Morgunblaðið - 11.05.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2020
Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
úr silki
LEIKFÖNG
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ólafur Bernódusson
Skagaströnd
Það er af sem áður var að hvalreki þótti hið mesta
happ og bjargaði oft heilu byggðarlögunum frá hung-
urdauða. Nú á tímum er hvalreki vandamál sem við-
komandi sveitarfélag verður að leysa, oft með ærn-
um tilkostnaði.
Þannig er málum háttað með tæplega 14 metra
langan búrhvalstarf sem rak upp í fjöru í Kálfsham-
arsvík, líklega fljótlega eftir helgina 2.-3. maí. Hval-
urinn liggur á einum af fallegustu stöðunum í Kálfs-
hamarsvík og því þarf að fjarlæga hræið sem fyrst.
Að sögn Dagnýjar Rósu Úlfarsdóttur, oddvita
Skagabyggðar, kemur ekki til greina að láta hræið
rotna á þessum stað né heldur að grafa það í stór-
grýttri fjörunni. Þessi staður er einn vinsælasti við-
komustaður ferðamanna á svæðinu, þar sem stuðla-
bergið skapar fallega umgjörð um víkina.
Dagný segir að ekki verði þó gripið til aðgerða
fyrr en svör hafi borist frá Umhverfisstofnun við
nokkrum spurningum sem hún sendi stofnuninni. Þá
hugsar hún sér að fá björgunarsveitina Strönd á
Skagaströnd til að draga hræið út á rúmsjó á Húna-
björginni og sökkva hvalnum þar.
Síðan fréttist af hvalrekanum þarna hefur fólk
streymt á staðinn til að skoða þessa risastóru skepnu
þar sem hún liggur í fjörunni með sinn tunnulaga
haus. Þeirra á meðal var Bjarni Jónsson, for-
stöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra, en
hann tók sýni úr hvalnum til greiningar og mældi
dýrið í bak og fyrir.
Hvalreki í Kálfshamarsvík
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Kálfshamarsvík Búrhvalurinn sem liggur í fjörunni er
um 14 metra langur og sjálfsagt tugir tonna á þyngd.
Aðgerðir verða kynntar á morgun
Aðgerðapakki fyrir stúdenta verður kynntur á morgun Áhersla lögð á að takmarka atvinnuleysi
Lilja Hrund Lúðvíksdóttir
liljahrund@mbl.is
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, segist
skilja áhyggjur námsmanna yfir
mögulegu atvinnuleysi í sumar.
Hún segir að verið sé að vinna að
aðgerðapakka fyrir stúdenta sem
verði kynntur á morgun. Áhersla
verði lögð á að skapa störf fyrir
stúdenta og aðrar leiðir sem feli í
sér virkni fyrir sem flesta. Mikið
hefur borið á kröfum stúdenta um
rétt námsmanna til atvinnuleysis-
bóta í sumar.
Margir stúdentar
eru ekki enn
komnir með
sumarvinnu og
hafa Landssam-
tök íslenskra
stúdenta, Stúd-
entaráð Háskóla
Íslands og fleiri
hagsmunasamtök
krafist þess að stúdentum standi at-
vinnuleysisbætur til boða í sumar.
Lilja segist vona að fyrirhugaður
aðgerðapakki nái að takmarka at-
vinnuleysi stúdenta verulega. Í
pakkanum verður farið yfir ýmis
mál sem snerta fjárhagsöryggi og
hagsmuni stúdenta á tímum kór-
ónuveirufaraldursins. „Það eru
ýmsar aðgerðir sem við erum að
fara í,“ segir Lilja. Hún vonist til
þess að sem flestir námsmenn fái
atvinnu í sumar í gegnum aðgerðir
stjórnvalda og atvinnulífsins, en
þegar búið verði að ráða í öll störf
þurfi að skoða hve margir sitji þá
eftir án atvinnu í sumar. Lilja nefn-
ir nokkra þætti sem muni styrkja
stöðu námsmanna, meðal annars
„stórefling Nýsköpunarsjóðs náms-
manna, nám á framhalds- og há-
skólastiginu, þúsundir nýrra starfa,
efling grunnrannsókna, meira fjár-
magn til Rannsóknar- og tækni-
sjóðs. Að auki er verið að auka
verulega fjármuni til nýsköpunar í
landinu. Allt eru þetta aðgerðir sem
miða að því að leggja grunninn að
störfum framtíðarinnar sem byggja
á aukinni færni og nýsköpun“.
Gagnrýna ummæli Ásmundar
Landssamtök íslenskra stúdenta
og Stúdentaráð Háskóla Íslands
sendu í gær frá sér tilkynningu
þar sem ummæli Ásmundar Ein-
ars Daðasonar, félags- og barna-
málaráðherra, í Silfrinu í gær voru
gagnrýnd. Ásmundur sagðist ekki
vera hvatamaður þess að náms-
menn né aðrir á atvinnu-
leysisbótum „fái fjármagn úr ríkis-
sjóði fyrir að gera ekki neitt“. Í
samtali við mbl.is sagði Sigrún
Jónsdóttir, forseti LÍS, að um-
mæli Ásmundar væru „til hábor-
innar skammar“ og merki um
skilningsleysi hans á stöðu stúd-
enta.
Lilja Alfreðsdóttir
Lag Daða og gagnamagnsins, Think
About Things, er meðal allra vinsæl-
ustu Eurovision-laganna á streymis-
veitunum Spotify og Youtube. Eins
og áður hefur komið fram var Euro-
vision blásið af í ár sökum heimsfar-
aldurs kórónuveiru. Það hefur þó
ekki dregið úr áhuganum á keppn-
inni og eru lögin gífurlega vinsæl á
framangreindum streymisveitum.
Þannig hefur lagi Daða og Gagna-
magnsins samtals verið streymt yfir
tíu milljón sinnum á veitunum tveim-
ur. Situr það í 3. sæti á Spotify og 6.
sæti á Youtube yfir vinsælustu
Eurovision-lögin í ár.
Í gær var svo tilkynnt að lagið
hefði unnið Eurostream 2020, sem
er ein fjölmargra „fjar-Eurovision-
keppna“ sem haldnar hafa verið í ár.
Félag áhugafólks um söngvakeppn-
ina stóð að baki keppninni og var
hún fremur stór í sniðum, þar sem
ríflega 20 aðdáendasíður víðs vegar
um heim sameinuðu krafta sína.
aronthordur@mbl.is
Daði nýtur
vinsælda
Streymt meira en
10 milljón sinnum
Morgunblaðið/Eggert
Daði Lag Daða og Gagnamagnsins
er vinsælt á streymisveitum.
Fjöldi fólks naut veðurblíðunnar í miðbænum um
helgina. Þar var talsvert meira um manninn en
undanfarnar helgar eftir að takmörkunum á
samkomubanni vegna kórónuveirunnar var af-
létt 4. maí. Vel viðraði bæði laugardag og sunnu-
dag og vorilmur var í lofti. Veðurhorfur fyrir
næstu daga eru þó ekki eins sólríkar, en á suð-
vesturhorninu má búast við rigningu eða skúrum
í kvöld. Á morgun verður áfram skýjað og rign-
ing syðst á landinu. Þá má vænta stöku skúra
vestanlands á miðvikudag og vætu við norður-
ströndina en annars verður skýjað og þurrt.
Mannlíf eykst í miðbænum með hækkandi sól
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Vorblíða í miðbænum