Morgunblaðið - 11.05.2020, Síða 32
Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur
SPARAÐU
30%þegar þú bókar4 meðferðir íháreyðingu
VARANLEG
LASER
HÁREYÐING
Viðbjóðumupp á nýjustu
tækni í laser háreyðingu
g Fjarlægir óæskilegan hárvöxt
g Er einföld og þægileg meðferð
Gjörningur verður framinn í dag og næstu mánudaga
og föstudaga kl. 14.30-15.00 og 15.20-15.50 í D-sal
Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi og er hann hluti af
sýningu Andreas Brunner í salnum sem nefnist Ekki
brotlent enn. Gjörningurinn felur í sér að tveir aðilar
mála súlu í salnum hvor í sínum lit. Málararnir, sem
færa sig rangsælis um súluna, sjá ekki hvor annan og
munu því í sífellu mála yfir hvor hjá öðrum. Hringrásin
verður endalaus svo lengi sem sýningin er opin.
Sýningin stendur yfir til sunnudags 7. júní.
Gjörningur framinn á mánudögum
og föstudögum í D-sal Hafnarhúss
MÁNUDAGUR 11. MAÍ 132. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Ég er í raun bara að hoppa út í djúpu laugina og von-
andi kann maður að synda. Ef ekki, þá þarf maður að
læra það ansi fljótt. Það eru gerðar væntingar til mín
þarna en það hefur líka fylgt handboltaferli mínum að
ég hef spilað með liðum þar sem kröfurnar hafa verið
ansi miklar. Ef maður hefði ekki viljað hafa hlutina
þannig hefði maður að öllum líkindum bara endað í ein-
hverjum þægilegheitum í bumbubolta,“ segir Guðjón
Valur Sigurðsson, nýráðinn þjálfari Gummersbach, m.a.
við Morgunblaðið í dag. »26
Guðjón Valur hoppar út í djúpu
laugina í nýju starfi í Þýskalandi
ÍÞRÓTTIR MENNING
arnir okkar, Lakshman, Madaiah,
Prakash og Biju, hafa starfað með
okkur áratugum saman. Það segir
sitt,“ segir hún og bætir við að þau
hafi opnað fyrstu Hraðlestina á
Hverfisgötu 2003 til að létta á álag-
inu á Austur-Indíafjelaginu. Vin-
sældirnar hafi farið fram úr björt-
ustu vonum og þótt mörgum þyki
undarlegt að opna veitingastað í
samkomubanni sé það ekki óeðlilegt.
„Viðskiptavinirnir hafa sýnt okkur
mikla hollustu á þessum erfiðu tím-
um rétt eins og þeir hafa alltaf gert.
Þegar þeir gátu ekki komið til okkar
með sama hætti og áður komum við
til þeirra og þeir hafa brugðist vel
við.“
Þó að kórónuveirufaraldurinn hafi
komið snöggt las Chandrika rétt í
hann og byrjaði með heimsendingar í
byrjun mars auk þess sem haldið var
áfram að afgreiða mat til að fara með
annað. „Við vorum viðbúin lokunum í
sal og ákváðum að halda áfram með
sama fólk í hverju eldhúsi, fórum eft-
ir öllum ráðleggingum yfirvalda,
hver eining var út af fyrir sig og
gerði nánast ekkert annað en að
vinna og sofa án samneytis við aðra.
Þetta gekk vel, við sögðum engum
upp en vinnuhlutfallið var skert og
eftir að við opnuðum matsalina með
tvo metra á milli borða í vikubyrjun
eru hjólin farin að snúast hraðar
hægt og sígandi.“
Chandrika áréttar að í raun sé um
fjölskyldufyrirtæki að ræða og hún
gæti ekkert án góðs og trausts
starfsliðs. „Börnin mín, Jóhanna og
Ísarr, hafa staðið við hlið mér sem
klettar. Við höldum áfram að gera
það sem við gerum best og stöndum
öll saman. Framtíðin er björt, jafnt
hjá okkur og viðskiptavinum okkar.
Hjá landinu okkar.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Chandrika Gunnarsson, eigandi veit-
ingakeðjunnar Hraðlestarinnar,
opnaði fjórða veitingastaðinn með
sama nafni síðasta vetrardag. Auk
þess á hún og rekur veitingastaðinn
Austur-Indíafjelagið á Hverfisgötu í
Reykjavík, sem hún og eiginmaður-
inn Gunnar Gunnarsson heitinn
byrjuðu með 1994 eftir að hafa
kynnst í háskólanámi í Bandaríkj-
unum og flutt til Íslands árið áður.
„Með tilliti til aðstæðna vegna kór-
ónuveirunnar get ég ekki kvartað,
gestir hafa tekið
nýja staðnum á
Grensásvegi vel,
rétt eins og
hinum,“ segir hún,
en þeir eru á
Hverfisgötu og í
Lækjargötu, einn-
ig í Reykjavík, og í
Hlíðasmára í Kópavogi. Hún segist
lengi hafa haft augastað á hverfinu
og þegar húsnæði hafi boðist á horni
Grensásvegar og Skeifunnar í lok
nýliðins árs hafi hún ekki þurft að
hugsa sig um tvisvar. Þar hafi hún
fundið stað þar sem starfsfólk Hrað-
lestarinnar hefði góða aðstöðu til að
sinna vöruþróun og þjóna við-
skiptavinum úr nærliggjandi
hverfum.
Góð reynsla frá Indlandi
Chandrika er frá Bangalore í
suðurhluta Indlands. Þar ólst hún
upp við indversk krydd og indverska
matargerð auk þess sem hún vann í
öllum störfum frá uppvaski til stjórn-
unar á veitingastað samfara námi í
Suður-Karólínu.
„Mér hefur alltaf þótt gaman að
elda mat og þegar ég flutti til Íslands
var enginn indverskur matstaður
hérna, en með reynslu mína í huga
fannst mér tilvalið að opna slíkan
stað,“ segir hún um byrjunina fyrir
26 árum. „Með því slægi ég tvær
flugur í einu höggi, skapaði okkur at-
vinnu og byði gestum upp á það
besta í indverskri matargerð.“
Frá upphafi hefur Chandrika lagt
áherslu á ferskt úrvalshráefni og
leggur hún áherslu á að það skipti
mjög miklu máli. „Við höfum rekið
fyrsta veitingastaðinn á sama stað á
sömu kennitölu í 26 ár, starfsfólkið
hefur unnið lengi hjá okkur og kokk-
Hraðlestin í nýtt hverfi
Chandrika Gunnarsson rekur fimm veitingastaði
Ljósmynd/Gísli Baldur Gíslason
Hraðlestin Chandrika Gunnarsson á nýja staðnum á Grensásvegi.