá íslensk-
um kaupmanni, en það var bara eitt
herbergi í húsi kaupmannsins þar
sem allt heimilisfólkið hafðist við. Þar
sat hann og skrifaði ritgerðina á með-
an aðrir gengu um og töluðu hver í
kapp við annan – og annað slagið
einnig við hann.
Reykjavík var heldur ekki til þess
kjörin að læra íslensku. Hann komst
að því að í Reykjavík var mál manna
mjög dönskuskotið og hann óttaðist
að íslenska myndi brátt heyra sög-
unni til ef ekki yrði gripið hart í
taumana. Ef þróunin fengi að haldast
óáreitt myndi varla nokkur skilja
íslensku í Reykjavík að hundrað
árum liðnum og tæpast enginn í land-
inu öllu eftir 200 ár. Hann vildi leggja
sitt af mörkum í því skyni að bjarga
íslenskri tungu.
Hann varð að komast út á land en
það reyndist örðugra en hann hafði
ímyndað sér heima. Árið 1813 var
„geggjaða peningaárið“. Gömlu pen-
ingaseðlarnir höfðu glatað verðgildi
sínu í bankahruninu og nýskipan pen-
ingamála í danska ríkinu frá 1813 tók
fyrst gildi á Íslandi tveimur árum síð-
ar. Hann gat því ekki notað nýju
bankaseðlana sem hann hafði með
sér að heiman en varð að bjargast við
vöruskipti.
Íslenskir vinir sóttir heim
Fyrst fór hann í tvær „litlar en í
hæsta máta óþægilegar ferðir“. Sú
fyrri var til æskuvinar frá Kaup-
mannahöfn, Árna Helgasonar, sem
nú var prestur á Reynivöllum í Kjós.
Hann dvaldi hjá Árna í viku og var
undrandi á hinum lélegu húsakynn-
um:
Prestssetur hans er, hvað húsnæði
varðar, tæplega eins þægilegt og gott
og hið landlausa hús föður míns á
Fjóni. Það er með moldarveggjum og
torfþaki, án kolaofns; eldhúsið er út af
fyrir sig og alveg eins lítið og okkar ytra
eldhús og notað sem lestrarherbergi.
Eftir dvölina hjá séra Árna sneri
Rask aftur til Reykjavíkur og
skömmu seinna hélt hann austur í
Rangárvallasýslu til séra Steingríms
Jónssonar sem bjó á hinu forna sögu-
setri Odda. Þar hafði Snorri Sturlu-
son, höfundur Eddu hinnar yngri,
fengið sína fræðilegu menntun.
Prestsembætti séra Steingríms átti
að heita eitt hið besta á Íslandi og
bær hans var líka ögn stærri og eilítið
betri en bær séra Árna, skrifaði
Rask.
Frá Odda fór Rask í skemmtiferð
til hins fræga býlis úr Njálssögu,
Hlíðarenda, sem stendur á fögrum
stað í grænum dal með hlíðar á báða
vegu og í fjarska blasa við snæviþakt-
ir jöklar. Ásamt fóstursyni séra
Steingríms, Ólafi Finnssyni, fór hann
í tjaldferð, meðal annars til þess að
sjá goshverina heitu, 80 km norð-
austur af Reykjavík. Þetta sjaldgæfa
og furðulega náttúrufyrirbæri gagn-
tók Rask, og í bréfi heim lýsti hann í
smáatriðum hvernig lindirnar heitu
draga sig saman ofan í jörðina og
bólgna svo skyndilega upp:
Hann [hverinn] skaut gríðarlegu magni
af sjóðandi og glóðheitu vatni upp í
loftið, stöðugt í hverju gosinu á eftir
öðru […] Allt þetta sjónarspil líktist sér-
legri flugeldasýningu; sérhver vatnssúla
sem þaut í loft upp líktist flugeldi.
Um kvöldmatarleytið voru föt
þeirra gegnvot svo þeir hugsuðu sér
til hreyfings og héldu af hverasvæð-
inu og frá Geysi á nálægan bóndabæ,
Laugarvatn, þar sem Vernharður
bóndi tók á móti þeim af mikilli gest-
risni. Hér var þeim heimil gisting og
þeir gátu þurrkað fötin sín.
