Morgunblaðið - 11.05.2020, Page 13

Morgunblaðið - 11.05.2020, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2020 Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Égheyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ Á Ítalíu, sem var í upphafi einn af miðpunktum faraldursins í Evrópu, voru um 500 andlát á hverja milljón íbúa, en í Bretlandi, þar sem flestir hafa dáið til þessa í Evrópu, eru skráð andlát um 460 á hverja milljón íbúa. Þá höfðu Frakkar skráð um 398 andlát á hverja milljón íbúa. Belgísk stjórnvöld hafa hins veg- ar sagt samanburðinn gallaðan, þar sem dánartölur þeirra séu nákvæm- ari en annarra ríkja, og Sophie Wilmes, forsætisráðherra landsins, gaf til kynna nýlega að mögulega væri andlátstalan of há, þar sem einnig hefðu verið þar með andlát á hjúkrunarheimilum eldri borgara þar sem sterkur grunur leikur á að kórónuveiran sé dánarorsökin. Þessi staðreynd endurspeglast í því að um það bil helmingur allra dauðsfalla af völdum veirunnar í Belgíu hefur verið skráður á hjúkr- unarheimilum landsins. Svíþjóð verr úti en Bandaríkin Nokkra athygli vekur þegar dauðsföll af völdum kórónuveir- unnar eru skoðuð út frá höfðatölu að þau eru nokkru fleiri í Svíþjóð en í Bandaríkjunum, þar sem langflestir hafa dáið til þessa. Hafa Svíar skráð um 314 andlát á hverja milljón íbúa en Bandaríkja- menn hafa um 231 andlát á hverja milljón íbúa. Þetta hlutfall Svía er einnig mun hærra en samsvarandi dánartölur hjá hinum ríkjunum á Norðurlönd- unum, en í Noregi eru skráð 40 and- lát á hverja milljón íbúa, í Dan- mörku eru andlátin 90 og í Finn- landi eru þau 47 á hverja milljón íbúa. Ísland er varla samanburðar- hæft vegna fámennis, en fyrir helgi höfðu tíu manns látist hér, sem er jafnt 29 andlátum á hverja milljón íbúa. Dánartíðnin er hæst í Belgíu Dánartíðni kórónuveirunnar Andlát á hverja milljón íbúa í þeim löndum þar sem meira en 1.000 manns hafa látist af völdum faraldursins 0 800700600500400300200100 0 80.000 70.000 60.000 50.000 40.000 30.000 20.000 10.000 BelgíaBrasilía Kína (meginland) 4.633 Frakkland 25.809 Írland Ítalía 29.684 Holland Spánn 26.070 Svíþjóð Sviss Bretland 30.076 Bandaríkin 73.431 Fj öl di d au ðs fa lla Andlát á hverja milljón íbúa Heimild: Talning AFP skv. opinberum gögnum 7. maí  Um það bil fjórar milljónir tilfella kórónuveirunnar hafa greinst í heiminum, flest í Bandaríkjunum  Belgía er í efsta sæti yfir dauðsföll á hverja milljón íbúa BAKSVIÐ Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Um það bil fjórar milljónir manna hafa nú greinst með kórónuveiruna og rúmlega 270.000 manns hafa lát- ist af völdum hennar. Þegar horft er til þeirra ríkja sem verst hafa orðið úti í faraldrinum tróna Bandaríkin þar á „toppnum“, en þar hafa nú um 1,3 milljónir manna veikst af völdum kórónuveirunnar og rúmlega 76.000 manns látist. Spánverjar hafa fengið að glíma við næstflest skráð tilfelli til þessa, eða rúmlega 220.000 manns, og Bretar eru með næstflest dauðsföll, um 32.000 talsins þegar horft er til talningar Johns Hopkins-háskólans, en opinberar tölur breskra stjórn- valda eru nokkuð hærri. Auk Breta og Bandaríkjamanna hafa Ítalir, Spánverjar og Frakkar orðið sérstaklega illa úti þegar horft er til dauðsfalla af völdum veir- unnar, en í öllum ríkjunum hafa fleiri en 25.000 manns dáið af völd- um hennar. Í Brasilíu, sem er í sjötta sæti yfir dánartölur, hafa rúmlega 9.000 manns dáið. Höfðatala gefur aðra mynd Þessi samanburður tekur að vísu ekki inn í myndina hversu fjölmenn ríkin eru, en þegar horft er til höfða- tölu virðist sem faraldurinn hafi ver- ið einstaklega skæður í Belgíu. Þar hafa, samkvæmt dánartölum fyrir helgi, um 735 manns