Morgunblaðið - 03.05.2020, Síða 32
Meiri áhrif
með hreinsun
á augnlokum
Með því að sameina Thealoz Duo augndropa og
Blephaclean blautþurrkur næst betri árangur
Grandagarði 13 & Glæsibæ, 5. hæð
Sími 510 0110 | www.eyesland.is
Dagleg hreinsun á augnlokum
eykur áhrif augndropa í baráttunni
gegn þurrum augum
Boðið verður upp á tónlist-
arstund í beinu streymi í
Borgarleikhúsinu á mið-
vikudag kl. 12. Þar flytja
meðal annars Björgvin
Franz Gíslason, Esther
Talía Casey og Þórunn
Arna Kristjánsdóttir lög úr
söngleikjum á borð við
Mamma Mia, Billy Elliot og
Litlu hryllingsbúðina. Á
fimmtudagskvöld verður
að vanda leiklesið leikrit,
en verkið verður kynnt
þegar nær dregur. Á laug-
ardag kl. 12 verður að vanda boðið upp á ævintýrastund
í hádeginu. Að þessu sinni les Hjörtur Jóhann Jónsson
upp úr barnabókinni um Hans hugprúða eftir Eduard
José í íslenskri þýðingu Þorsteins frá Hamri. Öllum
þessum viðburðum er streymt beint á youtuberás
Borgarleikhússins.
Söngleikjalög, leiklestur og barna-
stund í streymi Borgarleikhússins
MÁNUDAGUR 4. MAÍ 125. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Eins og staðan er núna eigum við að spila í september
og við eigum fimm leiki eftir í undankeppninni. Vonandi
verður hægt að klára þessa leiki á árinu og þá er eins
gott að við séum tilbúin þá. Við munum þurfa að nýta
tímann vel,“ segir Jón Þór Hauksson, þjálfari kvenna-
landsliðsins í knattspyrnu, sem væntanlega hefur að-
eins náð að spila þrjá leiki á heilu ári áður en að næsta
verkefni kemur. »26
Við þurfum að nýta tímann vel
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Stefnt er að því að fyrirhuguð
harmonikumót einstakra félaga í
júlí og ágúst verði á sínum stað en
mótin í júní hafa verið felld niður
vegna kórónuveirufaraldursins og
landsmótinu, sem átti að vera í
Stykkishólmi fyrstu helgina í júlí,
hefur verið
frestað um
eitt ár af
sömu ástæðu.
„Ekkert
annað var í
stöðunni en
að fresta
landsmótinu
um ár,“ segir
Friðjón Hallgrímsson, formaður
skemmtinefndar Félags harmon-
ikuunnenda í Reykjavík (FHUR) og
fyrrverandi formaður félagsins,
sem átti að sjá um landsmótið í
sumar. „En við leggjumst ekki í kör
og höldum áfram að þenja nikk-
una.“
Dansarar af guðs náð
Samband íslenskra harmoniku-
unnenda (SÍHU) var stofnað 3. maí
1981. Í því eru 14 félög með um
1.000 félagsmenn. Félögin skiptast
á um að halda landsmót á þriggja
ára fresti. 13. landsmótið fór fram á
Ísafirði 2017 og það verður næst í
Stykkishólmi 2021. Auk þess eru
venjulega mót á Borg í Grímsnesi
fyrstu helgina í júní og um versl-
unarmannahelgina, á Laugarbakka
í Miðfirði aðra helgi í júní, á Steins-
stöðum í Skagafirði um Jónsmess-
una og í Ýdölum í Aðaldal síðustu
helgina í júlí. „Við höfum haldið
mótið á Borg um verslunarmanna-
helgina síðan 2004 og höfum ekki
slegið það af í ár, ég ætla meira að
segja að auglýsa það í næsta Harm-
onikublaði,“ segir Friðjón, sem er
ritstjóri blaðsins. Hann bætir við að
600-700 manns mæti að jafnaði á
landsmót en 150-300 á hin mótin. „Í
sumar förum við eftir reglum um
leyfilegan fjölda vegna kórónuveir-
unnar,“ leggur hann áherslu á.
Friðjón hefur verið ötull félagi í
FHUR í um 35 ár en hann byrjaði
að spila á harmoniku fyrir um 45
árum. „Ég er ættaður vestan af
Hellissandi en fæddist í Reykjavík,
í 20 fermetra sumarbústað við
Laugarásveg,“ segir hann um upp-
runann. „Þegar ég var að verða þrí-
tugur erfði ég nikku frá pabba og
fór að fikta á hana. Það er svolítið
öðruvísi harmonika en menn eru al-
mennt með, svona gamaldags harm-
onika, en ég náði lagi á hana og hef
verið með hana alla tíð, hef haldið
mig við þá gömlu.“ Hann bætir við
að hann hafi aldrei lært hjá kennara
heldur spili eftir eyranu. „Ég kann
engar nótur fyrir utan það að ég
þekki debet- og kreditnótur,“ segir
sölumaðurinn fyrrverandi hjá Slipp-
félaginu í Reykjavík. Hann hefur
reyndar komið víða við, var til
dæmis farandsali, stjórnaði harm-
onikuþáttum í ríkisútvarpinu og gaf
út diskinn Dustað af dansskónum
með Hilmari Hjartarsyni svila sín-
um, en þeir komu fram undir nafn-
inu Vindbelgirnir á árum áður.
Gleðin er í fyrirrúmi á harmon-
ikumótunum. „Þetta eru tónleikar
og dansleikir alla dagana, ósköp
skemmtilegar stundir,“ segir Frið-
jón. „Menn fara í sparigallann og
eru jafnvel með hvítt um hálsinn.“
Á landsmótunum halda öll félögin
tónleika á föstudögum og laugar-
dögum og spilar hljómsveit hvers
félags í 15 til 20 mínútur. Síðan er
dansað á kvöldin. „Við spilum allt
milli himins og jarðar fyrir utan
nýtt popp,“ segir Friðjón. „Dans-
tónlist er í hávegum höfð og sving
og tjútt er vinsælast, en gömlu
dansarnir halda alltaf velli enda
kann fólkið að dansa alla þessa
dansa.“
Í sparigalla með
hvítt um hálsinn
Skemmtun Friðjón Hallgrímsson
þenur nikkuna á harmonikumóti.
Landsmóti harmonikuunnenda frestað um ár en gleðin við völd
Harmonikumót Samleikur karla og kvenna í Ýdölum í Aðaldal.
Ljósmyndir/Sigurður Harðarson