Þrátt fyrir vonbrigði í fyrstu varð
tveggja ára dvöl á Íslandi honum
ógleymanleg, ekki síst vegna „óbeisl-
aðrar náttúru […] þar sem ógn-
þrungnir náttúrukraftar berjast hver
við annan, breiða út tryllta krafta
sína þúsund sinnum án sýnilegs til-
gangs, já, að engum ásjáandi, eyði-
leggja að öllu leyti hin yndislegustu
landsvæði, spilla landi, gera fólkið
snautt og drepa búfénað“.
Þessi reynsla efldi með Rask guð-
lausa heimsmynd og afneitun á hug-
myndinni um æðri forsjón sem öllu
ræður. Í hans augum var glundroði
hið ríkjandi afl í heiminum,
… trylltur óreiðukraftur sem fer þvert í
gegnum sjálfan sig, vinnur gegn sjálf-
um sér og skiptir sér endalaust, en þar
með sundrar hann einnig og eyðir sjálf-
um sér, þar sem stundum eitt atóm,
stundum annað atóm hefur sig upp
rétt eins og eldblossi til þess aftur að
kulna og hverfa, en þar sem engin sýni-
leg regla, engin miðstýrð eining ríkir,
þar sem ekkert auga getur séð fyrir
þau atvik sem í næstu andrá munu
fylgja í kjölfar fjölda smárra aðstæðna,
til að mynda einhverri leynilegri geðs-
hræringu í tilteknum einstaklingi,
óverulegri breytingu í lofti og því um
líkt.
Heimssýn Rasks var snemmborinn
undanfari þess sem á okkar dögum
kallast „öngþveitiskenning“, að
vængjablak fiðrildis í Kína geti komið
af stað fellibyl í Flórída.
Því næst héldu þeir áfram til Þing-
valla þar sem hið forna Alþingi var
háð, einn markverðasti staður sem
Rask hafði augum litið, með djúpum
gjám í jarðskorpunni, en í hans aug-
um líktist hann risastórum steingarði
eða hlöðnum vegg sem svo opnaðist
þegar að var komið. „Þetta er undar-
legur, fagur og hátíðlegur staður,
sem á varla sinn líkan í veröldinni.“
Ísland var á allan hátt miklu meira
framandi en Rask hafði gert sér í
hugarlund. Kannski hafði hann búist
við því að það væri líkt og að „koma
heim“. En allt var svo öldungis öðru-
vísi en hann átti að venjast annars
staðar á Norðurlöndum að hann gerði
lítið annað en að staðsetja sig þar. Og
þeir menn sem hann hugðist ræða við
um norræna málfræði og forna texta
bjuggu svo langt hver frá öðrum að
hann varð að verja löngum tíma á
eyjunni. Eins og vænta mátti fann
Rask á ferðum sínum að málið var
ekki fyllilega „hreint eða ósvikið“
neins staðar á sunnanverðu landinu.
Öllu máli skipti að komast norður í
land til þess að rannsaka tungumálið
þar.
Hugsað stórt í litlu landi
Bókarkafli | Málvísindamaðurinn Rasmus Kristi-
an Rask (1787-1832) var sérstakur áhugamaður
um íslenska tungu og hafði mikil áhrif á íslenska
málhreinsun á 19. öld og þróun tungunnar í átt til
málstaðals 20. aldar og var auk þess viðriðinn Hið
íslenska bókmenntafélag sem enn stendur í
blóma. Kirsten Rask rekur ævintýralega sögu
hans í bókinni Rasmus Kristian Rask.
Heimsókn Málvísinda-
maðurinn Rasmus
Kristian Rask heimsótti
Ísland haustið 1813.
Viðskipta
Viðskiptapúlsinn er hlaðvarpsþáttur um viðskipti og
efnahagsmál. Þar setjast blaðamenn ViðskiptaMoggans niður
ásamt góðum gestum og ræða stærstu viðskiptafréttir vikunnar
hverju sinni og hvað um er að vera í íslensku viðskiptalífi.
Þættirnir fara í loftið á miðvikudögum í kjölfar útgáfu ViðskiptaMoggans og eru
í samstarfi við Arion banka. Hlaðvarpið má nálgast á iTunes, Spotify og á öðrum
hlaðvarpsrásum. Þættirnir eru einnig aðgengilegir á mbl.is
VIÐSKIPTAPÚLSINN
VIÐSKIPTAPÚLSINN
NÝTTU
TÍMANN OG
FYLGSTU MEÐ