dáið á hverja milljón íbúa, en það eru mun fleiri en á Spáni, þar sem skráð voru um 562 andlát á hverja milljón íbúa. Útgöngubann mun áfram gilda í Bretlandi til að minnsta kosti 1. júní, en bannið hefur verið í gildi frá 23. mars. Boris Johnson, forsætisráð- herra Bretlands, greindi frá áætl- unum um hvernig tilslökunum yrði háttað í sjónvarpsávarpi á sunnu- dag. Johnson sagði ekki rétt að af- nema útgöngubann á þessum tíma- punkti. Talið er að faraldurinn hafi náð hápunkti í Bretlandi, en þrátt fyrir það sagði Johnson það vera „algjört brjálæði“ að fórna því sem almenningur hefur lagt á sig síðan útgöngubannið var sett á með því að afnema bannið of snemma. Stefnt er að því að skólar og verslanir verði opnuð að nýju 1. júní, svo lengi sem fjöldi nýrra smita haldist í lágmarki. Þá tilkynnti Johnson að hann hygð- ist á næstu vikum kynna nýjar regl- ur um sóttkví. Þannig verði þeim sem komi til landsins gert að fara í sóttkví til að forðast frekari smit að utan. Flest dauðsföll í Evrópu Tæplega 32.000 manns hafa látist af völdum kórónuveirunnar, en hvergi í Evrópu hafa jafn margir látist. Aðeins í Bandaríkjunum er dánartíðni vegna veirunnar hærri, en þar hafa tæplega 80.000 manns látist. Johnson, sem lá sjálfur á sjúkrahúsi í viku vegna veirunnar, sagði mikilvægt að vera áfram á varðbergi og að hætta væri á að allar aðgerðir hefðu verið til einskis ef út- göngubannið yrði afnumið of snemma. Í vikunni munu stjórnvöld hvetja fólk til að mæta til vinnu að nýju, hafi það ekki þann kost að sinna starfi sínu heima hjá sér, svo sem iðnaðarmenn og þeir sem sinna framleiðslustörfum. Frá og með miðvikudeginum mun fólk geta stundað líkamsrækt utandyra að vild, svo lengi sem það er aðeins með öðrum innan sama heimilis. Þá standa vonir til þess að í byrjun júlí verði hægt að leyfa almenna heil- brigðisþjónustu og aðra opinbera starfsemi. Barir og aðrir staðir með vínveitingaleyfi fá líklegast ekki leyfi til að hefja starfsemi að nýju fyrr en á haustmánuðum, og skóla- hald á meðal barna eldri en 11 ára mun líklegast ekki hefjast að nýju fyrr en í september. Þá sagði John- son í ávarpi sínu að ef stjórnvöld yrðu vör við bakslag í baráttunni við veiruna yrði að nýju gripið til að- gerða. Útgöngubann í Bretlandi til 1. júní AFP Ávarpar þjóðina Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, kynnti í sjón- varpi í gær fyrirhugaðar tilslakanir á aðgerðum vegna kórónuveirunnar.  Bretar búa sig undir tilslakanir Líkamsleifar 25 einstaklinga fund- ust í fjöldagröf við yfirgefinn sveitabæ nærri borginni Guadala- jara í Mexíkó fyrir helgi. Saksókn- ari Jalisco-héraðs sagði í gær að bú- ist væri við því að fleiri lík ættu eftir að finnast í gröfinni. Ekki hef- ur tekist að bera kennsl á hin látnu, en líkamsleifar þeirra eru nú til rannsóknar. Það sem af er ári hafa alls 115 lík fundist í 10 fjöldagröf- um í Jalisco, en eiturlyfjahringir eru fyrirferðarmiklir í héraðinu. MEXÍKÓ AFP Ofbeldi hefur færst í aukana í Jalisco. Hið minnsta 25 lík fundust í fjöldagröf Barack Obama, fyrrverandi Banda- ríkjaforseti, gagnrýndi eftirmann sinn Donald Trump harðlega vegna viðbragða Bandaríkjanna við kór- ónuveirufaraldrinum. Á lokuðum fundi vegna forsetaframboðs Joe Biden sagði Obama að viðbrögð Bandaríkjanna vegna faraldursins hefðu verið „óskipulagðar hörm- ungar“. Hvíta húsið sagði í tilkynn- ingu sinni á sunnudag að „for- dæmalausar“ aðgerðir Trump hefðu „bjargað lífi Bandaríkja- manna“. Meira en 1,2 milljónir smita hafa verið staðfest í Banda- ríkjunum og hafa tæplega 80.000 manns látist af völdum veirunnar. BANDARÍKIN Obama gagnrýnir viðbrögð Trump

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.